Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
2006
Desember 2006
Nov 2006
Oktober 2006
September
Agust 2006
Júlí 2006
Juni 2006
Maj 2006
Feb 2006
April 2006
2005
2004

22/04 2006

Jæja, gott fólk, þá er búið að leggja veröndina og stiginn i kring um húsið. Þá þurfum við bara að gera allt þetta fínpússerí sem að vantar og það er nú þó nokkuð.

Þetta gekk bara ágætlega fyrir sig, það komu 3 menn og gerðu þetta fyrir okkur en ég macho-konan sá um garðlampana að skrúfa þá fasta í flísarnar. Stóð með steinbor og boraði og skrúfaði eins og óð. Timo gerði ekki neitt...... nei nei bara að djóka. Hann er búin að vera voða duglegur og búinn í bakinu eftir að hafa tekið gömlu flísarnar upp. Síðustu 20 flísarnar voru hörmung, ca. 50 kilo stykkið. Þær hafa bara verið steyptar beint í jörðina árið 1966.

 

Jæja, Ég verð víst að fara að elda burritos en endilega kikið á myndirnar af veröndinni og svo nokkrar af Berthu músinni og ein ógeðslega rómó af mér og Timo

 

 

21/04 2006

O MY GOD. Eg var ad heyra i utvarpinu ad thad ganga sogur um ad GEORGE MICHAEL se ad fara ad turnera. HANN VERDUR AD KOMA TIL DANMERKUR.

 

EG DEY..

 

20/4 2006

Yo, yo. What's up?

Var að koma heim úr karatenu. Þarf virkilega að taka mig á ef að ég ætla að fá nýja gráðu nú í sumar. Ekki alveg nógu gott.

Ég var á fyrirlestri í dag. Eitt sem að ég geri aldrei enn ætti að gera enn meira af, en ég var á fyrirlestri um ASP.NET 2 og varð alveg æst í að fara heim og installera Visual Studio Express sem að er ókeypis og fara að forrita. Ef að maður getur sagt að forrita því ASP.NET 2 er alger snilld, því það er næstum búið að gera allt fyrir mann svo maður þarf bara að klippa og klístra og vúptí, maður er komin með heimasíðu. Allt er auðveldað fyrir manni þannig að maður sparar hellingstíma.

Það eina sem að mig vantar núna er góð hugmynd að forriti/heimasíðu. Svo allar hugmyndir eru vel þegnar. Senda á meilinn minn svo að við höldum þessu smá leyndu :-)

Þetta er náttúrulega bara skemmtilegt fyrir íslensku tölvunörda vini mína að lesa, sem að eru ca 2...... hmmm... En ég er allavegna alveg æst og ég skora á hana Kristrúnu að kíkja á þetta, ég er að segja það þetta er snilld. Okey, ég skal hætta núna að babla um þetta.

Jæja, svo verður veröndinn okkar lögð um helgina og ég og Timo erum algerir grænjaxlar í öllu þessu dæmi. Ég þurfti að fá expert hjálp frá einum íslenskum smið hérna í Horsens til að finna út hvernig skrúfur ég að kaupa og hvernig við gerum hitt og þetta. En ég held að þetta smelli allt saman á endanum. Ég og Timo höfum þó eitt ófáum tímunum í að þræta um hitt og þetta og ég hef gefið dáldið undann og leift honum að ráða því hann nennti þrátt fyrir allt að grafa upp ca. 50 fermetra, by hand.

Þá tek ég bara yfirhöndinni næst þegar við tökum eldhúsið eða eitthvað.

 

Bertha er í essinu sínu, búin að vera að hjálpa Timo þessa vikuna í garðinum með að grafa, hann er búinn að vera í fríi. Timo segir að hún sé feit. Mér finnst hún ekki feit. Bara eins og mamma sín. Just a litte bit chubby.

 

Jæja, er ekki nóg komið. Ég verð að fara tjekka nýja Visual Studio Express/ASP.NET 2 sem að er snilld.

 

if Timo=Fótbolti then

Ragna=Karate

else

nothing

end if

 

Mega nördy

 

 

 

16/4 2006 páskadagur

Okey, eg verð bara að skrifa hérna inn til að láta ykkur vita að thad er búið að vera geggjað veður hérna i dag og í gær. Ég og Timo erum búin að vera að vinna í garðinum á hlírabol og stutterma...... geggjað......Ég verð að monta mig af einhverju, þar sem að ég get ekki borðað íslenskt lambakjöt eða neitt páskaegg.... böhöhööööö.

 

Jæja, prison break að byrja, best að leggjast fyrir framan imbann og japla á tobleroni í staðinn.....

 

 

13/04 2006

Gleðilega páska. Það er rigning hérna, en á að vera sól á laugardaginn og sunnudaginn og svo rigning aftur. Ógeðslega gaman.

Já, já, annars ekkert titt. Við verðum bara heima að vinna í garðinum. Timo er á fullu að grafa hann upp tilo að gera klárt fyrir helluleggingu næstu helgi. Verður æðislegt þegar það er búið. Á nú erfitt með að sjá núna hvernig þetta getur verið flott því garðurinn er í rúst. En sem betur fer fáum við einhverja til að gera þetta, við getum ekkert svona sjálf.

