|
25/11 2006
Jeminn eini hvað ég er þreytt en ég get ekki sofið. Klukkan er 21 og dagurinn er dagurinn eftir jólafrókostinn í vinnunni. Stórhættulegt að fara í veislu á vegum jem&fix. Maður drekkur allt of mikið og verður allt of fullur. Það var samt mjög gaman. Svo vakna ég alltaf um 9 leytið eftir fyllerí, og get svo ekkert sofið. Ég gat þó tekið mig saman til að þrífa baðherbergið og að elda bollur í karrý.
Annars gengur lífið alveg eftir áætlun. Hver einasta mínuta plönuð fram til ársins 2012. KL 13:01 þann 22. juni árið 2008 ætla ég og timo að sitja á kaffihúsi í Auckland, Nýja sjálandi og éta brunch. Nei, nei ég segji bara svona, það er ekkert plan, og ekkert ferðaplan heldur en vonandi fer maður eitthvert annað en til íslands. Því fyrr því betra. Mig langar til Ástralíu aftur og suður-ameríku, og nýja sjálands.
Þvottahúsið er að verða klárt, á bara eftir að mála og svo kemur innréttingin á föstudaginn og planið að láta hana upp á sunnudaginn eftir viku. Á morgunn verður húsið tekið í gegn í hreingerningum. Það er ógeðslegt hérna. Þú ert annars velkomin/n til að koma hérna einu sinni í viku og þrífa fyrir mig. 50 kall á timann..... gúd, jé?
Það er barna söngvakeppni í sjónvarpinu, danmark, norge og sverige að keppa, þetta er svo sætt, þau lifa sig svo inn í þetta. Æðisleg.
Jæja, við ætlum að fara að glápa á eitthvað annað þó og éta snakk, nammi og drekka 4 lítra af kóki og svo ekki stíga á vigtina fyrr en á næsta ári. Þar sem að jólin eru nú að nálgast, þá þýðir ekkert að vera að tékka á þyngdinni.
ciao bella.
20/11 2006
Já, við fundum út úr af hverju þvottavélin fékk kast þarna um daginn, en við áttum vist að fjarlægja einhverjar flutningsstangir sem að eru settar inn i vélina bakvið. Stendur með stórum þykkum stöfum á leiðbeiningunum, "ef að þú fjarlægir ekki þessar stangir þá geturðu eyðilagt vélina og ábyrgðin ennur úr gildi". Þetta sáum við daginn eftir. En við vorum sem betur fer bara búin að þvo einu sinni og hún þvær allavegna núna.
Annars lítið að gerast, erum núna að taka veggfóðrið af þvottahúsinu leiðinlegasta sem að ég veit. Á miðvikudaginn kemur rafmagnskall og installar fyrir okkur innstungum fyrir þvottavélina og þurrkaran. Svo kemur annar gaur og pússar veggina og lætur nýtt veggfóður og svo er planið að láta innréttinguna upp fyrstu helgina í desember.
Jólafrókost í vinnunni á föstudaginn og ég á engin föt til að fara í. Alveg mis. Ég er allt í einu að sofna þannig að ég segji þetta gott í dag.
Ciao.
17/11 2006
6 dögum síðar og ég er enn með Gogga á heilanum. Dreymdi í nótt að hann var í bænum og var að fara að innspila video og ég var að reyna að koma mér í það til þess að geta hitt hann. Það tókst þó ekki en ég sá hann þó. Leiðinlegt að vakna eftir svona draum. Goggi minn, ef að þú lest þetta og færð einhvern til að þýða þetta fyrir þig þá langar mér aðeins að spjalla við þig um daginn og veginn, jú nóv. Só djust koll mí, jú nóv ðe number, hon' ;-)
Annars er planið hjá mér að gerast international og byrja að skrifa á ensku. Þá er ég laus við að skrifa bæði á íslensku og dönsku. Dönsku aðdáðendur mínir eru alveg að verða brjálaðir á því að ég skrifa svona sjaldan á dönsku.
