Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
2006
Desember 2006
Nov 2006
Oktober 2006
September
Agust 2006
Júlí 2006
Juni 2006
Maj 2006
Feb 2006
April 2006
2005
2004

30/12 2006

 

Ég á vakthund sem að hræðir úr mér líftóruna á nóttunni. Í nótt vakti hún okkur kl 5 með gelti og látum en hún var hérna inni í stofu að gelta að einhverju. Þá verður maður dáldið hræddur og heldur að það sé innbrotsþjófur að koma. Ég lét bara sem að ég væri sofandi og Timo þaut upp úr rúminu til að tjékka á þessum látalátum en komst ekki að neinni niðurstöðu af hverju Bertha fékk geltikast.

En hún ætti þá að geta vakið mann ef að það kviknar í eða annað.

 

Jæja, ætla að fara að gera mig klára fyrir bíóferðina stóru. Enda klukkutími þangað til myndin byrjar.

 

Farið varlega á morgunn. Það var einn að sprengja af sér höndina hér í Danmörku í gær. Ógeðslegt. Munið hlífðargleraugun.

 

Gleðilegt ár og takk fyrir allt gamalt og gott og gömlu kommentin sem að gjarna mega vera fleiri á næsta ári. (En ég er nú ekki betri sjálf, kvitta aldrei :-| )

 

Bæjo

 

28/12 2006

 

Oh, greyið Bertha mín. Hún þorir ekki að vera úti í garði núna á kvöldin út af flugeldum. Þorði rétt úr að skíta áðan og hljóp svo inn eins og skot. Hún kíkir bara upp í loftið og svo hleypur svo inn þegar við opnum fyrir henni. Greyið litla músin mín.

 

Ég er annars bara hálf full núna. Var í 13. ára afmæli áðan hjá frænda Timo og stjúpsystir hans hellti í mig hvítvíni að ég varð næstum að flýja út áður en ég yrði ofurölvi. Annars er ég dáldið að ýkja núna en samt óþægilegt að vera svona hálf skökk..... hmm...

 

Ég nýt þess annars í botn að vera í jólafríi, sofa til kl 10 á morgnanna og fara í háttinn kl 2 á nóttunni. Það er frábært veður hérna, eiginlega heitt miðað við 28 desember. Maður getur verið á stuttermabol úti í garði í 2 mínutur án þess að frjósa. Það liggur við að rósirnar fari að springa út aftur en þær blómstruðu annars fram í miðjan október í ár.

 

Úúuuuu... vitið hvað kemur í sjónvarpinu klukkan 22 á National Geographic í kvöld...... "Fight Science"..... og svo "Top 10 Kung fu vopn" og svo "Kung fu munkurinn" og svo "Kick fighters" þetta er fyrst búið kl 03 í nótt..... Ég er búin að bíða eftir þessu allan desember.

 

Annars leið mér hálf asnalega á síðustu æfingu fyrir jólafríið því að við áttum að slást og það voru allir með svart belti nema ég og 2 aðrir. Ég var svo hrædd og lítil að ég þorði engu og fékk ég líka eitt spark í andlitið. Þegar maður á að slást með fólk sem að er búið að æfa styttra en maður sjálfur þá finnst manni maður vera voða góður en ekki þarna. Þá var maður bara alger AULI. Svo á ég ekki einu sinni hanska eða tannhlífar og allir bara með allar græjur til að slást.  But one day, some day,.....

 

við erum að fara í bío á laugardaginn á Casino Royale, með lækre Craig eitthvað og Mads vini mínum Mikkelsen. Stórviðburður að fara í bíó enda kanski í annað skipti í ár. Tekur 2 tíma að gera sig klára fyrir svona viðburð, hvaða fötum maður á að fara og svo setja hárið og mála sig... úff... En 90 kall á mann miðinn... shit, ég poppa áður en ég fer og fer með sódastream.

 

Bæjó og Gleðilegt ár ef að ég sé ykkur ekki fyrir það....

 

27/12 2006

 

Af því að við vorum bara flottustu systkyn i heimi þá vil ég láta þessa mynd hérna inn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  og af því að ég og sætasta, fyrsta besta vinkona mín (Nana) vorum bara mestu dúllur í heimi þá vil ég láta þessa mynd inn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 25/12 2006

 

Gleðileg jól!

