Sitemap
print
Ragna
Billeder
Kvittere/Kommentere
Kontakt
2008
2007
December 2007
November 2007
Oktober 2007
Sept 2007
Agust 2007
Júlí 2007
Júní 2007
Maí 2007
Apríl 2007
Mars 2007
Februar 2007
Januar 2007
2006
2005
2004

19/01 2007

HÆ hó og gleðilega helgi.

Ég er alveg í essinu mínu en allt er eitthvað svo æðislegt þessa dagana. Aðallega vegna þess að ég var að fá nýja stöðu hjá jem & fix. Er búin að vita það í viku en það var fyrst í dag sem að það var opinbert þannig að núna vil ég líka segja ykkur frá því. En ég er orðinn vefstjóri og mun í framtíðinni sjá um heimasíðuna og intranetið okkar. Er alveg í skýjunum yfir þessu.

 

Önnur stórfrétt er sú að slóðin mín, www.ragnab.com er nú virk. VÚ HÚ. Nú er auðveldara að rata inn i heim Rögnu í Mörkinni, sem að er auðvitað ómissandi í nútímaþjóðfélagi. Nú vantar bara nýtt design á síðuna mína en ég hef víst ekki alveg tíma á næstunni. But who knows.

 

En nú er komin helgi og ætla ég aðeins að reyna að slappa af i kvöld og glápa á dvd með kærastanum mínum. Vinnufélagi minn var svo sætur að brenna fyrir mig Fearless, sem að er mynd með fullt af cool slagsmálum með cool kínverjum.

 

Svo er vinur okkar, Morten búinn að finna fyrir okkur supercool mediacenter sem að við ætlum að kaupa og hann lætur það saman líka. En hann kaupir það i bitum og lætur það saman. Þannig getur maður ráðið hvað tölvan getur og hefur fyrir "ódýrari" pening. Allavegna getur Morten fundið út úr þvi, mér finnst þetta alger jungle að finna út úr.

 

Fyrir þá sem að ekki vita þá er mediacenter tölva þar sem að maður getur haft bíómyndir liggjandi og tekið upp á tölvuna og haft alla tónlist og myndir og blablabla... heimilli framtíðarinnar. Svo einhvern daginn ætla ég að fá svona á heimilið.

 

Ég veit að það er alltaf auðvelt að segja þetta en ég var búin að finna upp á þessu í huganum, ætlaði að forrita svona sjálf en það krefst bara MJÖG mikinn aga og tíma í það, þannig að ég varð að bíða eftir að einhver annar gerði þetta og svo verð ég bara að kaupa. En maður gæti gert svona míni útgáfu.  

Draumurinn er að hafa algerlega digital heimili. One day, some day.

 

Jæja, ég ætla að surfa áfram í digitalheiminum á meðan Timo minn eldar fyrir mig.

Góða helgi og við heyrumst.

 

 

15/01 2007

Helgin var æðisleg. Ég og Timo notuðum afmælisgjöfina mína sem að hann gaf mér. Við fórum að heiman og vorum frá föstudegi til sunnudags á "den gamle grænsekro" sem að liggur 10 km suður fra Kolding. Æðislegur staður að gista og huggulegt að borða. Það var innifalið morgunnmatur og kvöldmatur. Kvöldmaturinn var 3ja rétta og mátti maður velja hvað sem er af matseðlinum. Og við átum og átum og vorum ógeðslega södd bæði kveldin.

 

Við eyddum föstudeginum í Kolding storcenter þar sem að við fengum verslað smá af fötum á okkur. Ég keypti mér 2 pör skó og 3 peysur og hver hlutur kostaði 200 kall. Tema dagsins var 200.   

 

Svo fórum við í bíó á laugardagskveldinu á nýja danska mynd sem að heitir "Ledsaget udgang" eftir Erik Clausen. Hún var mjög skemmtileg og höfðar alveg til dananna, ekta danskur húmor í þeirri mynd. Enda fengið metaðsókn um helgina og super góða dóma. Ég er mjög hrifin af dönskum bíómyndum, mér finnst þeir snillingar í að gera bíómyndir. Ég sá eina af þeim gömlu í fyrsta sinn í síðustu viku, Zappa, en ég las hana í grunnskóla og skildi ekki neitt af henni. En myndin var super góð. Óhugnaleg en raunveruleg. Mæli með henni.  

 

Það er annars búið að vera stormviðri hérna í mörkinni um helgina. Allt að flæða yfir og fjúka út í buskann. En ég tek ekki eftir neinu.

 

Jæja, ég bið að heilsa í bili.

 

10/01 2007

Jæja, krakkar mínir. Þá byrjar stundin okkar. Klukkutími með lestri frá bloggsíðu Rögnu.

Nei, nei, ég hef nú ekki það mikið að segja. Reyndar ekki neitt. Bara að halda lífi í blogginu mínu.

 

Ég er svo undrandi yfir þessum vetri. Ég held að það hafi í mesta lagi verið 3 dagar með frostveðri hérna í vetur. Það er alla morgna á milli 7 - 10 stiga hiti. Janúar er nú þekktur fyrir að hafa mínus 15 gráður. Brrr....

Eini ókosturinn við að hafa ekkert frost er að hundaskíturinn úti í garði frýs ekki og þar af leiðandi er erfiðara að taka hann upp. Með öðrum orðum, hann verður ekki tekinn upp. Það er meiningin að það eigi að gerast en enginn gerir það. Bertha greyjið fer að vanta pláss til að skíta á. Ég var að spá í að ráða hundaskítshreinsunar strák eða stelpu og borga 50 kall í tímann fyrir að taka hann upp. En ég held að ég myndi fá vinnueftirlitið í heimsókn vegna hættu á vinnustað.

