|
26/08 2006
Jæja, nú er Madonna og stelpurnar bara farnar frá mér. En leiðinlegt. Nú tekur bara veruleikinn við og maður verður að mæta aftur í vinnu á mánudaginn.
En annars var ógeðslega gaman á fimmtudaginn, veðrið var æði og rosalega mikil stemmning í bænum og fullt af fólki. Gaman að sjá svona mikið af fólki i litla horsens. Við vorum komnar á svæðið kl hálf sex og það var alveg vonlaust ad reyna að troða ser fremst en við vorum á mjög góðum stað. Frekar nálægt en samt þannig að maður sá hana sem ca 30 cm á hæð en sáum samt allt showið. Hún var alveg frábær. Síðasta lagið sem að hún spilaði var hung up og svo fór hún bara og kom ekkert aftur til að taka aukalög það var ógeðslega skrítið. Ég var alveg æst að fara í bæinn eftir tónleikana en svo þegar við vorum að labba þangað fann ég bara hvað ég var þreytt og við allar þannig að við fengum okkur bara pizzusneið og svo kom Timo minn og sótti okkur. Enda vorum við búnar að standa og labba i 12 tíma.
Það var álíka í gær. Við fórum í bæinn kl 12 og vorum til 22 en miðaldarfestivalið byrjaði i gær. Það var voða gaman og gaman fyrir stelpurnar að sjá þetta, var það ekki annars Magga min? :-)
Ég er bara búin á því núna bara sybbin og þreytt. Jæja, heyrumst eða sjáumst eða eitthvað
Bæjó.
ó ja, ég átti að heilsa frá Madonnu. Kys og knus
22/08 2006
HO ho ho, bara 2 dagar i að Madonna komi til mín. Hlakka bara til. Shit hvað þetta verður gaman.
Við erum nýkomin heim núna en við erum búin að vera í bústað í Blokhus og camping i Juelsminde. Mjög gott. Hey, var að fatta að ég er of löt við að skrifa núna þannig að ég segji bara over and out. Og góða skemmtun á Madonnu tónleikunum...........
12/08 2006
Jæja, komin i fríið en finn ekkert fyrir því, mér finnst bara eins og það sé ein önnur helgin. Ég er bara grasekkja núna og nýt þess í botn ef að ég á að vera hreinskilin. Leigði tvær myndir i gær sem að Timo myndi aldrei nenna að sjá, Líf mitt sem Geisha og Closer. Mjög góðar báðar tvær. Mér hefði þó fundist fínt ef að geisha myndin væri bara á japönsku en það selur ábyggilega ekki eins vel. Svo þreif ég svínastíuna í gær og allt annað að sjá. Maður þarf helst að vera með ryksuguna á lofti allan daginn ef að það á að vera fínt hérna út af hundahárunum. En þetta er aðeins að minnka, enda ekki eins heitt núna og var í júli.
Ég elska sjónvarpsseríur og á það til að vera húkkt á þeim. Núna er það Greys Anatomy. Ég var mjög sniðug sko og nennti bara ekki að sjá þetta í vetur þegar það var einu sinni í viku en svo ákvað ég að gefa þessu sjens núna þegar þeir endursýndu þetta og gera núna á öllum virkum dögun kl 20 og það er snilld. Þá þarf ég ekki að bíða í viku meir eftir næsta þætti. Í vetur var að Prison Break sem að tók yfirhönd á heilanum mínum og féll ég í eitthvað kóma alltaf þegar ég sá Michael Scofield. grrrrrr....... Svo var samstarfsmaður minn svo sætur við mig og downloadaði og brenndi fyrir mig allt seasonnid af PB þannig að ég er búin að sjá alla 22 þættina og er æst að bíða eftir næsta sem að byrjar í usa núna brádum. En ég get sagt ykkur það að seasonnid endar ótrúlega..... vá.
Ja, ég er loksins komin med statistik á síðuna mína þannig að ég get séð hvað margir kíkja vid og solleidis og svo sé ég líka hverjir linka á síðuna mína og ég er búin að vera undrandi á því af hverju badmintoncentral.dk linkar á síðuna mína. Svo fann ég út úr því að það er svona forum á síðunni og hefur ein kona sett inn link til mynd af timo og frændum mínum í klessubílunum í tívolinu í árósum þar sem að er verið að tala um árósa sem túrista bæ. Já strákar mínir þið eruð orðnir sýnishorn fyrir túrisma í árósum, eða á ég að segja módel?
