Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
December 2007
November 2007
Oktober 2007
Sept 2007
Agust 2007
Júlí 2007
Júní 2007
Maí 2007
Apríl 2007
Mars 2007
Februar 2007
Januar 2007
2006
2005
2004

Já já.

25. september 2007

 

Er bara að láta tímann líða þangað til ég á að fara i karate. Gæti verið að nýta tímann og gera eitthvað sem að myndi gagnast heimilishaldinu hérna mikið, en ég nenni því ekki. Er þó búin að gera eitthvað gagnlegt í dag. Lét fúgu á milli flísanna inni í eldhúsi, en ég byrjaði á því á laugardaginn og var að því í 2 tima og svo 5 tíma á sunnudaginn og svo 1 núna og ég náði ekki að klára því mig vantar meiri fúgu. :-( og það vantar svo lítið upp á. En þetta lítur helvíti vel út.

Svo erum við búin að kaupa eldhúsborð og stóla og loftljós yfir borðið, þannig að þetta er allt að smella saman.

 

Er alveg búin að vera pirruð í dag. Út af vinnunni. Vil þó ekki fara nánar út í það ef að einhverjum dytti nú í hug að þýða þessa færslu mína yfir á dönsku. En það er bara stundum ógeðslega pirrandi að vinna þarna út af valdasjúku fólki sem að vilja ráða öllu. Arrrg....

 

Anyways. Var í köben síðustu helgi, frá laugard. til mánudags. Fór í heimsókn til hrafnhildar vinkonu og fór svo á fyrirlestur um Google mini og google search appliance á manudeginum. Mjög interessant en veit ekki hvort ég geri eitthvað meira í sambandi við það.

 

Við lentum aldeilis á fyllerii í köben ég og Haddy. Shit hvað við vorum fullar. Haddy var að byrja í skóla sem að heitir Niels Brock og það var skólaball, með live tónlist. Nik og jay heita þeir og eru mjög vinsælir meðal ungdomsins hér í Danmörku. Ég persónulega er ekki fan.

 

En allavegna, ég var búin að ímynda mér svona ball á stærð við menntaskólaböllinn í gamla daga, en hold da kæft man, það  voru örugglega 5000 manns þarna í risa húsi. Ef ekki fleiri, og ég og Haddy vorum elstar. Þegar maður fer á svona dæmi rennur upp fyrir manni hve "gamall" maður er. Sem að mér finnst ekki sjálfri.

 

Bara að maður hefði haft þá vitneskju eða reynslu þegar maður var í menntó og jafnvel þegar maður var ennþá yngri, og sem að  maður hefur nú.

Hmm....ekki að ég sé eitthvað að ergja mig mikið á því en jesus hvað maður var mikið fífl oft á tíðum. Ég ætla allavegna ekki að fara að koma með einhver dæmi því þá get ég skrifað standslaust þangað til 2010 og endað sem þunglyndissjúklingur :-|

 

Apropo, menntaskólinn, Ég væri svo mikið til i að fara á reunion. Það var víst eitt fyrir nokkrum árum en ég fór nú ekki til íslands út af því. Fékk heldur ekki indbydelse :-)

Var að reyna að finna einhver blogg fra gömlum menntaskóla kunningjum en fann þó ekki mikið. Ef að þið vitið um einhver endilega gefið mér slóðina. Árin 1991-1996.

 

Ég er of forvitin um fólk og finnst alveg obboslega gaman að heyra hvað fólk er að bralla. Ein vinkona min finnst ég vera forvitnasta manneksja sem að hún hefur kynnst og vil ég alveg meina að hún hafi rétt fyrir sér. Ég er ein af þessum óþolandi manneksjum sem að spyr og spyr um þig og þitt þegar ég hitti þig og vil ekkert vera að tala um mig.  En auðvitað finnst mér það ekkert óþolandi. Kanski ætti ég að verða interviewer. :-)

 

Jæja,  ætla að fara að taka mig til fyrir karate verð sótt eftir 10 mín.

 

Vi snakkes ved.

 

Hej hej.

 

 

Ný tónlistarsíða

05. september 2007

 

Langar bara að láta tónlistaráhugafólk vita af nýrri síðu (fyrir mér hún ný) það sem að að maður getur búið til playlista og hlustað á allskonar tónlist án biðar og besværs.

 

Slóðin er www.deezer.com

 

Mæli með John Mayer og Heather Nova. En ég er farin í leit að einhverju nýju, fyrir mér nýju.

 

Kaldur september

04. september 2007

 

Jæja, bara komin september og sumarið bara búið. Síðasta ár var sumarið frá apríl til oktober hér í mörkinni en núna í ár var sumarið kanski í eina viku í júni. Annars er ekkert búið að vera sumar. Bara skítakuldi. Hitastigið á morgnanna hérna núna er það sama og var í janúar í ár. Bilun. Veðrið er gallað. En hvar á maður að kvarta?

 

Síðan síðast er svo sem ekkert sérstakt búið að gerast hjá mér. Ég er ekki búin að fúga á milli flísanna í eldhúsinu. og það vantar ennþá loftljós og borð og stóla.

Jú, hvað er ég að segja, það er eitthvað búið að gerast síðan síðast. Við erum búin að vera á camping i nokkra daga í ágúst og ákváðum að fara að veiða einn daginn í Juelsminde Sö. Við komumst að því að það var ekki hægt að hafa Berthu með, hún vildi bara út í vatnið og elta öngulinn þegar maður kastaði í.

 

Ég var heldur ekki sérlega vinsæl því ég náði að festa 2svar sinnum þannig að ég þurfti að slíta línuna. Síðast þegar við fórum fyrir ca. 3. árum síðan náði ég að brjóta stöngina í æsingi mínum er ég fékk á krókinn, og einhvern vegin held ég að ég sé ekki velkomin næst þegar Timo langar í fiskitúr. En mér er þó sama því að ef að maður hefur farið í almennilega veiði á Íslandi þá er þetta auðvitað bara prump.

 

En Timo veiddi þó einn risafisk. Urriða held ég. 60 cm og eitthvað mörg kílo, vorum ekki með vigt.

Ég prófaði að grilla hann um kvöldið en hann bragðaðist auðvitað af drullu þannig að hann fór beint í ruslið. Sömu söguna er að segja með nýja bolinn sem að ég var í, því ég náði að dífa brjóstinu á mér í helv... safann sem að kom út frá þessum fisk að hann angaði af fiskifílu og sama hvað ég reyndi að þvo þá fór lyktin ekki úr.

 

Allt í allt þá fer ég aldrei aftur að veiða í þessum drullupollum hérna í Danmörku. Ég vil fara í villiveiðina á Íslandi.

 

Svo héldum við útipartý hérna 25. agust, afmælið hans Timo. Það var voða fínt og fólk varð fullt fyrir utan mig. Ég ákvað að vera edrú og sem betur fer. Allt of mikið vesen að halda svona partý. Geri það aldrei aftur nema þá að ég ráði fólk í öll störf.

 

Svo er jem & fix fest á laugardaginn og ætla ég líka að halda mér edrú þar og bara keyra heim. Nýjasti stíllinn, bara vera edrú. En svo næstu helgi eftir það þá fer ég til Hrafnhildar í Köben og ég held ekki alveg að ég geti verið edrú þar. En það er líka almennilegt tilefni að fá sér aðeins bjór. Getum við hellt honum niður saman :-) í klaufamennsku okkar.

 

Jæja, ég þarf að koma mér í sturtu og sinna heimilinu.

 

Hafið það gott, Ciao.