|
24/10 2006
Nu er haustið komið og það rignir og rignir. En mér finnst rigningin bara góð svo lengi það rignir ekki í fríinu mínu eða í gegn um þakið.
Ég fékk flatkökur í dag. Uppáhaldið mitt. Æðislegt og svo fékk ég ýsu í gær, íslenska, voða góða. Ég hef nú soðið mér danska ýsu og hún er bara ALVEG EINS. Ekkert fiskipjatt hjá mér.
Jæja, ég hef nú eitthvað voða lítið að skrifa núna, í staðinn ætla ég að lata inn einhverjar myndir fyrir áhugaverða, og hver hefur nú ekki áhuga á að skoða myndir af mér, HA!
19/10 2006
Kellingin er alveg orðin óð í blogginu, bara farin að blogga a nokkura daga fresti.
Annars er föstudagskvöld núna og ég bara ein heima með Berthu. Timo að djamma með strákunum úr fótboltanum. Ég fór á bókasafnið og náði mér i ca. 20 geisladiska og er í tónlistarbrjálæði hérna og það besta við það er að ég fann mér nýja góða söngkonu, Heather Nova að nafni. Alveg helv.. góð. Svo fyrir slysni þá tók ég disk med the tears sem að ég vissi ekkert hvað var, og ég helt að þetta var tears for fears, ég var ekkert að lesa almennilega á þetta, en viti menn, ég fór heim og skellti disknum á og kom hann mer svona skemmtilega á óvart og eitthvað kannaðist ég við röddina í kauða og eftir nánari rannsóknir kom það í ljós að þetta er söngvarinn úr Suede í nýju hljómsveitinni sinni, the tears og diskurinn heitir því skemmtilega nafni, Here come the tears.
En annars tók ég allt milli himins og jarðar, mest gamal og gott eins og Stevie Wonder og Led Zeppelin. Eftir margra ára hlé heyrði ég aftur "all my love" med LZ og þá lokaði ég nú bara augunum og var komin aftur í Galtalæk þarna um árið og sá Laufey fyrir mér með Kenwood á öxlinni. Já þetta hljómar svart ef að þú þekkir ekki söguna. En alltaf fer ég í gott skab á að heyra þetta lag.
Ég var að skoða icelandairwaves siduna og það er ekkert smá hvað það er komið mikið af íslenskum hljómsveitum. Það liggur við að annar hver maður er í hljómsveit. Það er eitthvað annað en þegar ég var ung og þá var það bara Sálin hans Jóns míns, SS Sól og Jet Black Joe sem að var á sviðum bæjarins. En ég verð að viðurkenna að ég man ekki eftir neinum af þessum íslensku böndum sem að maður var að flakka um í bænum til að sjá. Nema auðvitað Dead Sea Apple.
Those were the days, þegar maður var alltaf á tónleikum.
Guð, ég er að fara á fótboltaleik á morgunn, sem er svo sem okey, en það er á milli Horsens og Bröndby og Bröndby er "THE LIÐIÐ" hans Timo og hann verður superæstur yfir svona. Ég verð að muna að taka með mér eyrnatappa.
Ég er annars búin með 24 núna, og er að deyja yfir að þurfa að bíða og sjá hvað gerist í fyrsta þættinum af season 6. Þeir láta mann bíða í spenningu núna. That is just plain mean. En ég hef þó Prison Break á meðan.
Jæja, er þetta er orðið gott.
"GOTT"
Eins og var í áramótaskaupinu þarna um árið. Maður þyrfti nú að næla sér í það, ég held svei mér þá að þetta sé ennþá til á spólu hjá pabba.
Góða nótt og góða helgi.
Ég ætla að enda með lagi dagsins, ef ekki mánaðarins, "To the end" med Blur.
15/10 2006
Jello, er í smá hlé frá Jack Bauer en ég er komin að episode 15 og þetta getur ekki verið meira spennó. GEÐVEIKT SPENNÓ. Juuuu.....
Annars er ég bara þreytt í dag en ég fór í afmælispartý í gær og var edrú á bíl en það fyndna við það er að ég var til kl 2 og skemmti mér konunglega. Dansaði meira að segja. Edrú. En það er víst alveg hægt. Ég var sem sagt í afmæli hjá Freyju vinkonu minni, og það voru ekki færri en fjögur þjóðerni í partýinu, frá danmörku, íslandi, bosníu og ungverjalandi. Alveg frábært.
Eina ástæðan fyrir að ég var edrú er að ég nenni ekki að eyða deginum í dag i ekki neitt því við þurftum að vinna í þvottahúsinu í dag, en við vorum að klára að henda út síðasta gólfbitanum. Í staðinn er ég að deyja úr þreytu, því ég drakk svo mikið kaffi í afmælinu að ég gat ekki sofnað fyrr en klukkan 5 í nótt og vaknaði kl 9. Tah tah.... wakey, wakey.
