Bloggleysi
23/06 2007
Ég biðst afsökunar ef að einhver er þreyttur á þessu bloggleysi mínu, ég þoli ekki sjálf að fólk bloggi ekki, Enda er ég alltaf að kíkja þar sem að ég sit við tölvuna allan liðlangann daginn.
Það er nú svo sem mikið búið að ganga á en þar sem að ég er lítið fyrir að skrifa um nærliggjandi hluti sem að gerast í mínu lífi læt ég lítið um það sagt.
Það sem að er að gerast núna í Mörkinni er að í dag er karatepróf og ég er ekki að fara í það þannig að það er ekkert 2. kyu fyrir mig í þetta skipti. Ástæðan fyrir því er líka eitthvað sem að ég skrifa ekki um hér á bloggið mitt :-)
Ég fer kanski í prófið eftir sumarfríið, vonandi. Markmiðið er ennþá svarta beltið.
Oh, mig vantar ennþá ráðskonu til að taka til og þrífa hérna og garðyrkjumann. Illgresið í beðinu aftast í garðinum er orðið 1 og hálfur metri á hæð. Við hefðum átt að tjekka á þessu áður en við keyptum hús með svona stórum garði. Kræst.
En húsið er mjög fínt, aðeins of lítil herbergi, en staðsetningin er frábær. Á besta stað í Horsens. Allir nágrannar okkar eru þó að skilja. Við erum 6 hús sem að höldum sumarfest saman og tvenn hjón eru búin að skilja á einu ári. Þó að þetta séu bara nágrannar sem að maður talar lítið við nema þarna ved festen þá fær maður sjokk á að heyra svona. Mér finnst alveg agalegt að heyra þegar fólk er að skilja.
En svona er lífið.
Í sumarfríinu skiftum við eldhusinu út. Fengum ofninn, eldavelina, ísskápinn og viftuna í gær. Fengum þetta mjög ódýrt, ca 18.000 fyrir þetta fernt med fragt. pantað á www.lavpriskoekken.dk. Held að þetta fáist ekki ódýrara. Allt í sitthvoru merkinu en thad er sama, ofninn er Brandt, ísskapurinn Gram og svo man ég ekki hitt. Búin að panta borðplötuna í ikea og eigum bara eftir að kaupa sjálft eldhúsið í ikea.
Ég fékk loksins ipod nano. Æðislegt enda er ég alltaf með það í eyrunum. Hvað gerði maður án tónlist?
Ekkert sérstakt núna sem að er í uppáhaldi hjá mér en ég fæ oft æði fyrir einhverju þar sem að ég hlusta ekki á annað. En John Mayer er þó í aðeins meira uppáhaldi en aðrir. Svo mikið af gamalli tónlist eins og Bryan Ferry og Cock Robin. Svo get ég ekki fengið nóg af Heather Nova, hún er bara of góð.
Justin kemur til köben i kvöld, væri geðveikt til i að sja hann en svo for ekki.
Horfði á The Holiday í gær, Timo var ekki heima, enda hefði hann ælt ef að hann hefði séð þá mynd, það munaði engu hjá mér. Glötuð mynd. Eina sem að gerði hana góða var að geta notið þess að horfa á Jude Law og svo yndið mitt Jack Black. Nú hrista kanski margir yfir mínu álíti en mér finnst reyndar Jack Black sætari en Jude Law og hann er ógedslega fallegur. Og svo var gaman að sjá húsið sem að Cameron Diaz átti. Geðveikt hús. Væri til í það.
Sá líka Babel, hún var fín, öðruvísi mynd sem að funkeraði fínt. Ég þoli bara ekki að sjá svona aumingjans kellingar eins og barnapíuna. Pirrandi en maður vorkenndi henni líka. Alveg virði að sjá þá mynd.
Er annars á fullu í seríu sem að heitir Heroes, mjög góð, þrátt fyrir að vera yfirnáttúruleg. Mæli með því.
Jæja, nóg í dag, þarf að henda mér í sturtu og fara niður í karate að horfa á.
Heyrumst.
Blog um hvað?
02/06 2007
Ég er nú alveg glötuð i þessu bloggi. Ekki nógu gott, eða hvað? Oh, skiftir ekki máli. Ég er bara tóm þegar ég ætla að skrifa e-d hérna inn þannig að núna ætla ég að prófa að skrifa bara eitthvað sem að mig dettur í hug.
Ég er með hausverk og það er ekki þægilegt. Þetta eru fráhvarfseinkenni út af of lítilli kaffidrykkju í dag en ég fekk ekki fyrsta kaffibollann fyrr en kl 16. Skellti mér i karate i morgunn og svitnaði eins og svín. Svitna svín? Annars svitnaði ég bara eins og eitthvað sem að svitnar ógeðslega mikið.
Það er svo sem gott nokk, ég er nefnilega að fitna, Passa allavegna ekki alveg i buxur sem að ég hef getað notað hingað til. Skrifar maður buxur med X eða ks?
Ég er búin með season 6 i 24. Er ekki lengur með Jack á heilanum. Hann er nú alltaf jafn cool. Horfi núna mikið á Men in trees, sem að er nú hálf platt, eða hvað maður segir. Dáldið illa leikið og of mikið að reyna að vera sex in the city bara í smábæ í Alaska í staðinn. Enda sama liðið sem að gerir þessa þætti og SITC. Þetta er bara fyrir kvenkynið og stelpur!, gleymið allt um að reyna að fá kærastann til að fylgjast með þessu. Þeir æla. Ég er stundum að æla yfir þessu en verð samt að sjá meira.
Draumavinnan mín, er búin að finna út úr því sko, er að horfa á sjónvarp. Ég ætti að vera í þannig vinnu að ég finn sjónvarpsefni fyrir sjónvarpsstöðvar. Hvað heitir svoleiðis staða? Næst á eftir því væri ég til að vinna við að spá í því hvernig tæknin í framtíðinni mun vera. Ég var helvíti góð í því þegar ég var 9 ára. Held nú að ég hafi montað mig á því áður hérna inni. En þá skrifaði ég ritgerð um gsm og ferðasjónvörp :-)
Og hvernig mun framtíðin líta út? Árið 2017, sem ótrúlega nok er bara um 10 ár.
I have no idea. Djöfull yrði ég góð í þessu maður. Vá.
Allavegna þá er fólk byrjað að lifa sínu lífi í Secondlife. og ég efast ekki um að það muni verða miklu meira og stærra.
Ef að ég að segja eins og Chip Cabelguy (Jim Carrey) :
"There's no end to the possibilities!"
og það segjir svartsýnasta kona í Horsens.
Jæja, eg er að fara til Gitte og Morten að horfa á landsleik, Danmörk-Svíþjóð.
Hafið það gott.
Over and out.
|