Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
December 2007
November 2007
Oktober 2007
Sept 2007
Agust 2007
Júlí 2007
Júní 2007
Maí 2007
Apríl 2007
Mars 2007
Februar 2007
Januar 2007
2006
2005
2004

Halloween...

31/10 2007

 

Dagarnir styttast og styttast og verða myrkrari og myrkrari. Nú er dimmt kl 18 af því að klukkunni var breytt á sunnudaginn en þó aðeins bjartara á morgnanna en það verður bráðum búið líka. En þið þekkið þetta.

 

Dáldið þreytt í dag, Timo að vinna og ég að bíða eftir að maturinn minn verði tilbúinn.

 

Fredagaften i oktober

26/10 2007

 

Ég sit fyrir framan tölvuna i kveld. Timo er að horfa á Apaplánetuna í sjónvarpinu. Ég neita að sjá þá mynd. Ég held að það skylst slæmra minninga úr barnæsku er ég sá þær myndir. Voru þær ekki 3? En það liggur við að ég sé ennþá með martraðir um þessa ógeðslegu mannapa.

 

Tengdó voru í mat í kveld. Voða fín nautasteik í matinn. Eftir að við vorum öll búin að fá okkur kjöt á diskinn setti Timo restina af kjötinu inn í ofninn aftur því það var aðeins of rautt. Svo hálftíma seinna spyr mamma hans af hverju það sé ennþá kveikt á ofninum. Við höfðum gleymt öllu um þetta kjöt og það var aðeins of svart þegar við tókum það út. Gott að við vorum búin að borða. En brunarústirnar fengu þó að fara inní ísskáp, kanski að það sé bara brennt utan á.

 

Á morgunn er afslutningsfest í fótboltanum hjá Timo, árlegur viðburður. Alltaf voða gaman og allir blindfullir og live tónlist sem er frábært. Reyndar bara tveir á gítar en það er alveg brilljant fyrir stemninguna. 

 

Já, danirnir töpuðu jú. Allir danskir fótbolta áhugamenn miður sín yfir þessu.

 

Svo fara jólín að skella á. Jóladót að koma í búðirnar og solleiðis. Það verður gaman að sjá hvernig jólaæðið verður í sólinni í Flórida þegar við erum úti. Þó að jólin hafa ekki verið mitt uppáhald síðan ég var krakki.

 

Ég er búin að fara í klippingu og litun. Fór á hausinn í leiðinni. Klippikonan var bara mega undarleg. Frekar eldri kona, ekki svona ung og hress. Talaði og hreyfði sig eitthvað svo undarlega. Eins og að hún væri alveg tóm inní. Svo þegar hún var að blása á mér hárið sló hún hárblásaranum ca. 3svar í hausinn á mér. Ég er svo "konfliktsky", veit ekki hvað það er á íslensku, að ég sagði ekkert við hana, en ég ar að deyja úr hlátri á meðan þessu stóð.

 

Svo þegar hún var að klippa mig kom eitthvað svona fifty's lag í útvarpinu og hún byrjar að syngja með og allt var ómögulegt við hennar söng. Hún reyndi eitthvað að redda þessu en það tókst ekki. Mig langaði svo að hlægja en gat það svo sem ekki beint upp í andlitið á henni. Ég fer allavegna ekki þangað aftur.

 

Jæja, komið nóg. Goda helgi. Over and out.

 

Svartsýnt fyrir danina

13/10 2007

 

Úff, ekki lítur það vel út núna á 50ustu mínútu i leik Dana og spánverja i undankeppni EM í fótbolta. Staðan er 0-2....

 

Timo er á leiknum með Gitte og Morten og fleirum en ég ákvað ekki að fara en var þó með þeim fyrir leikinn. Það verður lítið fjör ef að danirnir tapa því á koma þeir ekki með til EM á næsta ári og ekki verður það fjör heldur.

 

Í staðinn fyrir að vera á fótboltaleik með liðinu, sit ég heima og passa tvö athyglissjúka hunda, hlusta á lounge musik á Deezer.com og horfi á leikinn í sjónvarpinu með öðru auganu.

 

Ég ákvað í dag að halla huganum aðeins að lounge tónlist, mér finnst það helvíti cool og jú eru ekki ófá góð lögin sem að poppa upp á deezer. Alltaf gaman að finna eitthvað nýtt að hlusta á, enda þarf ég bráðum á nýjum playlista að halda í ipodinn minn, er alveg búin að nauðga hverju einasta lagi á honum. Vil líka bæta því við að ipodinn minn er sú besta fjárfesting sem að ég hef á ævi minni gert. Það er ekki sjaldan sem að ipodinn minn kemur ekki með mér í göngutúrinn, í bæinn eða þangað sem ferðinni er heitið.  

 

Vuuuu.... er að ná í nýjasta þáttinn af grey, alveg að verða búið þannig að eftir ca. 20 mín get ég horft á hann. Gúddí gúddí.

 

Jæja, best að fara að finna mér eitthvað gott og gómsætt til að njóta á meðan danirnir tapa leiknum og bíða eftir að Timo minn komi heim, mjög ánægður með árangurinn..... hahahahahah.

 

Góð helgi það sem eftir er af henni.  

 

Same old, same old

09/10 2007

 

Alltaf sama sagan með mig þegar ég vil skrifa hérna inn þá dettur allt út úr hausnum á mér og ég veit ekkert hvað ég á að skrifa. Svo þegar ég er úti að labba eða eitthvað þá dettur mér fullt í hug sem að ég gæti skrifað hérna inn.

 

En það sem er helst í fréttum af mér að ég verð bara feitari með tímanum. Er komin með bumbu og appelsínuhúð, og er eiginlega með ógeð á sjálfri mér, útlitslega séð. Svo eyði ég miklum tíma í að HUGSA um að koma mér í klippingu og litun en það gerist ekkert.

 

Vandamálið í sambandi við að fara í klippingu og litun er tvennskonar.

1. Maður þarf að taka frí úr vinnunni til að komast í það á virkum dögum eða eyða næstum heilum laugardegi í þetta

2. Það er svo helvíti dýrt að fara í klippingu og litun. Þetta er geðveiki. Ég held að ég hafi nú brokkað mig yfir þessu áður en jeminn góður, ég er bara of nísk.

 

En aftur á móti verð ég að bíta það í mig því ég er að deyja úr ógeði af hárinu mínu. Ég er ábyggilega flottari sköllótt. Kostar ekkert að raka hárið af en ég ætla þó að reyna að finna tíma á laugardaginn á ódýrustu stofu bæjarins.

 

Noh, nóg um það.

 

Annars er ferðalag fram undan. Er henni heitið til Flórida þann 17. nóvember i 2 vikur. Það verður voða næs og við ætlum að keyra út um allt Sunshine stateið. 

 

Juuu... ég var næstum búin að gleyma. Greys anatomy og Prison break er byrjað aftur. Ekki í sjonvarpinu en í amerikunni og eg er búin að sjá 2 fyrstu þættina í Grey og einn af prison break. Geggjad, eg eg tek grey fram yfir prison break. Er bara alveg að lifa mig inn i þetta.

 

Jæja, Time is up. Feita búðar pizzan mín er tilbúin best að fara að borða.

ciao