Ég veit ekki hvernig ég fer að þessu10. ágúst
Og því miður meina ég þetta ekki jákvætt með þessari yfirskrift. En fyrir rétt 30 mínutum síðann kom ég heim úr göngutúr með Berthu mína og ákvað að ég myndi eyða þessu sveitta föstudagskveldi fyrir framan tölvuskerminn, hlusta á tónlist, reyna að finna einhverja nýja góða tónlistar menn sem að ég get fengið æði yfir (allar tillögur vel þegnar), láta inn myndir, stússast í heimasíðum og surfa á hinu stóra interneti. Ég er jú ein heima um helgina þar sem að Timo minn er á Skanderborg festival.
Ég ákvað að í tölvukvöldartilefninu að fá mér einn bjór. Ég tek ískaldann bjórinn út úr ísskápnum og helli honum í glas. Mmmm.... gott með kaldann bjór á heitu kveldi. Svo legg ég bjórinn á lyklaborðsborðið sem að hægt er að draga út og ýta inn. Ég finn svo myndavélina til að láta inn myndir og mig vantar snúruna þannig að ég fer að leita í skúffunni í tölvuborðinu. En það er svo dimmt að ég ýti lyklaborðsborðinu inn og akkúrat þegar ég gerði það fattaði ég að bjórinn var á borðinu (glasið rekst i borðið fyrir ofan og veltist) og auðvitað of seint og það var bjór út um allt. Í sjokkinu yfir þessum látalátum í bjórnum missi ég myndavélina úr fangi mínu beint niður í bjórpollinn á gólfinu. En sem betur fer kom ekkert fyrir þessa elsku.
Ég veit ekki hvernig ég fer að þessu að vera svona klaufsk/heiladauð en svona hef ég bara alltaf verið.
Hérna er bjórinn minn. Fljótandi yfir hálft borðið.
Já eins og ég sagði fyrr þá vantar mig einhverja nýja tónlist að hlusta á. Er búin að hlusta of mikið á það sem að ég á en John Mayer er i MIKLU uppáhaldi hjá mér en ég má ekki spila hann of mikið og eyðileggja fyrir mér. Öll lögin hans eru góð, yndislegur tónlistar maður. En ég er mikið fyrir solleiðis tónlist, er frekar róleg í þessu en ég er eiginlega fyrir allt nema Jazz.
Á morgunn fer allur dagurinn í karate. En klúbburinn er að reyna að fá fólk í klúbbinn þannig að á morgunn verður sýning niðri í miðbæ og svo opið hús þar sem að fólk getur komið og horft á æfingu. Ég ætla bara að æfa þar ekki sjens að ég verði með í þessu niðri í bæ. Ætla þó að taka myndir fyrir heimasíðuna, en það er jú ég sem að er að sjá um hana. www.horsens-shotokan.dk Svo um kveldið er sumarfest í klúbbnum. Með sushi og tilheyrandi. Það verður eflaust fínt.
Jæja, smá fyrir og eftir myndir af eldhúsinu. Vantar ennþá smá, eins og að kaupa loftlampa og borð og stóla.
Þessar 2 myndir eru þó teknar þegar við vorum nýflutt inn.
Gamla eldhúsið farið.
Nýja innréttingin kominn inn. (Bjórinn ógurlegi á borðinu)
Flísarnar á veggnum, gólfið og málun á loftinu á ég heiðurinn af. (á þó enn eftir að láta á milli flísanna, sjáum nú til hvenær það verður.
Ekki bara flott? Við erum allavegna ánægð með resultatet.
Jæja, læt þetta nægja í kvöld. heyrumst og góða helgi.
Loksins kom smá sumar5. ágúst
Jæja, sumarið kom um helgina en hve lengi það endist veit ég ekki. En auðvitað kemur það þegar við erum búin í fríi.
Við nýttum daginn annars í að vera í garðinum og ég fékk klippi og sögunar æði og er búin að klippa og saga all mikið af trjágreinum í dag. Ein heil hrúga liggur úti í garði og bíður eftir að vera keyrt á haugana.
Annars vinna á morgunn sem að er ekki beint í uppáhaldi núna. Maður getur alveg vanist því að vera heima að stússast og það á launum. Ekki slæmt það. Þegar ég vinn í lottó einn daginn þá geri ég það. Ef að ég kaupi miða einhvern tímann.
