|
31/05 2006
Bömmer. Dagurinn byrjaði á þvi að ég fékk að vita að samstarfsfélagi minn er að hætta eftir mánuð en hann er búinn að vera þarna í 4 mánuði og sem sagt á 9 mánuðum eru 3 búnir að hætta og 3 búnir að fara úr tölvudeildinni yfir i aðra deild. Hvað segir það manni um tölvudeildina?
Svo er ég búin að vera með hausverk í allan dag og svo þegar ég kem heim hendi ég 2 frosnum pizzum í ofninn fyrir mig og Timo og svo þegar að ég er að taka þær út næ ég að missa mina á hvolf á gólfið. Ostur og álegg út um allt. En ég át hana samt þar sem að ég skúraði í gær.
Já, segð þú bara oj, en ég var svöng.
Jæja, ég og Timo vorum í árósum á laugardaginn að shoppa og á fótboltaleik. Timo keypti miklu meir af fötum en ég. Ég fékk 2 kjóla, einar buxur og mega líkams-kompleksa.
Leikurinn var nú ekki góður, fór 1-1 en það var mjög gaman samt. 20 thusund manns.
Svo er 30 ára afm á lau og mér til mikillar skelfingar erum við að fara í 1 árs afmæli DAGINN EFTIR. Oh, my god. Ekki að nenna því, en thad er þó ekki fyrr en kl 15.
Æ, ég er þreytt og ég er bara í kvörtunar/kveinar stuði í dag, enda þrumur og grenjandi rigning.
Ætla að fara að klappa Timo á bakinu og kyssa Berthu á munninn.
Adios amigos
29/05 2006
Litid innslag hérna:
Minnsta ferja i Danmerku heitir Ragna og hún siglir á milli Mellerup og Voer.
24/05 2006 miðvikudagur
Yo, Drottningin i Grikklandi og ég er bara heima ad passa blómin. Já, það þarf einhver að sjá um blómin, þó að það se rigning.
Það er búið að rigna i yfir viku núna og ekkert útlit fyrir að sólin ætli eitthvað að staldra við í lengri tíma en klukkutíma. Þrumur og eldingar í dag og svo kom allt í einu sól. En ég kvarta ekki þegar ég heyri að það sé snjókoma heima og hiti við frostmark. Minnir mig á af hverju ég bý í Danmerku. Sem er þó ekki alveg nógu sunnanlega veðurlega séð. Langar mest að búa einhversstaðar í Queensland, Australia þar sem að maður sér þetta alla daga.
Þeir sem að hafa kíkt hérna inn á síðustu dögum hafa kanski tekið eftir því að ég er að fara á tónleika með George Michael...Hey...smá sól á morgunn og 13 gráður (Veðurfréttir)... .11. nóvember. Eins og er fer ég bara ein, en ég stóla á að Hrafnhildur nái í miða , hún hefur nu hálft ár :-). Svo er maður búin að nefna þetta við fleiri og gæti verið að fleiri bætist í hópinn. En þá verð ég bara að segja þeim frá því eftir tónleikana hvað Goggi minn bað mikið að heilsa og kanski að þær kíki bara með þegar ég fer í heimsókn til hans á næsta ári.
Nú fara helgarnar að uppbókast með einhverju eftir að veturinn er búinn að vera slappur, sem er stundum gott. En á laugardaginn fórum við Tímo til Árósa og ætlum að shoppa okkur föt. Hann ætlar að vera stylistinn minn því ég kann ekki að kaupa mér föt og ég held að ég sé búin að kaupa þrefalt meir af verkfærum en af fötum síðasta hálfa árið. Það er auðveldara að kaupa verkfæri og ég elska byggingavörumarkaði.
Já, svo um kveldið förum við á landsleik í fótbolta, Danmörk-Paraguay, mega fjör. Ég er orðinn fótboltabrjáluð var á leik síðasta föstudag, Bröndby-Hedensted. Vonaðist til að sjá Mikka Laudrup en hann nennti nú ekki að mæta en John Faxe skellti sér á völlinn og spilaði með í fyrri hálfleik og hann gat ekkert, brennti vítaspark og læti. Nei, það er nú meira Timo sem að er að draga mig með á þessa leiki en mér finnst það bara gaman. Það voru einhverjir 10-12 ára strákar við hliðina á mér og voru alltaf að reyna að fá meira pláss og svo segir einn "Hold nu op med at skubbe, jeg er kommet helt op til damen".
DAMEN!!!! Ég, DAMEN. Hvað segir það manni? jú að maður er orðinn gamall.