Kaupmannahafnar ferðin mín og Hrafnhildar er komin á hreint en við náðum að kaupa Orange miða í lestina þannig að við spörum hellingspening, en við förum þann 10. nóv og hittum Kristrunu sem að verður geggjað, og svo á laugardeginum hittum við Gogga vin minn, George Michael, the rebbel. Það verður frábært og svo á sunnudeginum förum við heim. Þetta er alveg stórreisa, en ég hef ekki farið til köben til að vera í köben síðan þarna um árið 2001.
Ég er annars orðin frekar ferðasjúk mig langar bara að fara til einhvers lands annað en íslands en það lítur ekkert úr fyrir það á næstunni, af því að ég fer til Íslands næstu páska og ég verð að eyða síðasta fríinu mínu í það plús að við eigum engann pening í eitthvað svona ferðadæmi. :-( Maður verður að endurnýja þvottahúsið.
Maður getur þó ekki kvartað of mikið, maður er búin að prófa ýmislegt, Thailand, Ástralíu, Bandaríkin, Canada, Egyptaland, og svo auðvitað Evrópu en mig vantar helling þar. Aldrei verið í Paris, Róm eða Amsterdam, Barcelona og fleira.... úff , jú ég verð að kvarta, maður á líka allt of mikið eftir. Ég verð að fara finna mér annað jobb, eitthvað þar sem að ég get ferðast frítt og nýtt tímann minn í það. Eitthvað annað en að sitja á sama rauða skrifstofustólnum ár eftir ár eftir ár eftir ár og glápa á tölvuskjáinn og fá að vita annan hvern mánuð það nú hefur þessi sagt upp eða þessi er rekinn, og eftir sit ég, súr og niðurdregin yfir af hverju í ósköpunum ég hætti ekki bara og fór að gera eitthvað annað....... AAAAA ég verð að hætta að hugsa svona, ég byrja bara að hræða mig....
Nei, nei, þetta er nú ekki al slæmt, ég vil nú ekki að þið séuð eitthvað að halda að ég sé orðin þessi niðurdregna, gamla kelling sem að starir bara á skerminn daginn út og daginn inn og það eina sem að að heldur henni gangandi er að hún á sitt eigið blogg sem að enginn skilur en hún skrifar samt í von um að einhver, bara einhver skilji eftir spor sín á blogginu. Eitthvað til að gleðja hennar litla, rauða hjarta sem að hamast eins og risahönd sem að er að reyna að berja sig út úr pínulitlu herbergi, í hvert sinn þegar hún fer á karate æfingar og henni langar bara að æla á gólfið.
Jæja...... ég held að þetta sé nóg. Þreytan að taka yfirhöndinni. Ég var að taka eftir því en ég er með ógeðslega stóra höku á þessari mynd í logoinu mínu. Ógeðslega fyndið. Sérð þú það líka?
Bæjó.
11/10 2006
Miðvikudagur og aftur fótbolti í kvöld. Danmörk - Lichtenstein og Ísland - Sverige. Jæja, hvernig ætli það fari, 0-30 fyrir Svíþjóð og 0-0 í Danmerkur leiknum. Brilljant.
Ég var í karate í gær og einn þjálfarinn er alinn upp við mjög erfiðar æfingar og finnst voða sniðugt að við fáum að kynnast því og lætur okkur púla geðveikt. En sem betur fer sá hann bara um að hita upp og það var alveg nóg. Svo þegar það var búið þá förum við í okkar hópa og stöndum þarna og tölum við þjálfarann okkar. Svo allt í einu heyrir maður bara svona "sprjaut og fruss", og ég lít til vinstri og þá hafði ein stelpan ælt og hélt fyrir munninn á sér á meðan þannig að það frussaðist út um allt. Einn gaurinn fékk æl á gallann sinn og gólfið var allt í ælublettum. Greyið stelpan. Hún var bara veik af þessari upphitun. Hún fór bara heim. Ég hafði í fyrsta sinn í mörg ár svefngalsa þar sem að það þarf mjög lítið til að maður byrjar að hlæja og ég þurfti virkilega að halda í mér yfir þessu en mér fannst þetta alveg rosa fyndið. Reyndar finnst mér það ennþá. Að standa bara og æla allt í einu. Hahahahhahaa..... en samt gott að þetta var ekki ég, þó mig hafi oft langað bara að æla þegar það er erfið æfing.
