|
17/09 2006
Hej du. Er bara þunn og þreytt i dag. Fór á smá djamm í gær, meira að segja á íslendingaball hérna í Horsens. Hef ekki mætt á svoleiðis í alllangann tíma. Það var bara fínt. Ég var skynsöm og fór heim kl hálf fjögur en ég á það til að kíkja alltaf niður í bæ en það gerði ég ekki núna. Gott mál. Ég gat þó haldið mig við planið í dag og þreif húsið. Ekki veitti af. Bertha min er í "löbetid", man ekki hvað það er á íslensku en hún er sem sagt á túr. Gott að við erum ekki með teppi segji ég nú bara. Mmmmm. jummi.
Annars er allt fínt að frétta úr Mörkinni. Næstu helgi er ég að fara á útitónleika sem er bara fyrir jem & fix, með 4. dönskum böndum. Voða fjör, ca 400 manns. Svo er sama dag special karate day í Hedensted þar sem að við getum fengið að spreyta okkur á ýmsum bardagastílum, Tai chi et eller andet og jiu jitsu o. fl. Það verður gaman.
Svo helgina eftir förum við, kærustuparið, í 30 ára afmæli til Morten vinar okkar. Nóg að gera. Það er ekkert búið að gerast í allt sumar í svona og svo koma 3 helgar í röð.
Jæja, ég ætla að fara að horfa á 24 timer sæson 4 þar sem að ég missti nú af henni. Á ábyggilega eftir að sofna en ég þetta er nú svo spennandi að maður ætti að geta haldið sig vakandi.
ciao,
04/09 2006
Hæ. Eg var að læra lexíu. Í hundraðasta skipti en það er spurning hvort ég muni einhvern tíma læra af þessu. En ég er búin að vera með maga og hausverk yfir að þurfa borga þessi námslán og hef ekkert getað fengið að vita upphæðina fyrr en í dag en ég var búin að ímynda mér að þetta væru skyhigh upphæðir og ég þyrfti að fara að leita mér að ekstra vinnu. Svo fæ ég yfirlitið í dag og þetta er varla upp í nös á ketti. Ég hefði átt að vera aðeins meir stressuð yfir þessu.
Ergo: Eins og allir nútíma gúruarnir segja þá á maður ekki að vera að gera sér svo miklar áhyggjur yfir framtíðinni heldur að einbeita sér að því sem að maður er að gera nú, akkúrat núna og það er það sem gildir. En hvað það er satt.
Ég sleppti bara tári lausu í morgunn þegar að ég las að Steve Irwin væri dáinn. Voða sorglegt en besti mátinn fyrir hann að deyja á. Ekkert betra en að deyja við það sem að manni finnst skemmtilegast í heimi. Eða......hmmm....veit samt ekki alveg.
Annars er það í fréttum héðan frá Horsens að það voru Rolling Stones tónleikar hérna í gær. Þeir hafa fengið mjög góða dóma. Ég fór nú ekki enda finnst mér Rolling Stones ekkert til að hrópa húrra fyrir. En 85 þúsund manns finnst það. Ég hefði nú getað heyrt þá í bakgarðinum en ég fór bara snemma að sofa en þeir heyrðust alla leið hingað upp eftir.
Ég er alveg mis í að taka myndir en ég á vist einhverjar síðan við vorum í Heidepark, eða var ég búin að láta þær inni. Man ekki en þá ætla ég að gera það, ef ég nenni. Ég er búin að fá staðfest af hverju ég er svona gleymin en of mikið sjónvarpsgláp er orsök þess. Það hefur rannsókn einhversstaðar staðfest fyrir mig. Me and tv are like this. You know like hand and a glove.
Jæja, nog i bili, bæjo
|