Langt om længe
09/05 2007
Jæja, ég er alveg að brillera í blogginu.
Verð nú aðeins að segja ykkur super ómerkilega sögu. Ég var nefnilega núna að koma mér í það að millifæra fra danska reikningum mínum yfir til Íslands svo að ég geti nú borgað þessi blessuðu námslán mín næstu mánaðarmót. En mér finnst þetta svo dýrt að ég fer að reyna að tékka á því hvort það væri hægt að gera þetta eitthvað hagstæðar, en eftir allanga leit þá gefst ég upp á því og ákvað bara að millifæra eins og ég er vön. Búin að vera að þessu í ca. 40 mínútur.
Svo er ég búin að fylla út allt og segji ok, þá koma upp skilaboð sem að segir að það sé bara hægt að millifæra til útlanda á milli 05.00 til 21.00 á daginn. Þannig að ég lít á klukkuna á tölvunni og hún er þá 21.01.
Díses kræst, loksins þegar ég drulla mér í þetta, þetta er ekki uppáhaldið mitt, þá kemur eitthvað svona. Loksins þegar ég er í góðum tíma með þetta. Svo á ég ábyggilega ekki eftir að nenna að gera þetta fyrr en á síðustu stundu.
Annars allt gott héðan. Goggi minn kemur á laugardaginn eftir viku, hlakka mikið til að hitta hann aftur og syngja með honum.
Það er annars nóg að gera, og ég er komin með karateorkuna aftur, sem betur fer. Er alveg að brillera í þessu. Það ætti bara að gefa mér svarta beltið, þarf ekkert að vera að fara í einhver próf.... jé ræght. Someday, someday.... hmmm. held að ég hafi skrifað þetta áður.
Jæja, ég fór í tölvuna til að gera allt annað en þetta, þannig að ég segi bara over and out.
|