|
16/04 2005
NÝR BÍLL OG BRODDGÖLTUR.
Hæ folks. Þá er litla parið komin á nýjan bíl. Ferðin þvert yfir Danmörku síðustu helgi bar árangur og keyptum við okkur Ford focus, steisjon bíl, árgerð 2002. Alger ljúflingur í akstri. Maður situr hátt í honum og það er hiti í sætunum svo að maður getur brætt á sér rassinn ef að manni langar til þess. Sjáðu bara.
En annars þá ákvað ég að skella mér með Hönnu á íslendinga "ball" í gær. Ég hef ekki mætt á íslendingaball í 2 eða 3 ár vegna þess að það er víst alltaf einhver fáviti sem að þarf að eyðileggja kveldið fyrir mörgum og ég nenni ekki svoleiðis. En það var reyndar einn í gær mega KLAM (ógeðslegur) kall en maður reyndi bara að líta fram hjá því. En allavegna þá langaði mig að sjá hvaða íslendingalið býr eiginlega hérna í Horsens...og já. Fínt lið, þekkti nátturulega mjög fáa en hitti þó nokkrar stelpur sem að ég þekki og endaði með tveim þeirra á Etzo í bænum. Ekki var nú mikið fjör þar inni og ég var alveg að fíla mig gamla. Ég stóð á gólfinu og leit í kringum mig og ég held að það hafi enginn verið eldri en 20 ára þarna inni. Vú hú......en við skemmtum okkur vel.
En þetta fyllerí er svo sem ekki frásögum færandi hérna á síðunni nema út af því að þegar ég kom heim sko, og var að fara inn í garðinn þá sá ég eitthvað trítla þarna í myrkrinu þvert yfir stíginn. Haldiði ekki að það hafi verið lítill bröddgöltur. Hann var svo sætur og þegar að hann heyrði í mér þá varð hann auðvitað hræddur og krullaði sig saman og hreyfði sig ekki. Ég reyndi að vera kjurr í heillangan tíma, því mig langaði svo að sjá hann í aksjón. En þegar maður er fullur þá er það dáldið erfitt og Broddi hreyfði sig ekki. En svo fattaði ég að hlaupa inn og ná í myndavélina en þegar ég kom út aftur þá fann ég hann ekki. Ég byrjaði að taka myndir af grasinu svo að ég gæti séð hann og fann hann aftur eftir 10 myndir og þá var hann að reyna að flýja yfir í hinn garðinn. Hann fraus alveg og hreyfði sig auðvitað ekkert meðan eg var að reyna að sjá hann í aksjón. Mig langaði svo að taka hann upp en auðvitað má það ekki og greyið dýrið hefur verið að drepast úr stressi. Litla krútt. Svo ákvað ég að láta greyið í friði og fara inn að sofa. Ég vissi ekki að þeir leyndust hérna í görðunum en það gera þeir en koma bara fram á nóttunni.
Hérna er hann, Broddi broddgöltur
Annars svo sem lítið að frétta. Gott veður og ég ætla að reyna að koma mér í að gera eitthvað. Þarf að versla í matinn. Ég og Timo erum alltaf jafn hugmyndasnauð þegar kemur að ákveða hvað á að vera í matinn þannig að öll "forslag" (man ekki í augnablikinu íslenska orðið fyrir það) eru vel þegin annað hvort í gestabókinni eða email. Sama með hvað forslag er á íslensku.
Hafið það gott annars.
Bæjo, kellingin frá Danmörku á nýja kagganum.
10/04 2005
"A CREEP FROM HELL!!!!!!"
