|
16/05 2005
Karate meistari og festival
Jæja, gott fólk. Ég verð að deila með ykkur minni helgar reynslu en hún er bara of stór til að þeigja um hana. En þannig er mál med vexti að ég er að æfa karate, sem er svo sem ekki frásögum færandi fyrir utan það að á laugardaginn kom karate guðinn sjálfur, Shihan Kanazawa, til Horsens og var með gestaæfingu. Ég er að tala um eina manninn sem að er á lífi í heiminum sem að er með 10. dan, en það er sú hæsta gráða sem að maður getur haft í karate. 74 ára gamall og ekkert smá flottur. Það voru auðvitað fullt af fólki mætt til að upplifa hann og fá orð fá lýst þessum einum og hálfa tíma sem að æfingin tók.
Hérna er meistarinn sjálfur, á yngri árum. Er hægt að vera meira flottur?

Horsens open air var núna um helgina, en það er árlegur viðburður hérna í Horsens. Tónleikarnir voru frá 12 til 00, bæði laugardag og sunnudag. Það var æðislegt veður alla helgina þannig að það gat nú varla verið betra. Ég og Sigga vinkona mín fórum ásamt mörgum öðrum á laugardaginn og það vill alltaf svo til að maður verður aðeins of fullur á þessum viðburði. Þetta árið var nú svo sem enginn undantekning. Við týndum auðvitað öllum þegar við komum inn á svæðið og lögðum við teppi á jörðina og létum fara vel um okkur en kanski aðeins of vel því að við sofnuðum báðar og vöknuðum svo um hálf níu leytið og vorum að frjósa úr kulda. Ég fór að leita að Timo og restina af liðinu en fann engann þannig að við ákváðum bara að fara heim. En við tókum okkur þó saman hérna heima og fórum í bæinn kl 1 og vorum þar til hálf fjögur. En það var eiginlega bara runnið af manni og var maður voða slakur í bænum. En voða gaman engu að síður þar sem að ég hitti nú karateþjálfarann minn og gátum við deilt gleði okkar yfir æfingu dagsins. Hann var meira að segja í karateprófi hjá meistaranum en hann er þá líklegast komin med 3. dan núna, en hann fékk víst fyrst að vita það í gær hvort hann náði eða ekki. Meistarinn þurfti að spá í þessu í einn dag.
Svo í gær fórum við aftur á tónleikana og gátum í þetta skiptið haldið okkur vakandi og séð einhverja tónlist. Mjög gaman. Gátum meira segja svindlað Hrafnhildi inn en hún fékk armbandið hans Timo til að fara inn. Timo nennti ekki með í gær. Þannig að það er bara ég sem að er þreytt í dag. Ég kom mér þó út í garð á meðan Timo var að horfa á fótbolta og henti lauk, gulrótum og radísum níður í grænmetisgarðinn okkar. Loksins.
En Timo var glaður í dag þegar leikurinn var búinn því Bröndby (liðið hans) var að spila á móti erki óvininum, FCK, og þeir unnu ótrúlega nok 5-0, stærsti sigur þeirra á móti FCK.
Jæja, svo bara vinna á morgunn og karate. Jibbi.
Hafið það gott og þið megið alveg nota gestabókina bara til að skrifa comment, því ég er ekki með svoleiðis undir hverja færslu. Svo er ég heldur ekki með statistik forrit þannig að ég veit ekkert hvað það er mikil umferð um síðuna mína. Þannig að ef að þú hefur ekki skrifað áður í bókina endilega gerðu það núna. Það þarf ekkert að standa nema nafn og eitt hæ.
Bæjó í bili.
Ragna Bára Lee.
06/05 2005
Jæja, er i vinnunni og það er eiginlega enginn hérna. Ég fer sjálf kl 12 eða eftir 2 tima. Ég og Timo erum að fara á fyrsta "campingtúr" sumarsins um helgina. Mamma hans og pabbi eru búin að setja campingvagninn sinn upp í Juelsminde og þau eru í Berlín yfir helgina og fengum við því vagninn lánaðann. Það verður voða huggó fyrir utan að ég held að það verði ekkert rosalega gott veður um helgina og ábyggilega skítakuldi. En þá getur maður nú bara farið heim ef að það er málið, þetta eru bara 20 km fra Horsens.
Annars er allt gott að frétta. Við vorum aftur "barnapíur" í gær en við vorum að passa hund vinafólks míns. Æðislegur Golden Retriever sem að heitir Simba. Algjör bangsi. Alveg að verða eins árs. Svo kom Anja í heimsókn með stelpurnar sínar og maður var nú hálfsmeikur við að láta hundinn vera í kringum þær. Nikoline er SKÍTHRÆDD við hunda svo að það var ekki svo gott.
Á sunnudaginn var ein 8 ára stelpa drepin af hundi, hérna á Jótlandi. Hann beit hana í hálsinn og svo á þriðjudaginn var frænka hans Timo að leika við hund vinkonu sinnar og hann beit hana i vörina. En sem betur fer fór ekki verr en svo að vörin rifnaði bara í tvennt. Greyið stelpan, 9 ára. En ekki nóg með það, heldur fór pabbi vinkonuinnar bara með hundinn út og skaut hann...... Var nú ekki heldur málið að fara með hann til dýralæknis og láta svæfa hann. Halló.
Svo maður er dáldið smeykur að láta hund vera í kring um eina sem er næstum 3ja ára.
Annars er maður alltaf á fullu í garðinum. Við keyptum loksins sláttuvél síðustu helgi og svo fór hálf helgin í að setja það helvíti saman og svo að slá grasið. En grasið var helvíti flott eftir á og garðurinn allur annar. Svo erum við búin að gera grænmetisgarðinn klárann og fyrstu kartöflurnar fóru niður í gær. Á bara eftir að henda gulrótunum, lauk og radísum niður líka. Sjálfsþurftarbúskapurinn alveg upp á sitt hæsta.
Já, það er sko nóg að gera þegar maður er komin í hús með garði. Enginn tími til að slappa af enda er kellingin næstum alveg hætt að horfa á sjónvarpið. Fylgist bara með Desperate housewifes eins og næstum hver önnur kelling sem að á sjónvarp.
Jæja, verð víst að sýna lit og gera eitthvað, en málið er að ég hef svo sem ekki svo mikið að gera. En ég get þó drepið tíman með að ná mér í kaffi. Könnu númer 4 síðan klukkan 8 í morgunn.......sdfkaldsfkj.lnv z.xd nvz ... komin með smá skjálfta, en það er nú ekkert miðað við hvernig ég er þegar ég kem heim. Timo hleypur á eftir mér með gólfklút ef að ég næ mér í eitthvað að drekka.
Góða helgi,
Kv. Ragna Bára
|