 

Vegna þess hve heitt það er búið að vera halda greyjið brottgeltirnir að það sé komið vor og fara úr hýunum sínum og fara út að leita að mat. Svo er spáð brjáluðu PÖDDU sumri næsta sumar vegna þess að helmingurinn hefur ekki drepist i vetur. Miklu fleiri býflugur og HELVÍTIS maurarnir, eins og þeir voru nú margir hérna í sumar. Ég tryllist næsta vor og mun vera klædd mauraeitri ALLTAF. Bertha fékk flær aftur núna um jólin en ég var ekkert að spá í því, af því að það er vetur og flærnar eiga að vera dauðar eða sofa en helvítin þurfa að vera eitthvað að hoppa upp á hundinn minn og gera sér hreiður þar. Litlu svínin.

 

Jæja, ég ætla að fara að hrista úr mér hrollinn eftir þetta pödduskrif. brrr....hrist... hrollur.

 

Heyrumst.

 

 

06/01 2007

Hæ. Já maður þarf að venja sig á að skrifa 2007, skifaði vitlaust árstal síðast.

 

Er I kommet godt ind i det nye år? Kann ekki að þýða þetta enda held ég að við segjum ekki svona, en svona segja danirnir.  En ég er allavegna komin vel inni í árið :-) Bara rólegt en nóg að gera. Fór í karate i dag og á fimmtudaginn. Var ein á fimmtudaginn med 4 svartbelturum og ég var barinn í tætlur því ég kann ekki að slást. Kom heim með bláa tá.

Nei, þetta var nú ekki alslæmt, gaurarnir eru svo góðir við mig og láta mig bara reyna að berja þá og þeir verja bara en ég get ekki einu sinni kýlt þá. Alger auli. En samt gaman.

 

Ég er annars búin að búa til heimasíðu fyrir karateklúbbinn, ef þið viljið sjá þá er slóðin www.horsens-shotokan.dk og ef þú býrð í horsens og langar að æfa karate þá er bara að mæta á þriðjudaginn 9. jan kl 19:30 og prófa :-) 

Það á annars eftir að láta inn myndir á síðuna og meira efni en það kemur hægt og rólega.

 

Svo er ég búin að kaupa slóðina www.ragnab.com en það er ekki virkt enn og ég á eftir að láta vin minn vita sem að "hóstar" síðuna mína frá því. En þá vitiði það að þið getið bráðum farið inn á  ragnab.com í staðinn fyrir þessa slóð. Ég verð svo að fara að breyta þessu designi.....

 

Við erum annars að fá gesti í kvöld í mat og ég þarf að fara að taka til en er bara orðin löt núna. Timo minn var svo góður að ryksuga þannig að það er búið. Það verður annars bara rólegt í kvöld því Timo er að fara í fótbolta á morgunn kl 8.

 

Já, já annars gerist lítið fyndið hérna, engar ljóskusögur af mér núna en það ætti annars alveg að vera nóg af þeim, ég bara man þær ekki núna :-)

 

Jæja, verð víst að fara að taka til.

Bæjo gott fólk og hafið það gott.  

 

01/01 2006 vupps, nei það er víst 2007 núna

Jæja, bara komið nýtt ár. Hmmmm.. hvernig ætli það verði? 2006 var bara ágætis ár, þrátt fyrir að það gerðist ekkert svo voðalega mikið merkilegt í mínu lífi á því ári. Það væri þá helst bara þessi 2 belti sem að ég náði mér í í karateinu og svo tónleikarnir með George Michael sem að stendur upp úr.

Ég fór ekkert til útlanda á árinu, sjaldan hefur það gerst að ég hafi ekkert farið. Hey jú, við fórum nú einn dag til Þýskalands, en hvort að það sé hægt að telja það með veit ég nú ekki.

Ég kem nú til Íslands í apríl og ætlum við litla parið að reyna að fara eitthvert til útlanda í ár.

 

Það var annars bara mjög rólegt og huggulegt í gær, en við vorum hjá vinafólki okkar, Gitte og Morten og Bertha og Simba gátu leikið sér allt kveldið. Það var grenjandi rigning og rok hérna þegar klukkan sló 12 en Horsens búar skutu þó helvíti mikið upp. Mjög gott útsýn var yfir bæinn hjá G og M þannig að maður gat notið þess að horfa á þetta. Við vorum nú alveg að drekka en ekkert ofurölvi neitt og fórum við heim kl 03 í nótt og dagurinn í dag búin að vera MJÖG rólegur og þó nokkuð þreyttur. Bertha tók nú rakettunum mjög vel, hljóp bara úti í garði og gelti og hoppaði eins og óð. En hún var ekkert hrædd þannig. Ég hélt að þetta yrði miklu verra.

 

Ég fer svo að vinna á morgunn en Timo er í fríi þangað til á fimmtudag. Æðislegt að vera í fríi en allt verður nú að taka enda.

 

Ú, já, verð nú aðeins að kommentera James Bond myndina, en mér fannst hún alveg góð og var ég alveg afar stolt af Mads mínum Mikkelsen. Daniel Craig er alls ekki slæmur sem 007 og hlakka ég til að sjá næstu mynd með honum. Loksins kom Bond mynd sem var góð en mér finnst síðusu myndir með Pierce Brosnan afar óraunverulegar og lélegar. Só gó, Craig.

 

Jæja, ég er að reyna að láta tímann líða, get ekki beðið eftir að mæta í vinnuna á morgunn. HAHAHAHAHAHAHHA. Nei, nei, er bara rastlös eins og maður segjir á dönsku og super löt.

 

Hafið það gott á nýju ári og við sjáumst vonandi í apríl.