Það verður dálítið erfitt þar sem að ég er ekki vön að skrifa á ensku og manni finnst það hálf asnalegt, en ætli maður venst því ekki bara.
Með því kemur líka nýtt design og ný slóð fyrir síðuna. Vú hú, brjálað plan. Vonandi verður eitthvað úr því. Ég er að reyna að miða við 31 ára afmælið mitt, 11. des en veit ekki hvort ég næ því. Er svo busy sko.
Ég er voðalega ánægð með ykkur, þið eruð búin að kíkja mikið á myndirnar mínar á flickr. Ég er nátturúlega með flottasta módelið á jörðinni í albúminu mínu, Gogga og svo ég auðvitað. GREAT attraction.
Annars sagði ég frá því í þarsíðustu færslu að við vorum að kaupa þvottavél, voða glöð en það átti ekki alveg að vera svo auðvelt. Ég hringi daginn eftir að ég panta vélina, í manninn sem að sér um þetta til að spyrja hvenær vélin kæmi til og daginn eftir það finnur hann út úr því að hún kemur fyrst eftir 3 vikur. Við nennum ekki að bíða eftir því svo við afpöntum vélina og ég bið um staðfestingu pr. mail út af þessu sem að ég fæ ekki. Daginn eftir þá er FÁVITINN búinn að taka peninginn út af reikningnum okkar. Ég hringi eins og skot og spyr hvað sé í gangi og þá sagði hann "ég veit en ég er búinn að senda ávisun til ykkar, hún ætti að koma á morgunn". Næsti dagur kemur og engin ávísun. Þá fýkur nú í Timo minn og hann hringir og biðst skýringa á málum, þá segir kauði, "hún hlýtur að koma á morgunn". Svo í dag er engin ávísun með póstinum. Þá verður Timo brjálaður. Hringir í mig í vinnuna og spyr mig hvað hann heitir og ég segji "Michael" og Timo segir að hann muni hringja í hann núna og skamma hann all svakalega.
Svo hringir Timo aftur eftir smá stund í mig aftur og spyr hvað númerið sé, og svo bætti hann því við að hann hafði séð eitthvað númer á seðli hérna heima og hann hélt að það þvottavélagaurinn og hann hringir í það. Maður svarar með nafni "Ja, det er Michael" og Timo byrjar strax að æsa sig "FOR FANDEN MAN, NU SKAL DU BARE GIV OS DE PENGE TILBAGE". Maðurinn á hinni línunni er alveg undrandi yfir þessu og segir bara "HVEM ER DU?",
"JA, DU SKAL OVERFØRE DE PENGE NU"
"SLAP DOG AF, MAN. HVAD SNAKKER DU OM????"
Þá fer Timo aðeins að hugsa og spyr við hvern hann sé að tala. "JEG HEDDER MICHAEL BØSE" og Timo "OH....... VUPPS, HEJ MICHAEL HVORDAN GÅR DET?"
Þá hafði hann hringt í einn úr fótboltanum.
En svo að það sé haldið áfram með hina söguna þá hringdi Timo í kallinn og sagði það sama við hann sem að hann sagði við vin sinn, og hann lofaði öllu fögru. Timo talaði líka við bankann og þetta ætti ekki að tapast. Kemur í ljós í næstu viku hvort að maðurinn er algjör fáviti eða bara lélegur bisness maður. Ekki kaupa hjá www.handelsgruppen.dk
Í millitíðinni erum við búin að kaupa sömu þvottavél annarsstaðar við og fengum hana 500 kalli ódýrari (5000 isk) og í hús 2 dögum seinna. Við gerðum tilboð á www.peterspris.dk og fengum hana með sendingakostnaði á 3500 kall danskar. Kjarakaup. Kostar 5500 út í búð.
Þvottahúsið er komið með gólf þannig að við prufukeyrðum vélina í gær og þurrkaran. Ég henti í vél áður en ég fór í karate, yfir mig hamingjusöm yfir að vera komin með nýja vél og yfir að geta þvegið.Svo þegar ég kom heim sagði Timo mér frá því að hann hafði lent í slagsmálum við þvottavélina.
