|
30/06 2006
Komin heim og enntha ad vinna a fostudagskveldi. En bara af því að aðrir í vinnunni geta ekki gert sína vinnu á tíma. Og hvað gerir Ragna, jú,jú hún segir bara "Farðu í frí og ég redda þessu". Sem að ég og gerði og einhver er glaður.
Kallinn í sjokki núna, engann veginn hægt að ná sambandi við hann. Leikurinn á milli þýskalands og argentínu er núna og komin inn í fyrsta hálfleik í framlengdum tíma. Hann heldur med argentínu þannig að hann varð alveg óður þegar þýskararnir skoruðu.
Ég er nú alveg æst í svona HM en einhverja hluta vegna hef ég varla horft á einn heilann leik þetta seasonnið. Hef bara nóg annað að gera.
Ég fór áðan í Harald Nyborg og keypti risa sólhlíf og stálhillusamstæðu til að láta inn í verkfæraskúr, eftir tip frá bróður mínum.
Ég staulaðist med sólhlífina út og tróð henni ínn í bílinn. Hún gat varla verið þarna, og svo þurfti ég að fara inn í búðina aftur til að ná í hilluna og keyrði með hana að bílnum og ætlaði að lyfta henni inn í skott. "hhhhhhhhhhhhh....remp....hhhhh" kom bara út úr mér. Hún haggaðist ekki. En Ragna tók á sterka sínum og gaf eitt risa öskur og hillan var allt í einu komin inn í bíl. Timo getur tekið hana út þegar leikurinn er búinn.
Ef að ég á að segja eins og er þá er ég bara alltaf að springa úr hlátri þessa dagana. Ég held að þetta sé sumarið sem að gerir þetta en það er líka meira að segja bara orðið gaman í vinnunni.... Thank god. En sjáiði veðrið um helgina og í næstu viku. Maður ætti að vera að fara í sumarfrí í dag.
Við ætlum að kíkja til Hrafnhildar og Hannibals í kvöld en ég er ekki búin að hitta hana síðan í byrjum maí held ég og þau fara til íslands á morgunn. Á morgunn erum við með nágrannagrill partý fra kl 17 eða 16:30 man það ekki, og á sunnudaginn ætla ég að drepa alla maura sem að ég sé á veröndinn og stéttinni minni. Ég hata þá. Ég var svo heppin að það voru ókeypis vöruprufur niðri í vinnu með fullt af maura EITRI.
Ragna Mauramorðingi.
Oj, ég má ekki skrifa meir um þetta, ég dey úr samviskubiti og hætti við. Stopp
Jæja, ætla að fara að troða einhverju ætilegu í mig. Er að drepast úr hungri. mmmm.. maurar.
Gott sumar....
30/06 2006
Svona verdur vedrid um helgina og næstu viku bara ad lata ykkur vita.
24/06 2006
Sunnudagur og enn og aftur super veður. Fórum á stöndina úti í As Vig með Berthu og hún og Timo fóru í vatnið og syntu saman.
Ja eins og i síðasta bloggi sagði ég frá því að Timo minn var að fara á leik á HM milli Ítalíu og Tékklands. Sem að hann gerði en okkur leist nú ekki á blikuna því hann hafði keypt miðana á laugardagskveldinu og svo á miðvikudeginum voru engir miðar komnir. Við hringjum og hringjum í eitthvað þýskt númer og alltaf er upptekið og svo loksins kl 18 á mið. komst ég í gegn og fékk að vita að þeir ættu að sækja miðana einhversstaðar á hóteli í miðri Hamborg. Okey..... Kl 8 á fimmtudagsmorgunn keyra þeir af stað til Hamborg og hringja og hringja til karlsins sem að ég talaði við daginn áður og alltaf upptekið. Svo kl 12 komust þeir í gegn og fengu að vita hvar þeir ættu að sækja miðana og svo fengu þeir miðana í hendurnar um 13 leytid og leikurinn byrjaði kl 16. Eyðilagði aðeins túrinn en hann segir að þetta var engu að siður 3300 dkk virði. Enda kemst hann ábyggilega ekki aftur á HM fyrr en eftir XX mörg ár.
En fyrir þá sem að langar að kaupa rándýra miða á eitthvað þá er þetta slóðin..
http://www.theonlineticketshop.com
Það er þar á meðal hægt að kaupa miða á Madonnu hér í Horsens sem að verður 24. águst. En á þessari síðu eru miðar í 4 prísklössum en það passar ekki því það er enginn munur á því hvar maður stendur og hvað miðinn kostar, svo kaupið ódýrasta miðann.
En ég er einmitt að fara á Madonnu 24. ágúst en hef ekki getað sagt ykkur það fyrr því að ég keypti miða fyrir Möggu vinkonu og hún ætlaði að koma konunni sinni á óvart í gær þegar hún útskrifaðist úr kennó, og gaf henni miða til Danmerkur og á tónleikana. Þær koma sem sagt til mín og við förum saman.... Hlakka ekkert smá til.
Ég settist í röðina þegar það var, minnir í apríl, kl 4 um nóttina með stól og kaffi og beið til kl 10 um morguninn. En það var voða gaman samt. Konan við hliðina á mér var líka ein þannig að við vorum bara saman þarna.
