|
24/11 2005
Jæja, eg er nu ekki svo god til thetta blogg dims. Eg veit aldrei hvad eg a ad skrifa.
Hmm.... latum okkur nu sja. Thad er nu svo sem nog ad gera. A laugardaginn erum vid ad fara til Arosa i innflutningsparty og svo helgina eftir thad fer litla familian i sumarbustadarferd til vesturstrandarinnar. Voda huggo. Svo helgina eftir thad er Duran Duran tonleikarnir a fostudeginum, karate prof a laugardeginum, vonandi fæ eg tha fjolublatt belti, svo um kveldid jolafrokost i karateklubbnum. A sunnudeginum slær eldingunni nidur og hrukkurnar koma fram. Er sa dagur bara planadur til ad slappa af med Timo og Berthu. Kanski einhver kikir i heimsokn en thad kemur i ljos.
OGEDSLEGT VEDUR....... argggg....
Svo eru jolin ju ad fara skella a. Allavegna jolaskreytingar og læti. Madur verdur vist ad gera e-d ur thvi thar sem ad vid holdum jol i hollinni okkar, med Onju, Michael, Nikoline og Anemone. Thad verdur voda huggulegt. Svo holdum vid lika gamlarskveldsparty, mest ut af Berthu, hun getur ju ekki verid ein. Hun verdur abyggilega SKITHRÆDD.
Eg er bara svo stolt af henni. Hun er ordin svo supergod. Vid forum i heimsokn til vinkonu minnar sem a 3ja ara strak og hann var skithræddur fyrst en svo legu thau med bolta og hun var allt onnur med honum en thegar hun er med mer. Svo blid og god vid hann og veit alveg ad hun ma ekki jafnmikid eins og thegar hun er med mer og Timo.
Jæja, eg verd ad fara ut ad labba med hana. Ut i rigninguna og svo fer i eg i karate. A hjoli..... brrr...
09/11 2005
Hundurinn minn er klaufi. Hun er svo mikil brussa að það er með ólíkindum. Hún er eins og flóðhestur, það er alveg sama hvað er á vegi hennar hún fer bara áfram. Hún hefur nokkrum sinnum hlupið inn í fótboltamark og svo setið föst í netinu. Þegar hún reynir að vekja mann tha setur hún framlappirnar upp í rúm og það skiptir engu máli hvort að maður liggi þar, nei, nei bara klóra kellingunni í andlitinu. Ég vaknaði í fyrrimorgunn með 3 strik í hausnum og áðan var ég næstum því búin að missa auga thvi hún var að brussast í kringum mig, er ég lá í makindum mínum að glápa á sjónvarpið. Timo segir að hún hafi fengið þetta af mömmu sinni. Skil ekkert hvað hann á við. Síðast þegar ég eyðilagði eitthvad var fyrir 3 vikum síðan og svo er ég bara með 3 marbletti, á stærð við spælegg á löppunum, sem að ég veit ekkert hvaðan koma.
En Bertha er yndisleg engu að síður. Bertha brussa.
Annars gengur allt sinn vanagang i danmörkinni. Ég gleð mig yfir því að það sé ennþá yfir 10 gráður hérna og langt í snjóinn, þegar ég heyri frá þeim heima. En þó dáldið pirruð yfir því hve snemma það verði dimmt á daginn. By the way þá er bara eins tíma munur núna á Íslandi og Danm., en það gerðist 29.okt.
Helgin var nú bara róleg, var komin heim kl 23:30 á föstudaginn og eyddi helginni í að hitta fólk og þrífa. Langt síðan ég hef notið helgarinnar svona rosalega vel. Var vel út hvíld eftir hana.
Jæja, mér dettur bara ekkert í hug, enda bara best ad koma sér í rúmið og fara að lesa "Engler og demoner" eftir Dan Brown. DaVinci mysteriet var svo brilljant að ég býst við engu minna af þessari.
Góða nótt frá brussunum tveim. B&B (Báru & Berthu)
04/11 2005
Jæja, komin helgi enn og aftur. Varla buid ad jafna sig a sidustu helgi en thad var farid ut bædi kveldin. Fyrra kveldid var stelpuparty hja Önju systir Timo. Hún býr niðri í bæ svo að Ragna gat ekki látið vera að kíkja aðeins í bæinn. Hitti fyrst engann og var því á leið heim en svo hitti ég fólk þannig að ég fór ekki heim fyrr en seint og síðar meir. Auðvitad dauðþreytt á laugardeginum en ákvað þó að drullast á fætur um hádeigið og koma mér niður í karateklúbbinn til að horfa a klubmesterskabet, sem að ég tók ekki þátt í. Svo um kvöldið var fodboldafslutning í fótboltanum hjá Timo og kemst maður ekki hjá því að verða fullur þar og þar af leiðandi rétt að kíkja í bæinn þó svo að það sé ekkert á sækjast eftir þar. Enda fór ég fljótt heim aftur.
Í kvöld er eg að fara i enn eitt stelpupartýið, ef party má kalla, en ég er að fara með 12 öðrum stelpum héðan úr vinnunni út að borða og í bíó og svo get ég ímyndað mér að við kíkjum aðeins í bæinn hér í Vejle því jólaölinn kemur á götuna í dag. Það gera danirnir mikið úr þegar jólaölinn og páskaölinn kemur á götuna. Allir út að drekka og ókeypis öl út um allt reyndar.
En kellingin ætlar að passa sig á þessu. Nenni ekki að eyða helginni í þinnku. Nóg að gera um helgina.
Jæja, ætla þó að fara fram og fá mér fyraftensöl med pigerne.
I þessari færslu hef ég kallað sjálfa mig að nafni, fyrstu tölu og sem kellingu.
Góða helgi.
Hilsen,
Öldrikkeren fra Danmark
|