Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
December 2007
November 2007
Oktober 2007
Sept 2007
Agust 2007
Júlí 2007
Júní 2007
Maí 2007
Apríl 2007
Mars 2007
Februar 2007
Januar 2007
2006
2005
2004

Sumar i Horsens

28/3 2007

 

Já, sumarið er komið til Horsens. Sól og heiðskírt, ekta veður til að vera úti í garði. Sem að ég var um helgina, að ditta smá að. En þegar ég lít yfir garðinn minn gefst ég bara upp, mér finnst þurfa að gera svo mikið og allt eitthvað svo ljótt. ;-(

Og ég hata að reita upp illgresi. Jeminn, ég var að tryllast á laugardaginn þegar ég var að því að ég varð að hætta. Mig vantar garðyrkjumann, hreingerningahjálp, kokk og innkaupara. Ég er ekki manneskjan i þetta.

 

Ég vil geta notið þess að vera úti í garði án þess að vera að pirra mig á því að það þarf að gera hitt og þetta. Svo á allt líka að vera eins og klippt úr Hús og Híbýli blaði.

Ég þjáist af fullkomnunarárattu. Er búin að fá það staðfest í vinnunni.  

 

Jamm, ég fer svo alveg að lenda á klakanum. Bara 8 dagar. Alltaf gaman að fara heim. Þarf að hitta helling og ætla að gera það einn daginn að fara i BYKO og Húsasmiðjuna. Maður verður nú að tékka á byggingavörumarkaðinum heima og koma svo hingað aftur og reyna að láta jem & fix fara að spekúlera í því að opna búðir þarna á fróni. Ekki yrði það nú slæmt.

 

Jæja, bannað að blogga langt. Til sidst vil ég bæta því við að ég á enn aukamiða á tónleikana med Gogga mínum í Árósum, þann 19. maí.

 

Sjáumst á klakanum í apríl.

 

Fékk miða á Gogga (13/03 2007)

Jæja, ég fékk 2 miða á aukatónleikana með Gogga mínum, þann 19. maí, í standplássi. Nú vantar mig bara einhvern til at fara með. Anyone :-)

Miðinn kostar 730 DKK.

 

 

Miðar á George Michael (12/03 2007)

Hopeless case að fá miða í dag á Gogga minn. Uppselt eins og skot, en vitiði hvað. Hann ætlar að vera með aukatónleika daginn eftir og miðasalan byrjar á morgunn kl 12. Ég reyni aftur á netinu en þetta virkar alveg vonlaust. Hann kemur med "Special guest" sem að enginn veit hver er enn.

 

Annars er búið lítið um að vera í blogginu hérna. Ég er á fullu að gera mediacenteret mitt betra, en það er ný tölva sem að er inni í stofu sem að við höfum allt okkar hafurtask á sem að heitir tónlist, bíomyndir og TV og svo auðvitað internet. Þannig að núna sit ég hérna inn i stofu fyrir framan stórskerminn og blogga. Þetta er voða þægilegt.

Ég get bara ekki fengið TV signalið til að vera almennilegt, Frekar pirrandi. TV kort: Vista view saber 2020, ef einhver veit einhver trix, let me know.

 

Ég var annars í köben síðasta miðvikudag á intranet ráðstefnu. Það var alveg rosalega gaman, og ég var alveg óð, það þarf að betrumbæta okkar intranet alveg helling. Altså jem & fix´ intranet. Og það er mín vinna.

 

Svo kem ég jú til íslands í apríl, hlakka mikið til. Ekki búin að koma heim í 2 ár. Vonandi hitti ég sem flesta.

Jæja, læt þetta duga, Löng blogg eru leiðinleg, ég nenni allavegna aldrei að lesa löng blogg, en elska að skrifa löng blogg.

 

Íslandsferð í apríl - skrifað 09/03 2007

Jæja, þá kem eg loksins heim.

Koma 6. april og brottör 16. apríl

 

Hlakka til að sjá ykkur,

Ragna

 

 

George Michel - 01/03 2007

Ég er að tryllast!!!

 

Það var verið að opinbera þetta fyrir hálftíma síðann að GEORGE MICHAEL KEMUR TIL ÁRÓSA ÞANN 18. MAÍ.

 

Ég á svo erfitt með mig núna, mér líður eins og ég hafi unnið i lottó, ekki að ég hafi prófað það en mig langar bara að öskra núna.

 

Salan byrjar 12. mars klukkan 10. Ég ætla að fara og reyna að fá miða, ef að þú ert vinkona min/vinur minn eða fjölskylda, vil ég kaupa miða fyrir þig, sem þýðir auðvitað að við förum þá saman. En mér er alveg sama þó ég fari ein.....

 

SHIT.

 

Þetta eru bestu tónleikar ever en hann er líka goðið mitt.