Hann lá í makindum sínum inni í sófa að horfa á sjónvarpið þegar hann og Bertha heyra brjáluð læti. Hann fer að spá í þessu og ákveður að tjékka á þvottavélinni. Hann opnar inn í þvottahús og sér þá að vélin er búin að flytja sig 20 cm til vinstri upp að veggnum og hamrast að honum. Hún er á fullu við að vinda þvottinn, á 1400 snúningum, by the way. Hann veit ekkert hvað hann á að gera og reynir að halda í vélina en það gengur ekkert, þá ákveður hann að reyna að klifra upp á hana til að fá hana til að stoppa þessum látum en hann réð ekkert við hana. Lá bara upp á henni og hristist eins og hlaup. Þangað til að hann grípur til þess ráðs að kippa henni úr sambandi. Djöfull hefði ég verið til í að sjá þetta.
Ég er alveg skrifuóð núna en planið var að vera að gera allt annað. Ég fór á bókasafnið áðan og tók 28 diska og 2 bækur. Er núna að hlusta á Earth, wind and fire. Alveg brilljant.
"do you reMEMBER, when..... , SEPTEMBER." jú nóv?
Jæja, ég vona að þið nennið að lesa þetta en það er kanski dáldið erfitt þegar þetta er svona langt. Ætla þó að fara að snúa mér að öðru. Bið að heilsa öllum heima. Vú, ég er búin að drekka eitt rauðvínsglas meðan ég er búin að skrifa þetta og það svífur allmikið á mig, orðin rauð í kinnum og læti.
Hafið það gott um helgina. Bæjó.
13/11 2006
WOW!!!!!! Þetta var bilun, þetta var frábært, þetta var geðveikt, þetta voru BESTU TÓNLEIKAR SEM AÐ ÉG HEF UPPLIFAÐ OG MUN NOKKURN TÍMA UPPLIFA, nema að ég sjái hann aftur, sem að ég ætla að gera, og þá helst one on one :-)
Noh, ég og Hrafnhildur fórum sem sagt til köben á föstudaginn og vorum komnar í stórborgina kl 13:30. Leiðin lá þá beint á "hótelið" okkar hjá Snorra, gömlum horsens búa, út á Amager. Slöppuðum við aðeins af áður en við fórum niður í bæ til að fá okkur í gogginn og hitta systur Haddy og svo seinna að hitta Kristrúnu vinkonu.
Það var æðislegt að hitta hana og við fórum svo fimm út að borða á ítölskum stað í hjarta köben og það voru næstum bara íslenskar konur þarna inni. Alveg óðar í ítölsku þjónana. Við vorum alveg á íslenskum tíma og mættum á staðinn kl 21:30. Svo kom Snorri og Hjalli að hitta okkur en þeir höfðu verið á Iron Maiden tónleikum um kvöldið. Þetta endaði í algeru pöbbarölti um bæinn í leit af fólki sem að við fundum ekki. Lentum inn á mesta plebba stað í köben og við vorum öll hissa á því að verðirnir hleyptu okkur inn eins og við vorum klædd. En við stöldruðum þó ekki lengi við. Ég var svo alltaf á leiðinni heim en Haddy, Snorri og Hjalli vildu stoppa hér og þar og taka öl og svo á næsta pöbb, en ég var alveg að reyna að vera skynsöm og halda mér á mottunni svo að ég myndi ekki eyðileggja fyrir mér morgunndaginn.
Við vorum svo komin heim um 2 leytið og þau sátu og drukku til kl 5 en ég fór undir sæng um 3 leytið. Svo vakna ég eins og hani um hálf níu leytið og sofna ekki aftur þó svo að ég reyndi eins og ég gat eftir morgunnmatinn en ég var orðin svo stressuð út af þessum tónleikum að ég gat það ekki. Ég ætlaði að vera framarlega og ég vissi að þeir sem koma fyrst fá pláss fyrir framan sviðið þar sem að það er lokað fyrir aðra.