Annars styttist alveg óðum í brúna beltið, bara 2 mánuðir en prófið verður þann 9. desember. Ég þarf nú samt alveg helvíti mikið að æfa mig í Ushiro-geri, en það er afturábak spark, helvíti tricky. Annars er Tekki shodan á programminu, ég bara varð að skrifa það því ég veit að þú ert að deyja úr forvitni yfir hvaða kata ég á eiginlega að gera í prófinu. Ég er að spá í að láta Timo taka video af því og þá læt ég það á síðuna mína. Ji, hvað ykkur getið hlakkað til.
Ég var að kíkja á hvað það geta verið margir á laugardalsvelli á fótbolta leik og þetta stendur:
Áhorfendur
Stúka austur - 3.500 númeruð sæti
Stúka vestur - 3.500 númeruð sæti
Stæði - 7.000
Heildarfjöldi - 14.000
Mesti áhorfendafjöldi á einum leik
20.204 á leik Íslands og Ítalíu,18. ágúst 2004.
Okey, þau tróðu bara 6.204 manneskjum ekstra inn. Flott.
Jæja, Timo er ánægður, 2-0 fyrir DK og ég er farin héðan. Over and out.
07/10 2006
Hæ, Ragna Bauer hérna. Var að koma heim eftir að hafa vakað í 24 tíma. Þurfti lige að redda drottningunni yfir að verða "assassinated" og Horsens frá terrorista árás. Hafið ekki áhyggjur, enda hafiði ekkert heyrt um hvað hefur gerst síðustu 24 tíma en Ragna Bauer reddaði þessu á meðan Timo braut upp gólfið í þvottahúsinu. En það er byrjuð árás á það. Spennandi.
Bertha er með flær, og ég geri ekki annað en að klóra mér við tilhugsunina. En það á ekki að hafa nein áhrif á okkur mannfólkið en hún er komin á kúr dúllan. Greyið, búin að klóra sér í viku og við föttum ekki neitt. Díses.
Núna er landsleikur, danmörk-norður írland og ísland-Lettland er að spila líka og það er 2-0 fyrir LETTLANDI!!!! Hvað er þetta!
En danirnir eru nú að standa sig vel. Ennþá 0-0 þó.
Haustið er komið, rigninginn byrjuð og vindurinn byrjaður að bíta mann. Þvílíkt sumar sem að við erum búin að hafa í ár fra maí til september. Dejligt.
Jæja, ætli ég fari nú ekki að heppa á leikinn. Styðja kallinn minn. Hann, Bertha og flærnar biðja að heilsa.
tútílú.
02/10 2006
Úff, búin að horfa á season 4 af 24 timum og ætla að fara að byrja á season 5. Er með þetta á cd en annars er season 5 í sjónvarpinu núna. Ég er með þetta á heilanum. Ég byrjuð að hugsa eins og Jack Bauer. Allir eru terroristar og ég þarf að fanga þá til að finna úr hvar næsta target er. Er einhver meira cool en hann... I do not think so. Ju kanski líka Michael Scofield. Prison Break u know. Verð að fara að næla mér í season 2 þannig að að maður geti lagst i þann pakkan líka. En þetta tekur ekkert smá tima, dís. Enda leyfi ég mér ekki að horfa á neitt í sjónvarpinu nema Greys anatomy, og svo eitthvað þegar ég og Timo erum bæði að horfa. Annars myndi ég ekki gera annað.
Hvað er annars að frétta? Hmm, látum okkur nú sjá. Jú, var í rosa fyrirtækispartýi þar síðustu helgi. Útitónleikar með öllu tilheyrandi og allt frítt. Þannig að það er kanski hægt að ímynda sér, ekki gera það samt, hvað fólk var drukkið. En gaman var það. Ó, já. Svo fórum við í 30 ára afm á föstudaginn en það var sem betur fer rólegt og við vorum heima kl 1.
Ég og Timo erum að fara að ráðast í það að endurnýja þvottahúsið okkar og mun hann henda innréttingunni út í vikunni og byrja að brjóta upp gólfið um helgina...... :-| o, my god..... Þetta mun taka okkur 3 ár. En við keyptum þurrkara í dag. Jibbí, þá get ég þvegið ennþá meira og ég elska að þvo. En ég fyrst byrjað að þurrka eftir 3 ár
Jæja, eigum við að segja þetta gott í dag, því það lítur út fyrir að það sé að fara að rigna og verð ég að koma mér í skjól. Annars rignir sjaldan hérna í eyðimörkinni. En það er svo sem ágætt því þá fæ ég eitthvað vatn að drekka. Eina sem að hægt er að drekka hérna er sake, enda búin að fá ógeð. Ekki skrítið eftir 3 mánuði í eyðinni.
Over and out frá Sahara.
|