Jæja, þá leið enn ein helgin og vinna aftur á morgunn. Helgin er annars búin að vera mjög góð og effektiv. Varla búin að "slappa af" alla helgina, reyndar var föstudagskveldið eytt í sófanum og horft á imbann, og í gær farið í bíó. En það var þó afrek út af fyrir sig því að ég hef ekki farið í bíó síðan jólin 2003, á Ringernes herre 3, eða á íslensku, Hringadrottinssögu. Ég og Hrafnhildur vinkona mín erum alltaf að tala um það að hittast en svo gerist aldrei neitt í þeim málum þannig að við ákváðum að skilja kallana eftir heima í gær og fara út að borða saman og svo í 7 bíó. Er maður ekki orðinn gamall á íslenskum mælikvarða þegar maður fer í 7 bíó? Það er næstum því lummó, en það var það allavegna þegar ég var ung.
En allavegna þá förum við niður í bæ og erum bara ekta íslendingar og höldum að það þurfi ekkert að panta neitt en lærðum fljótt að það þarf því að við þræddum alla staðina í bænum og allt var troðið. Klukkan var hálf sex, takk fyrir. Þannig að við enduðum uppstrílaðar og fínar (af því að við vorum að fara í bío sko) á Burger King og átum kjúklingaborgara, franskar og allt það fína sem að fylgir því. Svo fórum við á danska mynd sem að heitir Solkongen, mjög skemmtileg mynd með ekta dönskum húmor. Við fórum svo aðeins heim til Hrafnhildar og fengum okkur kaffi þar og svo var ég komin heim kl ellefu. Aldurinn alveg farin að segja til sín. En engu að síður mjög huggulegt og skemmtilegt laugardagskvöld.
Ég og Timo fórum svo þvert yfir jótland í dag til að kíkja á bíl. Við erum að leita okkur að steisjon bíl, erum voða æst í Ford focus og kíktum á 2 í dag og hver veit nema að við verðum komin á nýjan bíl í næstu viku....hmmm. Við látum hinn upp í þannig að það verður ennþá bara einn bíll á heimilinu.
Svo að aðalatriðinu sem að á heiðurinn að titil þessarar blogs. Ég var alveg æst í að stússast í garðinum í gær og í dag og reytti arfa úr þrem beðum eins og óð. En fyrir viku síðan þá fór ég í jem&fix og keypti krukkusett, fjórar krukkur í mismunandi stærðum til að setja blóm í til að gera voða huggó. En hver krukka er ofan í hvorri annari og svo í gær þegar ég ætla að fara að planta þá tek ég í rólegheitunum hverja krukkuna upp úr og tek allt aukadrasl frá og sé að það er kínvekst morgunnblað utan um krukkurnar þannig að ég fer bara að lesa það og sé að hrísgrjónadýrkun í kína er búin að aukast um 20% síðustu árin og að hundaát er búið að minnka um 10%, sérstaklega þá sankt bernardshundar.
En hvað um það, þegar ég tek upp síðustu krukkuna og sé ofan í þessa stærstu, getið hver var búin að hanga þar allan þennan tíma.
ÞETTA HELVÍTI..........
Ég er að tala um að ég öskraði eins og geðsjúklingur og hljóp næstum því út götuna eins og vitlaus. Timo kom auðvitað æðandi út og trúði ekki á mig þegar að sagði honum að kikja þarna í en hann tók svo helvítið upp úr krukkunni með pappa og kramdi það svo. Það var altså lifandi. En hann kamdi það ekki nóg þannig að ég þrufti svo að taka spýtu og kremja það meir og þá var það alveg dautt og hljóðið sem að fylgdi var eins og þegar maður er að borða hrökkbrauð. Knnnas........
En ég komst yfir þetta og hélt mínu verki áfram.
Þess má annars geta þegar ég er á annað borð að skrifa um creep from hell, að þegar við komum heim frá íslandi beið okkur álíka stór könguló í vaskinum inni í þvottahúsi, en sem betur fer var það Timo sem að fann hana á undann mér, því mínu litlu taugar þola ekki svona.
Jæja, þetta var helgin mín, en hvað með þig?
Sjáumst og passið ykkur á pöddunum.
|