Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
2006
2005
2004

 

 

Kun fantasien sætter grænser når det drejer sig om Ipod tilbehør

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bara draumur

 

Snillingur

 

 


Where the Hell is Matt? (2008) from Matthew Harding on Vimeo.

 

http://www.wherethehellismatt.com/about.shtml 

 

 

 

Ekta islenskur húmor, alveg að fíla þetta

fös, 20. juni

 

Þetta er bara fyndið en samt svo ófyndið. Brilljant.

En lagið er alveg að gera þetta, maður getur ekki annað en brosað. Takk maja pæja.

 

 

Próf og EM

fim, 12. juni

 

Já, ég er að fara í munnlegt próf í markaðsfræði eftir einn og hálfan tíma, og til þess að róa mig niður og af því að það er EM í fótbolta þá verð ég að láta mynd af fallegsta manni í heimi hérna inn. Þá á ég smá í honum, hann bara veit það ekki.

cristiano ronaldo

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Honestly Ronaldo. Can you be more perfect?

 

Sumarið er komið til DK

Fös, 30.mai 2008

 

Sumarið kemur fyrir alvöru um helgina segja veðurmennirnir. Maí er þó búinn að vera ótrúlega næs, með sól næstum því allan mánuðinn. Allir orðnir voða brúnir og smá sætir.

 

Ég fór í bæinn áðan eftir vinnu og keypti mér föt. Ekkert merkilegt við það fyrir utan að það gerist bara svo sjaldan. En ég er bara búin að vera að kvarta og kveina ínni í höfðinu á sjálfri mér fyrir fataskápnum mínum, alltaf að æla yfir fötunum mínum að ég ákvað í þessari viku að gera eitthvað við þessu og það á föstudaginn eftir vinnu (sem sagt í dag) myndi ég fara í H&M og versla mér föt. Mjög gott trick því nú er ég búin að vera að hita mig upp alla vikuna til að fara að kaupa mér föt og það virkaði því að ég keypti mér föt fyrir ca 1500 kall eda ca. 6 boli og eitt pils, og svo nærföt og sokka.

 

Það er nefnilega yfirleitt þannig að þegar ég loksins fer í bæinn og ætla bara að kaupa mér eitthvað það finn ég ekkert og kem tómhent heim. Trickið fyrir mig líka er að fara þegar það eru fáir í bænum. Ég get ekki verlsað og skoðað föt þegar að það eru margir í búðinni.

Já, Ragna fashion freak eða þannig, fékk loksins ný föt og getur farið áhyggjulaus í afmæli á morgunn. En hún ætlar þó að reyna að vera aðeins meira móðins en reynst hefur verið undanfarið. Svona til að bæta upp á það að líkaminn er að taka á sig annað mót en hefur verið á yngri árum.

 

2 afmæli á morgunn, 3 ára afmæli frænku Timo kl 10 og svo 30 ára afmæli vinar Timo. Svo fer sunnudagurinn í timburmenn. Straks núna farin að kvíða fyrir því og ég veit hvað ég á ógeðslega eftir að sjá eftir því að drekka,  En ég ætla samt að gera það því það er bara of langt síðan að ég fór á djammið og sletti úr klaufunum. Fáranlegur málsháttur, sletta úr klaufunum.  Hverjum datt þetta í hug? og hvernig? Af því að beljurnar voru alltaf blautar á klaufunum og hristu þær svo að það slettist úr þeim og beljurnar litu út fyrir að hafa gaman að þessu að einn bóndinn sagði við konu eina er hún spurði hann hvort að beljurnar væru að dansa:  "já, beljurnar eru að sletta úr klaufunum, ha ha ha" og eftir það er það kallað að sletta úr klaufunum ef að maður fer út að djamma? Kanski að það standi eitthvað um þetta á wikipedia.

 

Eg er ennþá miður mín yfir að vera ekki komin með miða á John Mayer, þetta er alveg agalegt. En ég er þó viss um að ég muni sjá hann spila einn daginn. Sama með nýja idolið mitt, David Cook, nýjasta American Idol. OMG hvað hann er æði.

 

Guð já, ég horfði loksins á úrslitin frá American Idol á þriðjudaginn og naut þess í tætlur, elska þetta show. En haldiði ekki að allra heilagasta goðið mitt hafi ekki komið og spilað síðasta lagið í showinu. Ég er auðvitað að tala um George Michael. Það getur enginn söngvari slegið þessari rödd við, ég held að hann geti ekki komið upp fölskum tóni. Hann spilaði Praying for time og Paula og ég hágrenjuðum. Juuuu, hann er dýrð.