 

Ég er alveg glötuð, ætlaði að senda jólakort til ykkar á mail en kom mér ekki í að fiffa einhverja fína mynd af okkur. En ég sendi ykkur öllum hugskeyti í staðinn. Þið eruð kanski búin að fá það :-)

 

Takk annars fyrir jólakortið, Magga, Hanna og Sigrún Alda. Það gladdi mitt litla hjarta að þið skilduð senda mér kort og fá mynd af litlu dúllunum ykkar :-)

 

Við erum annars búin að hafa það gott. Ég skellti mér í skötu og saltfisk á þorláksmessu en íslendinga félagið hérna býður upp á þetta. Rosa fínt og var skatan mjög góð, ekki of kæst. Hef ekki fengið hana í 15 ár eða svo og svo saltfisk líka sem var æði. Ég var ógeðslega södd, úff. Ég gat svo keypt íslenskt nammi, súkkulaði og lakkrís sem er æði svona á jólunum og var ég að hakka í mig eitt sett með kaffinu mínu.

 

Við fórum til Önju og Michaels í gær og vorum við 7 þar, 5 fullorðnir og 2 börn. Mjög næs og rólegt. Jólasveinninn kom í heimsókn með gjöf handa Nikoline (4 ára) og Anemone (2 ára). Þegar hann var farinn þá spurði Nikoline mömmu sína hvort þetta var alvöru jólasveinn því hún hélt að þetta var Timo...... hmmmm... En þegar Timo kom þá var hún alveg óð í að segja honum frá því að hann hefði misst af jólasveininum. En það verður einhver annar að leika hann næst.

 

Jæja, ég ætla að henda nokkrum myndum inn á flickr. Bið að heilsa,

Ragna Bára

 

 

 

22/12 2006

Litli frændi minn er 9 ára í dag. Til hamingju með daginn sætasti! Bertha sendir afmælisikveðju til þín og Timo líka.

 

Annars er allt gott að frétta, 2 dagar til jóla og síðasti dagurinn í vinnunni. Er einmitt þar núna en er voða róleg eitthvað, nenni ekki miklu í dag. Er að fara i frí.

Við erum búin að kaupa allar jólagjafir og svo þurfum við ekki að gera mikið meira því við förum til systur Timo á aðfangadag. Svo á gamlárs verðum við með Gitte og Morten og bertha líka sem að er mjög gott. Þá þarf hún ekki að vera ein greyið sem að ég myndi reyndar aldrei gera, skilja hana eftir eina....

 

Það er spáð 10 stiga hita hérna á aðfangadag. Hvað er í gangi? Líst ekkert á þetta. Getur ekki verið gott.

 

Jæja, Ég segji bara Gleðileg jól og farsælt komandi ár fra okkur í Horsens, Takk fyrir allt gamalt og gott.

 

Ætla að tjekka á jólagjöfinni minni fra jem & fix.

 

Bæjo,

 

Ragna "nisse" Báralicious

 

 

17/12 2006

 

NOH, ég var búin að skrifa smá blogg en svo kom feill þegar ég ætlaði að geyma þannig að það tapaðist en það var kanski bara gott því það var bara pirringur á þvi hve leiðinlega helgi ég er búin að hafa, því ég er búin að vera veik síðan á föstudagsmorgunn.

 

Bloggið mitt vill greinilega ekkert svona leiðindarblogg en þar sem að ég er undirnærð vegna matarlystarskorts þá hef ég ekki orku í að skrifa eitthvað skemmtilegt þannig að ég bið bara að heilsa í bili.

 

Hilsen, Ragna

 

(Ætla að kopiera tekstan aður en ég geymi, svo ég þurfi nú ekki að skrifa einu sinni enn)

 

12/12 2006

 

Já, þá er ég orðin 31 árs en það átti sér stað í gær.  Það var nú ágætis dagur, var þó ógeðslega þreytt í vinnunni eftir djammið á laugardaginn. Timo átti að vera á kvöldvakt í þessari viku þannig að ég kom heim í gær með það í huga að vera bara ein með berthu minni og elda mér fiskibollur. Svo kem ég heim og þá birtist Timo allt í einu inn frá stofunni með blómvönd handa mér og afmælisgjöf plús að hann bauð mér út að borða í gær. Fórum á steikhús niðri í bæ og fengum okkur dýrindis nautasteik sem að bráðnaði upp í munninum á manni. Mmmmm.

 

Annars gaf hann mér helgarferð á Den gamle græsekro, helgina 12 til 14 januar. Æði. Aðeins að fara út úr húsinu og út úr Horsens

 

Já, annars var helvíti gaman á laugardagskveldið þó svo að maður hafi verið aðeins of full. En þó engir skandalar sem er alltaf gott. Ekki svo sem mikið um það að segja. Borðuðum saman á hoteli niðri í bæ, voða fínt en maturinn var þó mjög sparsamur og rándýr bjórinn þarna 50 kall. Svo fórum við bara á aðra staði og svo heim.

