Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
December 2007
November 2007
Oktober 2007
Sept 2007
Agust 2007
Júlí 2007
Júní 2007
Maí 2007
Apríl 2007
Mars 2007
Februar 2007
Januar 2007
2006
2005
2004

25/02 2007

 

Ein bichen smule fuld i dag.Eller i aften. Klokken er 05:00 og batteriet er næsten færdigt på min bærbar og jeg er faktisk meget fuld men jeg holder lige øje med om alt er i orden på vores hjemmeside, altså jem& fixes hjemmeside. Imens så falder isen ned fra vores tag, big time. Hele tiden. Livsfarligt at være udenfor. Heldigvis er Bertha indenfor. ...... Oh, pis... jeg må vist hellere i seng.... jeg skriver kun på dansk. Skidefuld. Så lige American idol når jeg kom hjem, I LOVE IT. Nothing is better....... hey nu skriver jeg på engelsk , nej nu på danks... æajs for delen da....

 

jeg fer i rumid nuna....fadsjflkdjf

Guten nacht. Ein bischen sliben, ein bichen fragen..... hmmmm....

 

22/02 2007

Mér þætti gaman að vita hvernig Ísland er þegar að það er snjór. Danmörk er núna lömuð út af snjó. Ég átti að fara til Árósa í dag á fund en rétt áður en ég fór í lestina fékk ég hringingu um að fundinum væri aflýst út af snjó.

 

Ég veit ekki alveg en mér finnst þetta ekkert rosalegt. Það er nú ekkert brjálað hér í Horsens, þetta er víst verra fyrir norðan, en ég held að það sé ca. 15 cm djúpur snjór hér. Ekki meira.

 

Danmörk fer bara í lás og slá og allt fellur niður út af smá snjó. Er þetta líka svona á Íslandi? Ég man það ekki.

 

Annars er þetta fyrsti almennilegi snjórinn í allan vetur. Við erum búin að hafa frábærann vetur, ca. 7 stiga hiti á meðaltali í janúar. Allir aðrir janúarer sem  að ég hef upplifað hér hafa verið í - 10 stigum. Oj.

 

Jæja, ég er að vinna. Vinna heima, varð bara að tjekka á þessu  með snjóinn heima. Vonandi nennir einhver að svara mér. Mér skilst að þið hafið haft nóg af honum í vetur.

 

Kveðja frá lömuðu Mörkinni.

 

17/02 2007

Halló, gott fólk. Það er ekkert að frétta.  Er bara að þrífa og ég nenni því ekki. En það versta er yfirstaðið. Skúringarnar, nú er bara að taka til og þurrka af.

 

Þorrablót íslendingafélagsins i Horsens er í kvöld og ég fer ekki. Ó, nei, það er nú svo sem ekkert nýtt, þar sem að ég hef aðeins farið 3svar á þessum átta árum  sem að ég er búin að vera hérna. Líst ekkert á þessi íslendingafyllerí :-) Ú ha, nú móðgast ábyggilega einhverjir. Nei, ég er samt komin með íslendingafordóma. Noh, nóg um það. En ég er líka of nísk, 450 kall, Hóst.

 

Annars er allt í gúddí, ég er með fríhelgi, er ekkert að fara út í kvöld sem að er æðislegt, búið að vera nóg að gera um helgar hingað til. Næstu helgi er 30 ára afmæli hjá vini Timo. Timo er byrjaður að plana 30 ára afmælið sitt sem að hann ætlar að halda 25. ágúst. Já, hann er dani og danir skipuleggja. Í góðann tíma. Það mættu margir íslendingarnir læra það af dönunum, en það eru til takmörk. Við skulum ekkert vera að fara út í það hvernig pabbi hans er í skipuleggingunum. :-)

 

Nýja vinnan er fín fyrir utan að ég þarf að svara emailum frá kúnnunum og það er ekki gaman þegar fólk er ógeðslega reitt og fúlt. En maður venst því og það herðir mann, kennir mér kanski dáldið að láta í mér heyra þegar einhverjar búðir trampa á mér. Ég er ekkert of góð að klaga. Ég vil nú samt segja það þannig að ég reyni að halda samræðunum góðum í staðinn fyrir að vera með æsing. Maður lendir oftast bara í meiri klípu við að vera að æsa sig eitthvað. :-)

 

Jæja, ætli ég verði ekki að rífa mig upp úr stólnum og skella mér í göngutúr með Berthu mína.

 

Hafið það gott og góða helgi.

 

Bæjó.

 

P.S. American Idol byrjar í kvöld..... jei, hvað ég hlakka til :-)

 

 

 

11/02 2007

Hæ, ég er alveg búin að blogga smá, bara á dönsku, ótrulegt en satt. Hef ekki verið svo mikið fyrir að skrifa á dönsku. Ég geri nú ráð fyrir að þið íslensku vinir getið nú lesið danska blogið mitt þannig að ég þarf ekki að vera að þýða allt yfir á íslensku.

 

En ég ætla samt að þýða smá yfir á íslensku núna því ég verð að auglýsa heimasíðu sem að maður getur fengið að hlusta á ókeypis tónlist. Pandora.com. Alger snilld. Þú skrifar bara einhvern tónlistarmann sem að þér finnst góður og þá finnur forritið tónlist sem að líkist þeirri tónlist. Nú er ég alveg óð, er núna að hlusta á einhverja sem að heitir KT Tunstall, sem að ég veit ekkert hver er en hún er helv... góð. Snilld, held samt að ég hafi heyrt þetta lag.