Svo vann auðvitað yndið mitt, mr. Cook. Ég er búin að vera með æði fyrir honum síðan hann tók Billy Jean i einum af þáttunum, Chris Cornell útgáfuna. Þá var ég seld.

 

Bróðir minn kom í heimsókn um síðustu helgi og í því tilefni fórum við á sunnudaginn upp á Himmelbjerget. Ég og hann löbbuðum upp í turninn þar, voða fínt og allt það. Svo var ég ekki að skilja af hverju eg var að drepast úr harðspennum í lærunum á mánudaginn fyrr en ég fattaði að það var út af þessum tröppum.

Hallo, ég er að tala um 50 tröppur, þetta var ekki neitt. Bara í engu formi enda ekki búin að fara í karate síðan í febrúar ;.(

En það var nú ástæða fyrir því, það var ekki að ég hætti með vilja,bara svo að það sé á hreinu. En svo þegar maður er loksins klár til að byrja aftur þá er aftur á moti dáldið erfitt að koma sér á æfingu. Enda ekki búin að því enn.

 

Hey já, ég er að gleyma aðalfréttinni maður, Timo minn er búin að gera carreerchange. Hættur í prentuninni og byrjaður að vinna sem "fóstra", eða pædagogmedhjælper i SFO. eins og það kallast herna. Hann er þá að sjá um börn á 5 og 6 ára aldri fyrir hádegi og svo 10, 11 ára eftir hádegi. Svo ef að hann fílar þetta, þá fer hann í Pædagog nám í febrúar og mun það taka 3 og hálft ár. Svo þurfum við í því tilefni fara á námskeið í að spara og kaupa rétt inn. Spennandi.

Hann nennti ekki að vera prentari lengur, var kominn með æluna upp yfir haus í meir en ár núna og sló loksins til.

 

Jæja, ég ætla að fara að njóta restarinnar af þessu kveldi í sjónvarpsgláp.

 

Góða nótt og góða helgi.  

 

Nota hjálminn....

13. mai 2008

 

Ja, ja, ekkert blogg i manud. Eg er nu eiginlega bara hætt thessu og spurning hvort sidan fari ad leggjast nidur.

 

Thad hefur þó ekki gengið áfallalaust á hér í mörkinni en það mesta verður þó óskrifað. Við höfðum þó upplifelsi í gær, ég og Timo minn, eða aðallega hann þar sem að hann var uti að hjóla með vini sínum og keyrt var á hann. Timo flýgur af hjólinu nokkra metra og lendir á götunni. Hann var slapp ótrúlega vel með margar skrámur á kroppnum, eina kúlu á hausnum og svo er honum frekar illt neðst í bakinu og er rúmliggjandi  núna og étur verkjapillur.

Ég nátturulega bjóst við beinbrotum og látum en sem betur fer slapp hann með þetta.

 

Frekar vont að fá hringingu um að kærastinn sé á leið á slysastofuna eftir að einhver keyrir á hann.

 

Annars er veðrið hérna búið að vera eins og draumur. Sól og sumar og allir ordnir svartir. Við erum á fullu i garðinum að breyta og bæta en verður eitthvað sett á standby núna.

 

Nóg að gera og vona að veðurguðirnir verða góðir við okkur í sumar.

 

Hafið það gott,

 

ciao.

 

Fullt búið að gerast

30. mars 2008

 

En ekki allt kemur fram hér. Hahahha..

 

En íslandsferðin er sett og keypt. 26. júli - 2. ágúst en ég fer heim 5. ágúst. Verðum í sumarbústað í munaðarnesi i einhverja daga og svo redda ég gistingu einhversstaðar í borginni það á milli. Þetta verður snilld. Hlakka voða mikið til að sýna tengdó landið MITT fagra.

 

Maður heldur auðvitað sem íslendingur að maður eigi Ísland. Þrátt fyrir að hafa búið erlendis i 9 og hálft ár.

 

John Mayer, yndið mitt er að koma til DK og halda tónleika 20. júni og eg fékk ekki miða. Ég er miður mín og ég verð að redda mér miða. Ég er að segja það að þessir tónleikar eru mér jafn mikilvægir og tónleikarnir voru med Gogga minum.

 

En annars vegar ætla ég á tónleika með manni nokkrum sem að heitir Yoav. Nýjasta hittið í DK í dag. Enda er hann snillingur. Verða þeir tónleikar í Árósum, 5. júni.

Hann er mest í spilun á Ipodnum mínum ásamt dönsku spleen united og tinu dickow.

 

Jæja, er bara þreytt á sunnudagskveldi.

Hafið það gott.