 

Hahaha, ég var að prófa þetta á www.myheritage.com, ýkt fyndið. Þetta eru 6 asíater og svo Scarlett Johanson og Michael Owen.... Brilljant, enda er ég óð í asíata. Þekki þó ekki helminginn af þessu liði. Mér finnst ég ekkert lík neinum. Cool program þó. Tékkið á því, maður þarf að skrá sig en það skiptir engu.

 

 

Greyið Timo minn er bara veikur í dag og er bara búinn að sofa. Ég er frísk eins og ninja enda var ég að koma þaðan. Tókum það rólega ef að hægt er að segja það þannig en við vorum að leika okkur með að æfa kyrkingatök á hvoru öðru og æfa spörk þar sem einn heldur á púða og hinir sparka og svo hvernig maður á að takast á við brjálæðing með hníf. Mjög áhugavert.

 

Ég er alveg að verða óð yfir að breyta designinu á þessari síðu en kem mér aldrei í það og er bara svo busy. Verð að fara að taka mig á.

 

Ég var að prófa þetta look a like dæmi med mynd af berthu en það voru "no matches" :-)

 

Jæja, þetta var bara smá updeit, er alveg að verða sybbin og ætla að fara að tíja mig í rúmið. Mmm undir hlýju sængina mína.... yndislegt. Maður á að vera þakklátur fyrir að hafa þak yfir höfuðið og rúm til að sofa í, ikke?

 

Góða nótt dúllurnar mínar,

 

See ya later, shaking that ass.

 

 

09/12 2006

 

VÚ, HÚ, þá er ég komin með brúna beltið í karate og aðeins 2 belti í það svarta. Verð nú bara að segja að ég er helvíti stolt af sjálfri mér. Núna er bara partý hjá mér og Berthu, en ég er að gera mig klára til að fara í julefrokost með karateklúbbnum og Bertha er að fara á deit með Simba. Hún er einmitt að þrífa pelsinn sinn núna.

 

Já og svo var matarboð hérna í gær. Mamma og pabbi Timo og svo Anja og Michael og auðvitað Nikoline og Anemone með. Ég bauð upp á þriggja réttar máltíð og allt heppnaðist supervel. Ég held að ég hafi komið þeim mikið á óvart með þessari eldamennsku minni enda er það sjaldan sem að ég legg svona mikið í hlutina. En hef alltaf langað til að prófa. Þetta tók nú þó nokkurn tíma, ég var komin heim úr vinnunni kl hálf tvö í gær og var að til klukkan hálf sex en þó ekki bara við eldamennsku.

Ég fann úr út því að galdurinn er að vera búin að plana allt og skipuleggja hvernig maður ætlar að snúa sér að þessu. Þá er maður laus við allt stress.

Gestirnir fóru allavegna saddir og glaðir heim.

 

Þar sem að ég hafði engann tíma til að vera að hugsa um daginn í dag þá læddist þetta aftur að manni í nótt í undirmeðvitundinni og ég var alltaf að vakna og tékka hvað klukkan væri. Ég var svo stressuð yfir að sofa yfir mig. Við áttum að vera mætt kl 8 þó svo að við byrjuðum ekki fyrr en kl 10:30. Mér leið nú ekki vel, ég var geðveikt stressuð með öllu tilheyrandi, hefði alveg getað ælt ef ég vildi, tók nokkrar kúganir í staðinn og hélt þessu niðri. En þetta gekk og bara ágætlega, man þó lítið hvað ég fékk að vita hvað var að með karateið mitt þegar við vorum að fá að vita hvort við stóðumst eða ekki.

En allt í allt fannst mér þetta bara fint.

 

Svo strunsaði ég niður í bæ eftir á og keypti mér föt fyrir kveldið. Ég varð að finna mér eitthvað síðerma því handleggirnir mínir eru bara þaktir marblettum :-| Altså eftir karateið. 

Svo fór ég heim og lagði mig og núna erum við að djamma hérna ég og Bertha, með tónlist á botni.

 

Timo er jú í Köben að fara á tónleika.

 

Jæja, ætla að fara að dansa við Berthu, hún er að bjóða mér upp í Boogie.

 

Ha' en god aften, vi ses.  SKÅL!!!!!!!!

 

 

06/12 2006

 

Það er bara brjálað að gera. En núna hef ég tíma til að skrifa aðeins hérna inn og létta mínum reynslum og hugsunum. Það er fótbolti í sjónvarpinu þannig að ég er bara búin að loka mig inni í herbergi og er er að hlusta á tónlist og blogga.

