Orkulaus
Þri, 24/4 2007
Juuu, ég er alveg búin að vera orkulaus síðan ég kom frá Íslandi. Ég hélt að ég væri kominn aftur á toppinn í dag en nei nei, allavegna ekki í karate. Gat ekki neitt, fékk bara svima og óþægindi og leið eins og líkaminn minn væri eins og gel, þannig að ég gafst upp og fór í miðjum tíma. Og ég hata að gefast upp. Arrrrg.
Er komin á þátt 8 í 24 og þetta verður allavegna ekki leiðinlegra. Jack Bauer sér um þetta. Þannig að núna fer ég aftur að komast í sama far og ég komst í þegar ég var að horfa á season 5, með að allir væru terroristar og ég aðstoðarkona Jacks. :-) Jea,... in your dreams.
Bara minna en mánuður þangað til ég hitti Gogga minn aftur. Búin að selja aukamiðann minn en ég held að það sé nú ekki uppselt ennþá, þann 19. maí. Svo langar mig alveg obboslega á Justin Timberlake i Parken í júni en er samt ekki alveg búin að finna út úr því.
Jæja, hef ekkert merkilegra að segja. Ætla að fara að klára 24, eða allavegna sjá einn þátt enn.
OMG
Fös, 20/4 2007
Jack Bauer er hetja allra hetja. Hann er æði, var að byrja á season 6 af 24 tímum og búin að sjá tvo þætti núna og er alveg óð. Þetta er brilljant. Amerikanarnir gera besta sjónvarpsefni í heimi.
Kláraði Prison Break i gær, og verð að bíða fram á haust til að sjá season 3 og það er bara of erfitt.
Shit, hvað ég get sokkið í þetta, en mér finnst það æði. Ef að þú hefur ekki séð 24 eða Prison Break og ert fyrir spenning og hasar þá verðuru að sjá þetta. Ómissandi fyrir sjónvarpsglápsáhugafólk.
Jack Bauer og Michael Scofield rules. Ekki spillir nú fyrir að báðir eru super myndarlegir.
Allt mögulegt
Fim, 19/04 2007
Er komin og farin. Gott að koma heim en alltaf gott að koma heim. Takk fyrir mig til allra.
Ætla ekki að skrifa mikið um íslandsferð því ég er búin að banna mér að skrifa of mikið. En þetta var mjög fin ferð.
Langar að vera með smá dýraverndunaráróður og auglýsingu fyrir Google í þetta skipti. Byrjum á dýrunum.
Ég keypti mér National Geographic blað til að lesa í flugvélinni á leiðinni til Danmerkur og í því blaði var grein um verndun fíla i þjóðgarði i Chad, Afríku, sem að heitir Zakouma. Þetta var agalegt að lesa þetta og þurfti ég að hætta nokkrum sinnum áður en ég byrjaði að grenja hástöfum í flugvélinni.
Það er svo mikið af glæpamönnum sem að eru að drepa fílana út af tönnunum þeirra bara út af helvítis græðgi í helvítis mannfólkinu í heiminum. Til að búa til skraut og skartgripi. Árið 1970 voru 300.000 fílar á þessu svæði á móti að núna eru ca. 10.000. ´
Ég verð svo reið að hugsa um þetta að ég get ekki skrifað um þetta meir.
Bara aldrei kaupa neitt sem hefur eitthvað með dýr að gera. Hluti sem að gerð eru úr fílabeinum, neshyrningshornum eða einhverju því um líkt. Ef að við gerum það þá getum við alveg eins farið sjálf og drepið þessi yndislegu dýr.
Noh, svo að auglýsingunni fyrir Google. Brilljant, var að downloada helling af gadgets og mæli ég með Google Desktop og Picasa sem að er frábært myndaalbumsforrit.
Ein alveg æst, ætla að hjóla í karate í slagvirðinu sem að er úti núna og fá útrás þar út af vonda fólkinu sem eru að drepa dýrin :-(
Nálgast bráðum heimsferð... altså heim (s) ferð
Mið, 04/04 2007
Komin í frí og fer heim á föstudaginn. 2 ár síðan ég var heima síðast en mér finnst ekki eins og það sé langt síðan. En ég er líka búin að missa tímaskynið ásamt stutt-tímaminninu og gleymi alltaf að ég er ekki 30 ára heldur 31 og verð reyndar 32 ára í ár. Þess má bæta að ég er búin að búa í Danmerku i 8 og hálft ár.
Ég er búin að vera með voða miklar áhyggjur yfir hvernig ég á að pakka fyrir 10 daga á Íslandi, og verð endalaust að minna mig á að ég er ekki að fara suður i hitann heldur norður í kuldann. Hlý föt, hlý föt.....
Búin að þvo hverja flík sem að ég á, svo að ég hafi allt um að velja til að láta í ferðatöskuna. Eitthvað hlýtt, eitthvað fínt, hve mörg skópör, úff, bara erfitt.
Svo er ég búin að elda mat og frysta fyrir næstu 10 daga svo að Timo fái eitthvað að borða meðan ég er að heiman. Er líka búin að þrífa húsið og þvo öll fötin hans líka, ásamt því að smyrja nestið hans. Nei, glætan, ef að staðan væri svona þá væri ég FLUTT heim :-)
En ég er þó búin að niðurhala, eins og maður segir á góðri íslensku, fyrir hann bíómyndum svo að hann geti horft á eitthvað skemmtilegt meðan ég er í burtu. Svo hann deyji ekki úr saknaði (hahahahhahha)
Hann er ekki alveg eins tæknilegur og ég, þó svo að hann komi mér á óvart stundum.
Ég er alveg ótrúlega tæknileg, ég gæti verið vélmenni.
Þetta er alger snilld að geta náð sér í sjónvarpsefni þegar maður vill, ég á t.d. bara einn þátt eftir í Greys anatomy og þá er ég búin að sjá það allt. Næst er það 24, season 6. Vonast ég til að geta haft 24 maraþon einn sólarhringinn og séð þetta allt..... hmmm... 31s....bráðum 32ja. Ég held ekki. Maður getur næstum því ekki lengur haldið sér vakandi lengur en til kl. 2 á næturnar um helgar og kl 23 á virkum dögum. Þetta er annað en þegar maður var unglingur.
Ætli ég verði ekki að taka þetta í pörtum.
Jæja, segjum þetta gott, gott fólk. Guð, ég þarf að pakka á morgunn. Stendur ekki 6. april á flugmiðanum mínum? Hvað með lestina, verð ég ekki kominn á réttum tíma til Kastrup? Muna kreditkortið, miðana, fötin, myndavélina, muna að ég á ekki að mæta í vinnuna á morgunn......... Juuuu, ég fer á taugum.
|