Þetta skriðast áfram
31. júlí 2007
Já, þetta kemur með kalda vatninu. Allavegna þá er komið vatn í eldhúsið aftur þar sem að blöndunartækin voru látin í í gær og búið að henda ísskápnum inn.
Þannig að í gær var eldaður matur í nýja eldhúsinu en það vantar ennþá ljós og tengja viftuna og að fúga í flísarnar.
Húsið er ógeðslegt og ég get ekki tekið mig saman til að byrja að þrífa fyrr en allt þetta eldhúsvesen er búið. Það þyrfti að henda öllu út og þrífa hvern krók og kima. Segir maður það ekki annars?
Á morgunn er þó hálf frídagur þar sem að við ætlum í verslunarferð til Árósa, í Ikea auðvitað að kaupa smáhlutina í eldhúsið og föt. Svo ætlum við að borða þar og hygge os, og ég vona að sólin láti nú sjá sig.
Jæja, verð að gera eitthvað. Nóg að gera. Ciao.
Ikea eldhús og ein vika búin.
29. júli 2007
1 vika búin af sumarfríinu og ein vika eftir og svo vinna i eina viku og svo aftur í frí í eina viku. Auðvitað er veðrið búið að vera ömurlegt alla vikuna nema einn dag og svo i dag var það ágætt. En það er svo sem í lagi þar sem að við erum búin að vera að vinna í eldhúsinu síðan snemma á laugardagsmorgunn og það er ekki búið. Ég er að fara að klára að flísaleggja vegginn og svo á eftir að leggja gólfið, sem by the way, frúin í húsinu ætlar að gera. Enginn trúir að ég geti gert það en hve erfitt getur það verið, þetta er pínulítill ferkantur upp á 7,5 m2.
Vantar að láta blöndunartæki í vaskinn og tengja viftuna, láta ísskápinn inn og kaupa ný ljós og borð og stóla.
Ég læt myndir inn þegar eldhúsið er alveg búið.......Eftir ár.
Jæja, best að klára flísalegginguna.
Sumarfrí og Danmörk er að drukkna.....aftur.
22. júli 2007
2 kaflar af bloggi í dag. Of mikið að skrifa til að láta í eitt blogg. Sem sagt fyrir neðan er ein lexía sem að kanski aðrir geta lært af.
Og í þessum skrifuðu orðum fékk ég hugmynd. Ennþá, 2 mínutum síðar finnst mér hún ennþá góð....En hver hún er, fáið þið ekki að vita.
Ég var búin að skrifa eitt blogg í júlí en þegar ég ætaði að geyma þá hvarf allt og eg hef ekki nennt að skrifa síðan. Óþolandi þegar það gerist.
Það er búið að rigna í danmörku næstum í allt sumar, en þessi vika er búin að vera mjög góð með sól, en í dag, sunnudag á allt að fara á flot aftur. Þeir spá stormi og allt að 70 mm rigningu... Huggulegt. En það er ekki við öðru að búast því ég og Timo erum komin í 2ja vikna sumarfrí. Og þegar við erum í fríi, þá er rigning.
Ég er búin með fyrstu season af Heroes, mjög góð, mæli með henni. Hlakka til næstu season. Svo mér til mikillar ánægju fann ég út úr því að ég átti enn eftir að horfa á 5 þætti af Greys anatomy, sem að ég hélt að ég væri búin með en nei. Ég elska þá þætti og lá yfir þessum 5 þáttum á einu kvöldi en nú neyðist ég til að biða þangað til í haust..... En í haust verður veisla. Því Prison Break kemur, Greys... og Heroes... Ég held að 24 komi ekki fyrr en í janúar.
Timo og ég munum ekki tala saman fyrr en um jólin því ég mun bara horfa á sjónvarp og hann á fótbolta. Sem að byrjaði í þessari viku. Jesús. Þvílíku lætin út af svona boltatuðru.
Timo minn átti jú afmæli þann 8. júli, 30 ára. En veislan verður fyrst 25. ágúst. Við hendum upp tjaldi hérna á veröndina og höldum grillveislu fyrir ca. 35 manns. Það mun eflaust vera fínt.
Jæja, ég ætla að leggja mig. Verkefnin bíða mín en ég verð að fá mér smá lúr og svo er ég svo ógeðslega léleg í að skrifa á íslensku það er með ólíkindum. Allar þessar kommur eru að gera út af við mig. Arrg.
Við bloggumst siðar. Adios
Nýtt eldhús og Ragnas fif yfir hvað á EKKI að gera.
22 júlí 2007
Þá er komið að eldhúsinu. Já, gamalt eldhús er að deyja og nýtt að fæðast. Við erum sem sagt að fá nýtt eldhús og byrjuðum í gær að rífa niður og mála. Þannig að núna liggur helmingurinn af gamla eldhusinu okkar úti í kerru, á leið á haugana, og nýja liggur í pappakössum hérna inni í stofu.
Ég byrjaði að mála loftið inni í eldhúsi í gær og í því tilefni þurfti ég að taka lampa niður. Þegar ég var að taka hann niður hugsaði ég að það væri sniðugst bara að taka alla dósina burt, því þá væri audveldast að mála. Vírarnir hengu sem sagt bara niður. Það þýddi að klukkutíma seinna þá opna ég ísskápinn og uppgötvaði að það var ekkert rafmagn í eldhúsinu.
Hmmmm... Skrítið, Ætli ég hafi ekki sprengt öryggið þegar ég var að mála? Ég kom jú til að mála á vírana. Ég fór og tjekkaði á rafmagnstöflunni, en ekkert var að þar. Hmm.... hvað gerir maður þá. Timo hringir í vin sinn og hann sagði að það myndi ábygglega bara koma eftir smá stund.
Ég hélt að það væri ekkert rafmagn á þessum vírum og fer ég að spá í að það væri kanski best að taka vírana lengra niður svo að þeir komu ekki við loftið. Af hverju ég hugsa svona, er óvitað.
Ég upp á borð og ætla að taka í vírinn og auðvitað gat ekki verið meira rafmagn á þessu þannig að ég stóð þarna upp á eldhúsborði og fékk ógeðslegan straum í gegn um mig, ábyggilega skaðað trilljón heilafrumur.
Svo var klukkan orðin 5 og við áttum að mæta í matarboð hja vinum okkar kl 6 þannig að penslinum var sleppt og hent sér í sturtu og svo út.
Ég verð smá drukkin í boðinu en fæ þó að vita að ástæðan fyrir að rafmagnið var farið var út af því að ég tók dósina. Hmmm... segi ég þá verð ég bara að láta hana á, en fyrst á morgunn því svona lagað á maður ekki að gera full.
Svo í morgunn vakna ég og eftir smá stund heyri ég bara dropa falla niður, frekar hátt dropa hljóð. Oh, nei..... Ég inn í eldhús og viti menn audvitað gólfið allt á floti. Þess má geta að frystirinn í ísskápnum hafði ekki verið afþýddur í ár eða svo.
Okey, enginn skaði skeður þó, bara að þurrka vatnið upp og láta dósina aftur á og rafmagnið kom aftur.
Hef ég lært eitthvað af þessu? Vonandi, ef ekki, þá verð ég lesa þetta blogg mitt aftur næst þegar ég ætla að taka niður loftljós.
|