Ég er að flá mig núna, ríf af mér skinnið í hrönnum. Nota sólarvörn.
Ég var annars að endur installera tölvunni okkar og það er eins og að fara í bað. Manni líður eins og allt sé hreint og fínt.
Er núna að hlusta á Guns n' Roses, er alveg í nostalgíu hérna. 14 ára aftur í blakferðalagi.
Jæja, raus og blaður.
Ætla að fara að horfa á fótbolta. England vann áðan sem að var MJÖG gott.
18/06 2006
Uff, hitinn.... eg er bara alveg að breytast i svertingja.. Búin að liggja í sólbaði í dag. En skýin eru að dragast yfir okkur núna þannig að það er spurning hvor þetta heldur áfram.
En það er gott að vera í danmörku núna, veðurfarslega séð og auðvitað bara gott annars.
Ég skellti mér á íslendinga þjóðhátiðina í mosanum í gær. Sá alveg helling af íslendingum sem að ég þekki ekki neitt en hitti þó nokkra sem að ég hef ekki hitt í langan tíma. Þetta var nú annars ekki langt stopp hjá mér. Ég skellti í mig einni SS pylsu og svo fór ég.
Fór svo út að hlaupa í gær, langt síðan ég hef nennt því. Ég var eins og rauðasti karfi á eftir og er alveg með harðsperrur núna. En ég er búin að vera æst í að svitna geðveikt síðustu viku. Enda búin að missa 2 kíló af þeim 3 sem að voru komin á mig fyrir viku síðan.
Við vorum annars að passa Simba í gær. Fyrir gamla lesendur þá ætti hann að vera orðinn þekktur en annars er hann hundur vinafólks okkar og besti vinur Berthu. Svo komu þau um 21 leytið að ná í hann og komu aðeins inn og áður en ég og Gitte vissum af þá voru Timo og Morten að kaupa miða á Ítalíu-Tékkland á fimmtudaginn í Hamborg. Þannig að þeir fara ásamt 2 öðrum á fimmtudagsmorgunn og koma svo aftur um miðnætti heim. Væri nú alveg til í að fara með eeeennnnn... miðinn kostaði 3300 dkk, takk.... En þeir voru nú kanski aðeins of fljótir á sér því að þeir héldu að þeir væru að borga í Euro en svo voru þetta pund þannig að miðinn hækkaði um 1000 dkk. En þeim er alveg sama. Eftir situr sveitta Ragna heima og reynir ekki að hugsa um hvað við hefðum getað gert fyrir 3300 kall......
Nei, nei, ég segji nú bara svona, þetta er náttúrulega kanski bara once in a life time experience fyrir þá þannig að þeir mega alveg. Brjáluð stemmning.
Jæja, ætla ad fara eitthvert.
Bæjo,
Ragna Hálsbólga
13/06 2006
Hæ, bara updeit á því hvernig fór á laugardaginn í karateprófinu en það gekk voða vel og er ég nú komin með annað fjólubláa beltið, eða 4. kyu eins og það heitir á karateísku.
Svo var partý um kveldið og var það voða gaman og er ég rétt að jafna mig núna.
Búið að vera geggjað veður síðan á fimmtudaginn, 30 stig i dag, svo á vist að rigna sma og svo sól og hiti aftur. Maður er bara alveg að verða brún og læti.
Jæja, Hafið það gott, verð að fara að vinna.
10/06 2006
Oh, my god. Er að reyna að ekki deyja úr stressi núna en ég er að fara í karatepróf eftir 2 tíma og er ekki alveg að fíla það. Verð að reyna að yogast eitthvað og koma huganum í gír fyrir þetta.
Svo er fest eftir á með mat og hljómsveit, það verður ábyggilega mjög gaman. Ef maður nær það að segja. En ef svo er þá eru bara 3 belti í það svarta, ca. 2 ár í æfingu.
Annars er geggjað veður núna og á að vera næstu daga, 25 stiga hiti, heiðskírt og logn.
Ég sat aðeins of lengi úti í sólinni í gær án þess að hafa vörn og náði að brenna mig smá, ekki nógu gott.
Við erum alveg að reyna að ditta að húsinu og garðinum. Vorum að fara með innihurðirnar okkar í sprautun, þær eru vínrauðar og verða bara hvitar og svo erum við loksins farin að lata kantsteinana við beðin og veröndina, svo vantar bara granitmölina og smá tiltekt þá ferð þetta að smella á plads.
Við vorum annars að fá metið húsið okkar og það er búið að hækka um 555 þúsund danskar á 2 árum, sem að er yfir 5 mill á íslandi. Það er nú svo sem ágætt. Horsens er alveg að blómstra.
Annars ekkert að frétta, Bertha er bara að stikna úr hita eins og við hin.
Konurnar í íslendigafélaginu eru með kvennahlaup hér í dag og svo er gólfmót líka og svo íslendingaball í kvöld. Nóg að gerast en ég er aldrei með meira enda upptekin í dag.
Jæja, hafið það gott og voandi fáið þið einhverja sól heima annars verðiði bara að koma hingað og helst flytja :-) Nóg að gera í Danmörku og allt ódýrara fyrir utan vatn og rafmagn. Svona koma nú.
Bæjó, Ragna Stress Bára.
|