 

Er núna að hlusta á David Bowie, einn af þeim diskum sem að ég hef fengið á bókó. Þetta er nú alveg brilljant að geta lánað diska þarna. Nú er ég búin að uppgötva allavegna tvö geggjaða diska, og er reyndar alveg komin með æði fyrir einum þeirra en það er diskur danskar söngkonu sem að heitir Tina Dikow, In the red. ROSALEGA GÓÐ. Brilljant. Svo datt ég yfir disk með Starsailor, alger snilld líka.  Fékk líka disk með Emilíönu, alltaf verið aðdáðandi hennar frá því í Söngkeppni framhaldsskólana þarna um árið. Brilljant , brilljant, brilljant. Eini gallinn er að maður fær ekki alveg þá nýjustu diskana á markaðinum men það er ókey, ég er svo mikið eftir á og líka svo gaman að hlusta á gamla tónlist.

 

Anyhooooo, þá erum við að leggja allra, allra síðustu hönd á þvottahúsið og gasalega er það orðið flott. Læt inn fyrir og eftir myndir þegar að við erum alveg búin. Vinur okkar hérna í Horsens, Þröstur handyman, setti upp fyrir okkur innréttinguna og fiffaði við smáhluti sem að þurfti að dytta að. Alger redding, þar sem að við fengum risa staðfestingu á því af hverju Timo og Ragna eiga ekki að gera neitt svona sjálf.

 

Nr 1: Þegar Þröstur er að mæla út hvar hann eigi að láta sökkulinn lítur hann undarlega á okkur og er ekki alveg að skilja..... "hmmm.. þetta er of stutt"

"Ha, of stutt, ja en við keyptum svona og svona og svona" svara ég. Vúpps, við mældum allt band vitlaust sem að þar af leiðandi höfum við keypt of fáa skápa og of stuttan sökkul. En vegna snilldar handymans hugsun Þrastar þá var þessu reddað og við gátum bætt einum skáp inn í.

 

Nr 2: Við létum blikksmiðinn færa leiðslurnar fyrir vaskinn, sem að þar af leiðandi gerði það að verkum að það þurfti að skera gat á hliðirnar á skápunum svo að hægt sé að tengja vaskinn. Kræst! Og vaskurinn verður á sama stað og áður!

 

Við bökuðum jólasmákökur og nammi á laugardaginn. Fengum Nikolinu lánaða og bökuðum. Voða gaman fyrir utan það að allt fór í ruslatunnuna þegar við vorum búin. Sendum hana heim með tvær fullar dósir af kökum og svo restin í ruslið.....hahahhahaha. En ég held ad Anja og Michael hafi gert það sama þegar við fórum eftir að hafa skilað Nikolinu

 

Annars er ég alveg að undirbúa matarboð ársins hjá okkur sem að verður á föstudaginn, en það er svona hálfgert afmæli. Ég sagði samt að þetta væri bara matarboð, ég geri svo lítið út úr þessum afmælum.

 

Ég ætla að bjóða upp á 3ja réttar máltíð. Í forrétt býð ég upp á ítalska appertifa, Carpaccio, tundip og eitthvað kryddostar dæmi. Í aðalrétt, nautakjöt með vetrargrænmeti og kartöflum og dýrindis wiskí sósu, og í eftirrétt ís með heimagerðri jarðaberjasósu.

Jesús, ég fer á taugum.

 

Ég má ekki drekka um kvöldið því ég er að fara í KARATEPRÓF á laugardagsmorgunn. Shit!!!!!!

Núna gildir það 3. kyu eða fyrsta brúna beltið. Þetta verður allavegna ekki auðveldara. En það ætti að ganga, þó svo að hringsparkið mitt sé alveg út úr kú. En þá geta dómararnir kanski skemmt sér aðeins við það. Þegar ég sparka í allar áttir og vagga til hliðar eins og fyllibytta.

 

Um kveldið er jólafrokost með karateinu og enda ég eflaust þá stjörnufull og vitlaus en að engu síður mun ég skemmta mér vel, þangað til á sunnudaginn og svo á þriðjudaginn verður maður orðin góður aftur. Hvenær lærir maður?

 

Timo er að fara til Köben á laugardaginn til sunnudags. Hann er að fara á tónleika með Red Hot Chili Peppers. Voða gaman hjá honum.

Við förum á tónleika með Nephew í febrúar en Nephew er stórkostleg dönsk hljómsveit. Alveg brilljant. Ég verð þó að segja að það eru alveg ótrúlega margar danskar hljómsveitir að blómstra núna og varla neitt annað spilað í útvarpinu. Snilld.

 

Jæja, ég er alveg óð, skrifa of mikið ég veit, en það er bara svo gaman. Ég held að ég nái ekki að breyta útlitinu á síðunni fyrir 11. des en kanski fyrir 1 jan :-)

Var að taka eftir því að síðan mín á 2ja ára afmæli.

Til hamingju með það síðan mín!