Þannig að klukkan 14 byrja ég að plana og segja við Haddy að við yrðum að gera hitt og þetta og svo drifa okkur í hinu og þessu. Við þurftum auðvitað að gera okkur til, svo fara niður í bæ og fá okkur ad borða og svo gátum við farið á tónleikana en það tekur líka tíma með lest yfir á österport og svo 15 mínútna labb til Parken. En þetta gekk allt eftir áætlun og við vorum í góðum tíma en vissum ekkert hvert við áttum að labba til Parken, bara í hvaða átt. Svo löbbum við og löbbum og enginn Parken. Svo spurðum við einn vegfaranda og þá vorum við búnar að labba fram hjá. Þá verður Ragna dáldið stressuð og fer að gefa í. Haddy greyið ekki alveg í sínum bestu skóm en lætur sig hafa það. Sem betur fer var klukkan rétt um fimm þegar við komum svo loksins á staðinn. En það átti að opna kl 17:30. Það var ekkert rosalega mikið af fólki komið en þó nokkuð. Svo létu þeir okkur bíða til klukkan að verða 6 með að opna þannig að maður var alveg að missa þolinmæðina. Líka af því að maður vissi ekkert hvort maður kæmist inn á þetta lokaða svæði eða ekki. Svo þegar við loksins komum inn þá er maður svo æstur að maður vill bara hlaupa að sviðinu en það var hellingur af starfsliði sem að reyndi að róa fólk niður og banna því að hlaupa.
En við komumst svo á plássið, alveg fyrir miðju ca. 15 metrum frá sviðinu. Það lá við að ég byrjaði að grenja. Bara útaf spennufalli og svo var ég ógeðslega syfjuð. En ég hélt nú í mér. Tónleikarnir áttu svo að byrja kl 20 þannig að það var tími til að róa sig niður. Við keyptum okkur rauðvín og hvítvín og Ragna þrufti endilega að brussast og hella niður hálfuglasi af rauðvíni en sem betur fer skvetti ég ekki á fólk því við sátum helvíti þétt þarna.
Svo er kl átta og maður orðinn óður í að sjá goðið. En lítið gerist og eina tónlistin sem að maður heyrir er brjáluð sinfónía, ekkert rosalega hátt fyrst en svo hækkuðu þeir upp í henni hægt til að æsa mannskapinn upp. Ég var alveg að verða geðveik á þessu. Dudududuudududuuduuuuuuuuuuuuuuuuu....ÉG VIL SJÁ GOGGA. Svo gerðist það. kl 20:30 kom kóngurinn á sviðið. Byrjaði á waiting, af listen without prejudice, án þess að sýna sig fyrr í enda lagsins þegar hann syngur "Here I am!!!!!", Okey, Ragna trylltist sem aldrei fyrr. Jeminn eini, svo kom bara hvert snilldarlagið á fætur öðru, Flawless, Jesus to a child svo að eitthvað sé nefnt og 2 wham lög , I'm your man og everything she wants, sem fékk Parken til að springa. Hann tók svo Shoot the dog með tilheyrandi teiknimynd og þegar það lag var búið tók hann 20 mínútna hlé!?!! Mjög undarlegt, en það var okey. Við hreyfðum okkur ekki úr stað á meðan að á því stóð, enda vorum við á pottþéttum stað, rétt fyrir framan manninn.
Hann kom tilbaka jafn öflugur og hann var fyrir hlé og lét klappa sig inn tvisvar í lokin og spilaði þá Careless whisper, my favorit, þó að ég get ekki gert upp á milli laga hans, og svo endaði hann á Freedom 90. ´
Hann sló alveg í gegn og röddin í honum er klikkuð, hann syngur ólýsanlega vel.
Það var erfitt að koma niður á jörðina aftur eftir tónleikana og er ég ennþá á tónleikunum. Hef bara sjaldan verið svona eftir mig eftir tónleika.
Eftir á kíktum við aðeins til systur Haddy og fórum svo heim í háttinn og svo heim með lestinni til horsens kl 14 í gær. Búnar á því og líka í dag. Maður er ekkert unglamb lengur.
Hrafnhildur: Takk fyrir frábæra ferð. Snorri: Takk fyrir gistinguna og Goggi: takk fyrir frábæra tónleika.