Noh, anyhoooo, Svo erum við að fara í 30 afm 2. júni og svo 10. júni er próf í karate, 4. kyu, annað fjólubláa beltið. En díses kræst, ég er bara ekki nógu góð og er ekki alveg viss um að ég muni ná og ætla ekki að fara í prófið nema að ég sé alveg viss. Á að gera Heian Godan Kata og hún er bara ekki nógu góð. Mér finnst þetta alveg voðalega gaman og þetta er eina sportið sem að ég nenni að æfa, en stundum er þetta svo hallærislegt. Stöndum í beinni línu eins og hermenn og bíðum eftir að fá að vita hvað við eigum að gera og segjum oss við öllu og hneigjum okkur og blablabla... En sem betur fer eru þjálfararnir ekki svo strix á öllu þessu eins og það er á mörgum öðrum stöðum.
Ég er að horfa á sjónvarpið á meðan ég skrifa og það er verið að sýna frá Danmarksmeisturunum í handbolta og kallinn sem að er að ganga um og taka viðtöl spurði einn hvort að hann væri að verða fullur :-)
Ég er enn að æfa mig í .net2, mjög gaman en maður kemst á skrið í smá tíma og svo kemur einhver padda (bug) og maður eyðir tímum í að finna út úr því og svo heldur maður áfram.
Jæja, ég ætla að koma mér í að forrita. Þetta er alltof langt blogg, maður nennir ekki að lesa svona langt blogg
Góða helgi.
Bertha biður að heilsa og segjir voff, voff, weeeeoff.
10/05 2006
Uff Eg veit ekki hvar ég á að byrja, en ég er alveg miður mín. Gráti næst og gjörsamlega niðurbrotin.
Ég var alveg æst þegar ég frétti að George Michael væri að fara í tónleikaferð svo ég kíkti á heimasíðuna hans og beið eftir að sjá hvort hann kæmi til Danmerkur en það voru bara skáðir staðir í englandi þannig að ég hélt að það væri bara það. Svo allt í einu á mánudagskvðld stendur á tekstavarpinu að það væri uppselt á hann í Parken, Kbh. Ég hélt ég myndi deyja.......... ég verð að fara og ætla að reyna að redda mér miða á svörtu en það er bara miklu dýrara.... Böhhöhö........Ef einhver sem að les þetta á aukamiða, máttu gjarna selja mér hann. Þú myndir bjarga mínu litla lífi. Annars hringi ég bara í hann Gogga minn og tjekka hvort hann geti ekki reddað mér inn.
Annað í fréttum fra Mörkinni er hellingur. Það er búið að vera GEGGJAÐ veður í viku núna, sól, logn og 23 stiga hiti. Allt komið í blóma og allt svo fallegt hérna. Bróðir minn ákvað að kíkja til mín á mánudagskveldið og fór hann heim í gær. Það var æðislegt að hitta hann, sjaldan sem að maður hittir familíuna sína. Hann varð alveg óður hérna í að ditta að húsinu og var engin leið að stoppa hann :-) Málaði fyrir okkur bílskúrinn og tréverkið hérna fyrir utan og "hjálpaði" okkur að setja upp grindverk á nýju veröndinni okkar. Fixaði rifur í sökklinum á húsinu o.s.frv. alger snilld. Takk fyrir það.
Aðal sightseeing staðirnir sem að við fórum á voru byggingavörumarkaðir og flügger :-)
Við fórum svo til Noregs um helgina. Vorum að fara í fermingu til frænda Timo. Hálfsystir hans býr þar. Förum á föstudagsmorgni og komum heim á sunnudagskveld. Viddi bróðir var hérna að passa Berthu og ditta að húsinu. Þetta var ágætis túr, næstum eins og að koma til Íslands, allt dýrt og svo fjöll og grjót út um allt. Eina sem var öðruvisi eru öll trén og húsin eru öll úr timbri.
Þegar Viddi kom hingað fyrst sagði hann við mig að Bertha yrði ekkert ánægð með að hitta hann því allir hundar hata hann. Ég var bara "Nei, nei, hún elskar fólk og verður alveg æst þegar hún hittir nýtt fólk" sem að er alveg satt..... Haldiði ekki að hún hafi bara staðið og urrað á hann þegar hann kom. Ég hélt ég myndi missa andlitið.... bara hvað var í gangi. En það leið ekki á löngu þangað til þau voru bestu vinir.
Það er Stóri bænadagur hérna á föstudaginn og allt lokað. Æði. Enda ætla ég bara að nota daginn í að biðja. Bið til alls og um allt.
Annars er nóg enn að gera í garðinum. Þurfum að kaupa fleiri steina til að gera kant á veröndina. Svo þarf ég að kaupa helling af sumarblómum og planta í potta til að gera þetta meira kósí. Ég hata maura og súrmjólk.
Jæja, greinilega eitthvað að klikkast. Ég er líka komin með Alzheimer á byrjunarstigi, ég get ekki munað neitt og gleymi alltaf að kaupa eitthvað þegar ég fer í búð. Ég verð að fara að forrita mér nýjan heila.
|