En ef ég inni í lottó myndi ég hætta í vinnunni og fara í heimsreisu í ár. Svo eftir það finna út úr hvað mig langar að gera þangað til ég dey. Draumajobbið er jú ekki alveg komið til mín enn og ei veit ég heldur hvað það er. Ekki það að vinnan mín er alslæm, bara ekki draumajobbið en ágætis jobb þó.
Mér er búið að langa obbosslega mikið til íslands undanfarið. Aðallega til að vera úti á landi í sumarbústöðum og útilegum. Svo er all mikið að pirra mig skatturinn hérna, ég þoli ekki að maður þarf að borga svona helv... mikið í skatt. En út á kemur að heima er flest allt dýrara og fólk virðist vinna of mikið. Því nenni ég ekki. Meira frí, meiri pening :-)
Jæja, ég er bara að reyna að fylla í eyðurnar hérna. Bíða eftir að síminn hringi því þá fer ég að hitta vinkonur mínar hérna, ein er í heimsókn frá Íslandi og hin er að flytja. Ó, já, það er svo hinn ókosturinn við að kynnast íslendingum í útlöndum. Allir flytja. Best að kynnast ekki fleiri íslendingum..... Maður ræður því kanski ekkert.
God arbejdslyst. Vi ses.
Bara þreytt
2. águst.
æ, ég get bara ekki tekið til hérna og þrifið. Andinn er alveg búinn að yfirgefa mig. Ég tek þetta á skjaldbökuhraða. Ég er líka orðin svo helvíti þreytt á mínum heimskupörum. Ég veit ekki hvað ég á að gera til að losna við þetta. Á ég að lita á mér hárið dökkt eða?
Í fyrradag sem sagt þá vil ég láta nýju uppþvottavélina í gang í fyrsta sinn. Ef að þið vitið það ekki þá á að láta salt í uppþvottavélar. Það átti að vera á milli 1 1/2 og 2 kg salt og ég átti bara 1,250 kg þannig að ég labbaði út í búð til að kaupa meira salt en það er bara til gróft salt. (Timo var með bílinn þannig að ég gat ekkert keyrt til að kaupa þetta salt) Þannig að ég kaupi gróft salt, fer heim og reyni að gera það aðeins fínna í svona Jamie Oliver apparati. Svo helli ég saltinu í og starta vélinni. Mér lá svo á að starta þessari uppþvottavél.
Daginn eftir tek ég úr henni og er ekki alveg nógu ánægð, allt er svona hvítt og ljótt. Ég kíki inn í velina þá hafði ég gleymt að láta lokið á þar sem að maður lætur saltið inn. Ég er með hausverk út af þessu allan daginn í gær og dreymi um þetta og allt í nótt. Svo held ég að það vanti meira salt út af því að ég gleymdi að láta lokið á, þannig að ég kaupi meira salt og helli í, þó bara hálfu kg.
Straks eftir það fer ég svo að láta hreinsiefni og dót inn í skáp sem að voru í bala og getiði hvað ég finn. 2 kg af salti og það specialt til að láta í uppþvottavélar. Ég er komin med nóg af salti.
Sama kvöld og ég var að stússast í þessu salti þá lagaði ég mér hálfa könnu af kaffi og kveikti á vélinni en gleymdi að láta könnuna undir þannig að þegar ég fór inn í eldhús að ná mér í kaffi var allt eldhúsborðið, nýja eldhúsborðið, að drukkna í kaffi.
Ég verð nú bara að segja það að þegar ég fer í frí þá verð ég heiladauð, og því lengur sem að ég er í fríi því verra verður þetta. En þetta er nú kanski ekkert endilega bara þegar að ég er í fríi, maður tekur kanski bara minna eftir svona í vinnunni. Eða hvað??? hmm....
En ég er þó búin að leggja gólfið á eldhúsið og það án vesens. En ég héld að ég hafi skorið mig ca. 3 sinnum á puttunum síðan við byrjuðum á þessu eldhússtússi og svo er ég búin að brenna mig og reka hausinn í hluti og er endalaus öskrandi og blótandi.
Jæja, ætli ég verði ekki að halda áfram að þrífa þessa svínastíu. Vonandi án þess að ég slasi mig.
Vi ses.
|