|
26/07 2006
Ég er að stikna. Það er ógeðslega heitt að það er varla hægt að vera úti. Enda ekki neinn vindur. Sviti, sviti.
Er annars í vinnunni núna. Vorum í fríi í síðustu viku, og vorum med sól alla vikuna. Skruppum til Þýskalands í einn dag i Heidepark. Mjög gaman og Ragna þorði í alla rútsjíbanana, Timo til mikillar undrunnar. Annars gerðum við lítið annað en að vera heima og ég tók til og málaði inni í verkfæraskúrnum okkar. Er mjög stolt af því afreki.
Svo gerum við lítið annað en að ryksuga því Bertha fer ógeðslega mikið úr hárum núna.
Jæja, ætli maður sýni ekki smá vinnugleði hérna og einbeitir sér af verkefnum í staðinn fyrir að vera að surfa allann daginn.
Adios.
13/07 2006
Jæja, gott nok langt siðan ég skrifaði síðast, en tölvuletin færist yfir mann þegar að maður situr fyrir framan hana allan daginn og þegar að maður kemur heim er sól og 25 stiga hiti. Ég er annars að fara í viku frí á morgunn og það er spáð klikkuðu veðri, þangað til á þriðjudag. Við ætlum bara að vera heima og ég þarf að eyða klukkutíma af mánudeginum hjá tannlækni. Skifta um tvær fyllingar og fá svo sjokk þegar að ég fæ reikninginn. AAAAAA
Annars er búið að vera nóg að gera. Við erum búin að halda tvær veislur, síðustu 2 laugardaga. Fyrst var það nágrannapartý og svo afmælið hans Timo, en hann varð 29 ára á laugardaginn. Það var mjög gaman í báðum en það var meira fjör í nágrannapartíinu. Sátum úti á verönd þangað til um kl 4 um nóttina.
Svo á morgunn fáum við gesti, Jakob og Anne Sofie. Gamall vinur Timo sem að hann hittir alltof sjaldan. Það er hafnarfest í Juelsminde um helgina, ætli við kíkjum ekki þangað aðeins á morgunn og kíkjum á tengdó í leiðinni. Fyllerí og Brjálæði. Nei, nei, segi bara svona.
Ég fann fram nokkra diska sem að ég á áðan til að finna einhverja góða hlaupatónlist, því ég var úti að hlaupa áðan, og fann gamlan Prodigy disk og Underworld disk. Ég hélt að ég myndi deyja í nostalgíu flippi hérna. Minnti mig bara á gamla daga. Tónleika með Prodigy i Kaplakrika um árið og Underworld í Laugardagshöll sem að spiluðu eftir Björk. Hafði aldrei heyrt í þeim áður og þeir voru ógeðslega góðir man ég.
Ég elska að hlusta á "gamla" tónlist, ef að hægt er að kalla gamla. En tónlist fra unglingsárunum. Þar á meðal Tod Mobile. Ógeðslega góð. Oh, HAM, mig langar að hlusta á HAM núna en ég á ekki neitt með þeim. Ég sá reyndar um daginn að báðar hljómsveitir voru að koma saman heima og spila...... væri ég til í að kíkja.... :-(
Æ, ég verð bara að sætta mig við Madonnu og George Michael.
Ég sá annars Da Vinci lykilinn um daginn, vinur minn er alger glæpamaður og brenndi hana fyrir mig eftir að hafa fundið hana á netinu. Ég hef lesið bókina, meira að segja á íslensku, og mér fannst bara myndin helvíti góð. Ég hef sjaldan séð mynd þar sem að ég er búin að lesa bókina án þess að verða svekkt yfir myndinni, en það var ég ekki núna.
Jæja, gott fólk. ég er búin að skrifa nóg. Ætla að reyna að skrifa eitthvað á dönsku en ég veit ekkert hvað ég á að skrifa þar og fer bara í skriflás.
bæjo
|