Já, já, ekkert að skrifa um. Bertha og Timo biðja að heilsa.

bæjo

 

 

08/04 2006

Ja, ja, allt gott ad fretta. Vid erum ad passa hund nuna, Simba, því Gitte og Morten voru að eignast litla stelpu i fyrradag. Þannig að Bertha hefur það fínt með ad hafa kærastann sinn hérna svona lengi.

Annad titt... Madonna kemur til horsens og heldur tonleika 24 agust. Eg ætla ad fara og 22 april fer eg og kaupi 6 mida.

I vinnunni er ymislegt ad gerast, folk ad hætta og eg er nu su sem ad hef verid lengst i tolvudeildinni fyrir utan bossinn og eg er buin ad vera þarna i 1 ár og 3 mán.

Eg er buin ad vera veik, eg elska ad vera veik. Serstaklega þegar madur er svo kvefaður að á nóttunni þegar maður vill sofa þá byrjar maður á því að hósta um leið og maður leggst á dýnuna. Maður eyðir svona tima í það og svo getur maður ekki andað í gegn um nefið þannig að maður verður að sofa med opinn munninn og hann verður svo þurr að maður fær nýtt hóstakast af því. Svo lekur þunnt horið hægt niður nösina og þegar það nær út þá klæjar svo ógeðslega  að maður klórar sig til blóðs og nuddar horinu út um allt. Maður sofnar svo loksins og vaknar einstaka sinnum við hóstann í sjálfri sér og svo um morgunninn þegar maður fer á klóstið þá er allt horið storknað bæði fyrir innan og utan um nefið. Þá byrjar maður að skrapa á meðan maður hóstar úr sér lungunn.

Oh, ELSKA ÞAÐ.

Annars elska ég lika ad horfa a bíomyndir med sætum leikurum. Eg var búin að gleyma hvað það er gaman. Eg sá Apocolypse now fyrir nokkru sídan og dó næstum yfir hvad Martin Sheen var sætur þegar hann var ungur, og veistu það Magga min þetta er helviti god mynd :-) án gríns.

Svo sá ég the saint í gær med Val Kilmer og hann feilar nu aldrei.

Ég leit svo á Timo sem að lá á móti mer í sófanum og sá að hann var sofnaður med opinn munninn. Slefið lak hægt út um munnvikin á honum. Hann breytir um stellingu í sófanum og nær að sparka í andlitið á mér á meðan hann klórar sér í pungnum og rekur við. Og allt þetta í svefni. Eg akvað bara ad einbeita mer að myndinni stadinn fyrir ad vera eitthvad ad dást ad manninum mínum.

 

Dis, karate klubburinn breytti adeins til sidasta fimmtudag og vid forum í aerobic i stadinn. EG ER AD DREPAST I KALFUNUM, og eg helt reyndar lika ad eg myndi deyja þarna inni. Eg hef EKKERT þol. En ogedslega gaman. Eftir á.  :-)

 

Jæja, verd ad fara. Þarf ad fara ut ad telja regndropana, er ad gera statistik yfir hve margir regndropar falla í gardinn minn næsta árið. 

 

08/04 2006

 

"Jæja krakkar minir. Er ekki komin timi á smá sögur úr Danaveldi?".

"Júúuuuuuu", svöruðu krakkarnir í kór og setust áhugasamir i kringum söguflytjendann.

"Einn góðann veðurdag í Danaveldi, í litlum bæ að nafni Horsens, var grenjandi rigning.", sagði söguflytjandinn. "Hmmmm... þetta passar nú ekki. Ég prófa aftur.

"Dag einn í Danaveldi, í litlum bæ að nafni Horsens, var grenjandi rigning. Það var laugardagurinn 8 april. Litla parið Ragna og Timo voru heima að drekka eftirmiðdagskaffið sitt þegar allt í einu heyrðist rosaleg hátt BANG inni í svefnherbergi. Bertha hundurinn þeirra leit á þau skelfingu lostin og sá að hún var ekki sú eina. Þau fóru öll inn í svefnherbergi til að sjá hvað hafði gerst og herbergið var fullt af reykt, og það var ekki hægt að sjá neitt. Eftir örlitla stund sáu þau eitthvad standa þarna inni í horninu og eftir örlitla meiri stund sáu þau að það var Madonna."

"HÆ!!!, sagði hún og vinkaði og svo tók hún míkrófóninn og byrjaði að syngja.

"Læk ei vörgin. VÚ!  tötch bæ ðe verí först tæm."

"Litla fjölskyldan. Litu nú á hvort annað og byrjuðu að dansa í takt við lagið. Bertha tók þá villtustu snúninga að Madonna varð alveg agndofa og missti næstum tóninn.

Þegar lagið var búið gáfu þau Madonnu kaffi og köku og svo sögðu þau við hana takk fyrir komuna en nú þyrfti hún ad fara því þau þurftu að fara að horfa á Á hverfanda hveli á DVD."