 

Möguleg Islandsferð i sumar

veit ekki hvada dagur er i dag en thad er sunnudagur i mars

 

Eg verð að losna við pirring minum herna, þvi eg verð að lysa oanægju minni yfir þeim moguleikum a fa upplysingar um gististadi a islandi a netinu. Arrg.... Eg ætla kansi að koma til islands i sumar og taka tha tengdo med og er ad reyna að finna ut ur thessu og langar mig ad fara nordur. I thvi tilefni fer eg ad leyta a netinu ad ODYRUM gistimoguleikum þar og eg verd bara pirrud.

Þær siður sem ad koma upp a Google voru flestar gerðar þegar internetid var fyrst ad koma til islands fyrir 11 arum sidan og það er næstum enginn sem ad upplysir verð, bara hotelin gera það og þau eru svo dyr að maður droppar þeim algerlega, og varla fer eg ad tjalda med folki sem er ad nalgast 70 arin.

 

Bad bad bad..... Nu er eg svo pirruð ad eg er ad kafna.

 

En eg a eftir ad nefna thetta vid tengdo thannig ad thad er ekki vist ad vid komum. Thad kemur i ljos. Ef ad thu getur reddad odyrri gistingu a nordurlandi i viku 30 i sumar sendu mer mail. :-) Það versta er ad thad er enginn sem að les thetta thannig að auglysinga ahrifin eru ekkert of god :-)

 

Hey, fann eina goda sidu. www.icetourist.is

 

Akið varlega

9/3 2008

 

I dag er sunnudagur og er helgin bara buin að vera hin finasta. Timo helt karlaparty herna i gær og var mer þvi hent ut ur husi og for eg til Gitte vinkonu minnar og sloppudum vid af fyrir framan sjonvarpid og atum okkur fullsaddar i mat og nammi. Maðurinn hennar var her i partyi og svaf her þannig ad eg svaf bara heima hja Gitte.

 

Eg lenti i sma upplifelsi i dag, sem að er svo sem ekkert stormal, þar sem að eg er ekki nein dramadrottning en þo er þetta buid ad sitja i undirmedvitundinni minni i allann dag.

 

En það var nefnilega svoleiðis að eg var að keyra, ein i bilnum minum og það var rigning. Litil trafik og agætis dagur bara. Svo kem eg að hringtorgi nr eitt og svo hringtorg numer 2 og eg keyri bara eins og eg er vön, en eg er þo byrjuð að keyra svolitid hraðar en eg hef gert i gegn um tiðina. Svo a þriðja hringtorginu, þa allt i einu, missi eg stjorn a bilnum. Afturendinn a honum byrjar ad skauta til hægri og eg reyni ad stjorna bilnum svo ad eg fari ekki ut af og svo se eg bara vegriðið beint a moti mer, mjög nalægt, og eg hugsa bara "Shit, er eg virkilega að fara að klessa a þetta" og reyni að beygja til vinstri til að forðast þess og næ þvi sem betur fer, en billinn fer upp a kantinn vid vegriðið þar sem ad er sma grasstubbur og svo stefnir billinn beint a eyjuna sem að er við einn innganginn til hringtorgsins og þa hugsa eg bara "hvenær næ eg taki a helvitis bilnum" og svo allt  i einu nadi eg taki a honum aftur og nadi ad beina honum aftur a gotuna og svo gat eg bara keyrt afram.

 

Það munaði svo litlu að eg klessti a og sem betur fer var engin trafik a eftir mer eða neinn a hjoli þarna. Það kom einn bill a moti vid innganginn sem að sa þetta en þar sem að ekkert gerðist þa keyrði eg bara afram og var bara agndofa yfir þessu.

 

Eg hef aldrei verið svona nalægt ad klessa a fyrr og bara tilhugsunin um að eg hefði rustað bilnum og jafnvel sjalfri mer, þar sem að þetta var agætis hraði sem að eg var a, finnst mer ohugnaleg.

 

En allavegna þetta kenndi mer að taka það rolega þegar eg að keyra og vera ekki að gefa i of mikið. Betra er seint en aldrei.

 

Jæja, kallinn minn er að kalla a mig, vill horfa a biomynd med mer. Hyggeligt, ikke :-)

 

Bæjo og akið varlega

 

Fyndasta sem ad eg hef sed lengi

 

 

 

 

 

Laugardagur i rigningu.

23/2 2008

 

Vetur konungur hefur ákveðið í  ár að koma ekki til Danmerkur. Það kom snjór í 4 klukkutíma einn dag i december og eftir það er bara búið að vera yfir frostmarki og rigning. Ágætt, fyrir utan að mig vantar frost  svo að hundaskítuinn út í garði frosni svo að það sé auðveldara að taka hann upp.

