|
21/06 2005
Úha, alveg langt sidan eg skrifaði síðast en þó nokkuð mikið búið að gerast. Kanski ekkert merkilegt en fyrir mig er það.
Stórfrétt mánaðarins er sú að ég fékk nýtt belti í karate síðasta laugardag. Ég var í karateprófi og ég fékk svokallað grænt belti eða 6 kyu. Voða gaman. Er alveg orðin æst núna, markmiðið er að fá svarta og svo var ég á "fællestræning" áðan þar sem að við æfum saman, svartbeltingar og blönduðu litirnir, og varð mér það ljóst að það er þó nokkur leið í land. En hva, einhversstaðar verður maður að byrja.
Svo á laugardaginn förum við að skoða HVOLPA...... og munum við örugglega velja einn þannig að við fáum hvolp um miðjan júli. Ég á eftir að deyja að sjá svona lítil kríli og hlakka ég ekkert smá til. Laugardagskvöldið eru svo tónleikar með R.E.M. hér í Horsens. Brjálað... hlakka ekkert smá til. Þannig að þessi vika má alveg fara að klárast.
Veðrið er búið að leika við okkur hérna í Danmörku um helgina og ennþá. Í nótt og í dag er búið að vera rosalega rakt og maður verður allur rakur sjálfur. Á morgunn á að vera gott veður og lítur út fyrir að skýjin séu að fara núna (klukkan er níu um kveld)
Æ, hvað ég er bara ekki í mínu besta skrifstuði í kvöld, en þó fannst mér ég verða að deila þessum stóratburðum með ykkur.
Reyni að gera betur næst....
Kveðja ,
Ragna
p.s. takk fyrir skrifin i gestabókina
06/06 2005
Jæja gott fólk.
Ekki er mikið um skrif á þessari síðu enda ekki svo mikið að gerast í "the simple life". Mér fer þó óðum fitnandi en sem betur fer búin að fatta það þannig að nú verður maður að hætta þessu áti og byrja að lifa á vatni og grasi. Engin ástæða fyrir fitun bara einföld græðgi. Letin að drepa mig í dag enda var helgin dálítið hektísk.
Á föstudaginn flutti skrifstofan sem að ég er að vinna á í nýtt og betra húsnæði. Loksins. Við sátum 6 inni á gamla staðnum, í smá kompu. Kramin eins og síld í tunnu, ef maður notar nú íslensku máltækin. En nú komin í þetta fínasta húsnæði sem er special made for you, my friend, en þó enginn vinnu friður því það er ennþá verið að berja og bora á nýja staðnum.
Anyhooooo, þá fórum við Timo í mat til Hrafnhildar og Hannibals á föstudagskvöldið í fondue takk. Aldrei prófað það fyrr. Brjálæðislega flott hjá þeim. Þar voru einnig 3 færeyingar sem var mjög gaman að hitta og skildi maður ekkert í færeysku, en danskan er nú notuð til að tala okkar á milli.
Svo á laugardaginn var kaffi hjá nágrannanum en Timo komst ekki því hann var að keppa í fótbolta (dagens bedste spiller) en ég kíkti en gat þó ekki verið lengi því að um 4 leytið kom 5 manna fjölskylda frá Noregi til að gista hjá okkur í tvær nætur. Ekkert fólk sem að við þekkjum, við hittum þau bara í Bilka siðasta sumar og buðum þeim gistingu.
Nei, nei, þetta er hálf systir Timo og hennar familia. Þau eiga 3 stráka sem að eru 14, 10 og átta ára. Það var nefnilega svo skírn hjá Önju í gær, (alsystir Timo), en hún var að skíra dóttur sína sem að hún fékk í janúar og svona til þeirra forvitnu þá heitir litla stelpan Anemone Lykke.
Norska familian fór nú í morgunn og er nú húsið tómt fyrir utan mig. Timo að vinna kvöldvakt. Norskan gekk nú betur að skilja en færeyskan má ég nú segja, og tel ég mig vera orðin þó nokkuð góð í skandinavískunni, dönsku, norsku og svo þarf maður einstaka sinnum að skilja sænsku í vinnunni og reynist það þó vera dálítil "utfordring"
Vantar aðeins upp á þýskuna og þá er maður orðin helv.... multi lingual :-) og kanski frönsku líka og spænsku, en þá er maður orðinn nú góður. En hey, ekki má nú gleyma að japanskan er nú öll að koma enda ekkert talað annað á þriðjudögum og fimmtudögum, þegar ég er í karate..... Oss.
Þess má geta að ég og Timo munum leggja upp til landsleik hérna í Torsted í viku 31, ekki milli Danmerkur og Íslands, heldur Noregur - Ísland, því að ég verð með DÚLLU frændu mína í heimsókn og norska fjölskyldan kemur í sumarfrí til Danmerkur og kíkja líklegast við hjá okkur. Allir æstir í fótbolta.
Strákar! Þið getið byrjað að hita upp.... við verðum að taka norðmennina í rassgatið.
Jæja, það er svo sem nóg að gera og held ég að við séum bókuð fram í ágúst, en þá verðum við vonandi komin með hund þannig að maður slakar ekki mikið á.
Jæja, Timo komin heim og ég þarf að baða mig.
Kveðja frá Danaveldi.
|