|
Mig langar alveg obboslega að láta myndir inn frá stóra ferðalaginu okkar Timo. Við fórum til Thailands og Ástralíu i oktober og november 2003. Við vorum 2 vikur í Thailandi, Bangkok nokkra daga og svo fórum við til Phuket og Phi Phi. Algjer draumur.
Svo flugum við til Sydney þar sem að við vorum í nokkra daga og leigðum okkur autocamper, eða bíl sem að við gátum búið í, og keyrðum meðfram austurströndinni. Við keyrðum til Port Douglas rétt norður fyrir Cairns og svo flugum við frá Cairns til Alice springs þar sem að við eyddum síðustu dögunum á ferðalaginu að skoða Ayers Rock (Uluru), The Olgas og Kings Canyon.
Allt í allt frábær ferð og mæli ég eindregið með að fara til beggja landa þó svo að ég hafi fallið meira flöt fyrir Ástralíu. Geggjað land.
Arun Wat í Bangkok
Phi phi eyjurnar
Ströndin á Phi Phi þegar maður siglir inn
Á leið út að kafa út við Phi Phi
Komin til Ástralíu, Blue Mountains

Flying foxes, þessir voru kanski i búri en það var annars hellingur af þeim frjálsir út um allt land
Gömul og þreytt kengúra, villt
Hmmm
Sydney
Harbour Bridge, Sydney
Flott tré

Bíllin okkar sem að við leigðum. Æðislegur bíll, ekkert vesen
Rústir í garði sem að heitir Paronella Park, rosalega flottur "Rétt hjá" Cairns
Port Douglas
Við lentum í smá óveðri þegar við vorum að keyra. Þetta er bara rigningin...
...Ég er að tala um hagl. Ótrúlega nok brotnaði ekki framrúðan í bílnum okkar GEÐVEIKI
Fótbolti á Fraiser Island, Sandeyja
Hvíld
Lake mackenzie á Fraiser. Ferskvatn. Draumur í dós
Lake Wabby á Fraiser
Whitehaven beach í the Whitsundays, Fórum í 3 daga siglingu þar um kring með köfun
"Báturinn" sem að við vorum á
Og hópurinn sem að var í bátnum.
Timo næstum að verða klár til að hoppa í
Uluru, eða Ayers Rock
Við sváfum undir berum himni út í eyðimörkinni. Geggjað
Við við Kings Canyon
The Olgas, fórum í 8 km göngutúr þar um í 45 stiga hita.
Á miðri leið um The Olgas
|
|