 

Timo minn er í Noregi í skíðaferð með vini sínum. Ástæðan fyrir að ég fór ekki með verður ekki skrifað um hér, en juuu hvað mig langar á skíði.

Í staðinn fór ég með tengdó til Herning i dag á árlega ferðamessu og ég kom heim með fullann poka af bæklingum með ferðum út um allan heim. Langar þó mest til Japans en það var ekkert um Japan þarna. Danir eru greinilega ekkert fyrir að fara þangað. Timo vill ekki til Japans þannig að ef að þér langar til Japans þá er ég klár.

Annars er margt í myndinni og bara spurning um að byrja að plana.

 

Mér er þó búið að langa all mikið að fara að  kíkja heimog hitta fólk. Hefur það fyrst nú, 9 árum eftir að ég flutti runnið upp fyrir mér, hve marga vini og kunningja maður hefur "misst" síðan maður flutti. Og maður mun jú aldrei vita hvernig það væri ef að ég hefði aldrei flutt út. En ég er þó mjög ánægð yfir að  ég flutti. Hefði aldrei viljað breyta því.

 

Þetta kemur í bylgjum hjá mér. Ég dreymdi um reunion um daginn og ég get svo svariða að ég held að ég hafi dreymt um hvern einasta mann sem að ég þekkti í "den", á þessu reunioni.

 

Ég er svo búin að uppgötva facebook. Ég hef nú ekki verið mikið fyrir að fara yfir á þetta æði um myspace og facebook en mér finnst ekki vera talað um annað en  facebook þannig að  ég varð að tékka þetta og viti menn, kellinginn orðin húkkt og er alltaf að kíkja inn og leita að fólki. Það er líka kanski þess vegna að ég er búin  að vera svo mikið að hugsa til Íslands.  Alveg brilljant heimasíða, ein af þeim sem að maður hefur ergt sig á því af hverju maður startaði þessu ekki :-)

 

Ég er að fara að setjast á skólabekkinn aftur. Þó bara einu sinni i viku. Ég er að fara að byrja á markaðsfræði námskeiði. Það verður fínt. Hlakka voða til. Sjá hvort að ég verði eitthvað gáfaðarðri af því.

 

Ég vil endilega mæla med danskri hljómsveit sem að heitir Spleen United. Gáfu þeir út nýja plötu um daginn sem er alveg brilljant. Ódýrt að kaupa musik á bilka.dk. kostar undir 100 dkk en yfir 100 kr á öðrum síðum.

 

Jæja, nú er þetta gott.

 

Hafið það gott og vonandi hitti ég einhvern bráðum.

 

 

Föstudagur i rigningu.

22/02 2008

 

Föstudagur i dag og eg a ad fara til tannlæknis a eftir. Er ekki ad nenna þvi.

 

 

 

Til lykke Danmark!

27. januar 2008 kl 20:02

 

Og de fik guldet!

Til lykke!

 

Store håndbolddag

27. januar 2008

 

Nåh, er ikke tid til at jeg beriger min side med et skriv? Specielt når det drejer sig om at nu er det kun 2 timer indtil finalekampen mellem Danmark og Kroatien starter. Danskerne skal bare vinde guldet og helst uden drama så jeg ikke dør mens jeg ser kampen. Selvom det kan være sjovere men så må det ikke være mere end det var i går, mod Tyskland. Puha.

 

Stormen i Danmark har lagt sig og solen kigger lidt frem i dag. Vi tilbragte weekenden i Fåborg, i ren afslapning og hygge. Meningen var at vi ville bruge lørdagen med at gå rundt i Odense men på grund af vejret droppede vi det og kørte en tur til Svendborg i stedet for. Vi tog Bertha med og i Svendborg gik vi rundt et eller andet sted på et grønt område hvor der var en lille sø med masser af ænder i der svømmede rundt.

Bertha er altid hyper når hun er ude at gå og hun hader fugle så hun havde svært med at holde sig på bakken af søen. Men hun gjorde det dog. I første omgang.

Når vi gik tilbage til bilen, kunne hun ikke lade være og gik lige ud i vandet for at få fat i en af de ænder men hun troede at hun kunne gå der ud, lige som på stranden, men hun tog fejl og sank fuldstændig ned i vandet. Så kommer hun endelig op med hovedet og tænker at hun må vist hellere op af denne her andedam. Som hun gjorde men når hun havde rystet det meste af vandet af så var hun klar til at springe i søen igen.

 

Jeg er helt oppe at køre på grund af den kamp og er superrastløs så jeg tror jeg vil videre og finde noget at lave som kan forkorte tiden indtil den starter.

 

GO DANMARK!!!!!