Svo er ég mjög ánægð með það að ef að maður gúgglar mig (Ragna bára) þá birtist ég á fyrstu síðu...... oh, ég er orðin internet fræg, en enginn nennir að kíkja við þó :-)
Jæja, það er í lagi, hafið það gott elskurnar, ég ætla að fara í Bilka.
Bæjo
09/08 2006
Alveg óð núna. Madonna er ekki enn búin að svara meilnum mínum og ég verð bara að fá hana til at kaupa fyrir mig þetta ilmvatn í fríhöfninni og svo er hún ekki enn búin að láta mig vita hvort hún ætli að gista hjá mér eftir tónleikana. Ég er með fullt hús, 3 stelpur frá íslandi. Hún verður bara að sofa í sófanum inni í stofu.
Annars gengur bara vel, ég fer í fríið eftir 2 og hálfan dag. Líka í frí frá Timo því hann fer að heiman i 3 daga. Hvort það sé gott eða vont veit ég ekki enn.
Ég er annars að spá í að gerast vörubílstjóri og keyra með frosnar matvörur milli Danmerkur og Spánar. Ég myndi taka alla þessa kalla í vörubílabakki og rústa þeim með minni tækni. Guð hvað ég hlakka til.
08/08 2006
Já, allt bara í sóma. Sólin skín en þó nokkuð skýjað.
"Suð-suð-vestan 5. Hiti 25 gráður" Lesist með rödd og tóni konunnar sem að segjir veður fréttirnar á Rás1.
Sem að minnir mig mikið á gamla Hvol, sumarbústaðinn okkar í Meðalfelli, við Meðalfellsvatn. Ég væri nú til í að stíga spor mín aftur þangað og kíkja á æskuslóðirnar. Ég gerði það nú reyndar fyrir mörgum árum síðan, ca. árið 1996 að ég kíkti á Hvol en allt leit öðruvísi út og sumarbústaðirnir orðnir miklu fleiri en voru þegar ég var lítil.
Já, Ísland, gamla Ísland, ástkær fósturjörð. Maður er bara farin að sakna hennar. :-(
Geta keyrt út i móa og labbað um fjöll og firnindi. En myndi maður gera það ef að maður væri heima? Það er spurningin.
Þó að það sé söknuður í mér þá þurfiði ekki að vera hrædd um að ég sé að koma, ekkert útlit fyrir það, nema þá kanski ef einhver gæfi mér hús og bíl og vinnu þar sem að ég er í frí 5 mánuði ársins og með milljón á mánuði. Ég vil nefnilega ekki fara lengra niður í laun en ég er núna.
Jæja, hafið það gott. Ég þarf að skrifa meil til Madonnu áður en hún kemur til mín og biðja hana um að kaupa fyrir mig ilmvatn í fríhöfninni.
02/08 2006
Hæ. Er einhver þarna? Ég held að andinn sé búin að yfirgefa þessa síðu, en ég er ekki búin að gefast upp. Gleymi bara alltaf að koma hérna og skrifa. Enda ekkert að frétta.
En svona lítur framtíðin út:
- Frí eftir 1 og hálfa viku
- Timo fer á Skanderborg festival á fimmtudaginn i næstu viku. Ég og Bertha ætlum að leigja okkur stelpu dvd og liggja yfir kassanum alla þá helgi. Bertha er alltaf að væla í mér um að leigja annað hvort Benji eða Lassie en mig langar heldur að sjá Beethoven.
- Sumarhús í Blokhus
- Camping í Juelsminde
- Magga, Íris og Madonna koma til mín 24 águst, Magga og Íris þó einum degi fyrr en Madonna.
- Vinna aftur eftir 3 og hálfa viku
- Karate byrjar aftur í næstu viku.
- Ég fæ nýja tölvu i vinnunni.
Spennandi? vú hú...... Get ekki beðið.
|