Sjá myndir hér George Michael og CPH
06/11 2006
Jæja, gott fólk, bara 4 dagar í brottför. Stórborgarferð mín og Hrafnhildar fer að eiga sér stað. Ég er á fullu að reyna að hætta með hóstann/kvefið mitt því ég nenni ekki að vera að kafna í hvert sinn sem að ég þarf að syngja hástöfum með Gogga mínum. En ég kvefaðist eftir að hafa hlupið heim þarna um daginn á sokkunum. En hvort á maður að kvelja sjálfan sig í nokkra tíma eða fá kvef? En þar sem að heilinn minn var ekki alveg upp á sitt besta þetta kvöld þá er maður ekkert að spá í því.
Ég og Hrafnhildur kíktum í bæinn á föstudagskveldið í tilefni að jólaölinn var að koma á götuna. Ég var þó bara edrú á bíl þannig að ég fékk bara smá smagsprufu af bjórnum. En ég einmitt þá allt kvöldið ef að ég ætlaði að segja e-d við Hrafnhildi þá byrjaði ég að hósta. Óþolandi. Nenni því ekki í köben sko.
Ég var að kaupa þvottavél á netinu. Vuptí, dúptí. En það var svona smá inni í myndinn að við myndum kaupa nýja en ekkert svo nauðsynlegt. En í gær héldum við að við gætum stungið henni í samband og byrjað að þvo úr hrúgunni okkar en við litum bara á hvort annað og svo sagði Timo "Eigum við ekki bara að kaupa nýja þvottavél?"
"Jú jú" sagði ég og hló eins og skessa.
Jæja, ég þarf víst að vaska upp og panta tima í þvott hjá Önju.
01/11 2006
Góðann daginn gott fólk. Klukkan er 9 um morguninn og ég er í vinnunni en get ekkert unnið þannig að ég verð bara að blogga í staðinn.
Jamen, allt gott að frétta. Ég sá smá lítil snjókorn falla úr himninum í dag og það er skítakuldi. Í gær voru 9 gráður og í dag bara 2....Arg, ég sit líka hérna ennþá í úlpunni minni.
Það gengur hægt og rólega með þvottahúsbreytingarnar okkar. Timo og frændi hans voru búnir að leggja allt klárt til að það væri hægt að steypa en svo fengum við að vita að það var of langt niðri þannig að ég og Timo þurftum að hækka undirlagið í gærkvöldi og þá var það of hátt.....úff... .ekkert annað en vesen. Endar ábyggilega með að gólfið verður rammskakkt. Og við erum enn án þvottavélar, algert vesen. Svefnherbergið er að drukkna í óhreinum þvotti. Við erum búin að fara 2svar í mat hjá fólki og tókum með okkur fulla körfu af þvotti. Þurfum að finna okkur mat og þvottastað um helgina. Ekkert sérstakt að gerast þessa helgi sem að er fínt.
Við vorum í fótboltapartýi á laugardaginn og sunnudagurinn var alveg ónýtur hjá okkur. Gjörsamlega. En gaman þó í partýinu þangað til við vildum fara heim því það er VONLAUST að fá leigubíl í Horsens nema að panta med 2ja til 3ja tíma fyrirvara. Þannig að Timo byrjar að labba heim og ég stuttu eftir á sokkunum. Það er erfitt að vera kona og að vera í háhæluðum skóm. Svo týndi ég maskaranum mínum. Ég er eins og sjúklingur í vinnunni þegar ég er ekki med maskara. Nauðsynlegasta snyrtivaran sem að maður getur fengið. Og ég hef ekki getað keypt mér nýjan því Timo er á kvöldvakt og ég kemst ekki neitt til að kaupa. En ég vona á morgunn nái ég því áður en ég fer í karate.
Jeminn, þetta er eitt af mínum skemmtilegustu bloggum, svo fræðandi og fyndið. Bara ég bloggaði alltaf svona.
En ég er bara að drepa tímann.
Jæja, gleðilegan nóvember og við bloggumst síðar.
|