18. Oktober 2008
Ég held að bloggið sé dautt. Það er að segja mitt blogg. Ég hef reynt nokkrum sinnum að skrifa hérna inn en ekkert kemur fram á skerminn.
Það sem lífið snýst um hér hjá múminfamiliunni hér í Horsens er akkúrat það sama og fyrir 2 árum síðan. Engar breytingar fyrir utan að Timo minn er sestur á skólabekkinn. Eftir 12 ár í prentarabransanum fékk hann æluna upp í háls og byrjaði í "pædagog". Veit ekkert hvað það þýðir á íslensku.
Ég er bara ennþá hja jem & fix og hef nóg að gera núna, sem að er æðislegt, fyrir utan að við komumst ekki til Flórida í ár en vonandi á næsta ári í staðinn. Svo eru uppáhaldsþættirnir mínir byrjaðir aftur, The Office, sem er absolute það besta sem að hefur verið framleitt í bandaríkjunum frá byrjun, og svo Greys anatomy. Quality time, love it.
The Blue man group kemur til Horsens á fimmtudaginn, veit ekkert nákvæmlega hvað það gengur út á, en keyptum okkur þó miða. En thetta eru 3 bláir menn sem að spila rokk musik. Þið sem að hafið séð Arrested developement, ættu að kannast við þá þar sem að Tobias er alltaf tilbúinn að hlaupa í skarðið ef að einn af þeim varð veikur. Þeir þættir eru líka brilljant sem að ég mæli eindregið með, ásamt 30 Rock, sem að byrjar líka bráðlega. Tina Fey (30 rock) er snillingur og Alec Baldwin leikur snilldarlega. Hef sjaldan þolað hann en hann er genial i þessum þáttum.
En sem sagt það verdur spennandi að sjá The Blue man group. Svo fæ ég loksins að sjá uppáhalds dönsku söngkonu á tónleikum, Tina Dickow. 9. nóv. Hún er einnig tónlistarsnillingur.
Icelandic Airways er víst í gangi núna. Ég hef þó aldrei verið svo sniðug að koma mér heim á því tímabili og vera með og fara á tónleika. Hefði verið snilld að gera það núna en ég var bara að fatta þetta og svo hef ég engann tíma til að fara í frí núna. Øv, næsta ár kanski.
Oh well, same old, same old and time flyes.
Kanski ég skrifa eitthvað fyrir áramót, ellers håber jeg har I har det godt.
Enda med sma the office, enjoy
|